Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 24
24 - búnaðarþing 2012 BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 1. MARS 2012 BÚNAÐARÞING 2012 ÁF RA M ÍSL EN SK UR LA ND BÚ NA ÐU R Ályktanir Ályktanir Búnaðarþings 2012 Til afgreiðslu á Búnaðarþingi voru 23 mál að þessu sinni og voru einungis eftirfarandi mál afgreidd þegar blaðið fór í prentun Búnaðarþing var sett sunnudaginn 26. febrúar í Súlnasal Hótels Sögu að viðstöddu fjölmenni. „Áfram íslenskur landbúnaður“ voru ein- kunnarorð setningarathafnarinnar en þar hélt Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, setningarræðu sem fjallað er um á síðunni hér á undan. Steingrímur J. Sigfússon, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpaði þingið og fór yfir helstu mál sem ráðuneytið hefur haft til umfjöllunar síðustu misseri og hvað er framundan. Hann kvað mikil- vægi íslensks landbúnaðar ótvírætt við endurreisn þjóðarbúsins eftir efnahagshrunið. Hann bar lof á bændur fyrir dugnað og kjark og gerði að umtalsefni gott samstarf Bændasamtakanna og stjórnvalda. „Þessi kreppa kom ekki síður niður á bændum en öðrum landsmönnum og gerir auðvitað enn. Voru þeir þó ekki ofhaldnir fyrir. En, í tilviki land- búnaðarins, rétt eins og þjóðarinnar allrar fullyrði ég að hættunni hefur verið afstýrt og skiptir þar miklu hið farsæla samkomulag sem tókst milli ríkisvaldsins og Bændasamtakanna um að verja sjálfan grunn framleiðsl- unnar og þar með kjörin eftir föngum með endurskoðun og framlengingu búvörusamninganna á árinu 2009,“ sagði Steingrímur. Ráðherra fór meðal annars yfir útflutningsverðmæti og gjaldeyris- tekjur sem landbúnaðurinn skapaði á síðasta ári. Væri fiskeldi tekið með inn í myndina auk ferðaþjónustu bænda næmu þær tekjur um tólf milljörðum króna. Ætlar sér ekki að láta ístaðið dingla laust „Af þessum sökum m.a. þarf að standa fast á hagsmunum og fram- tíðarmöguleikum landbúnaðarins í yfirstandandi viðræðum við Evrópusambandið og rétt er að undirstrika að annað stendur ekki til. Hversu leitt sem mönnum finnst að standa í þeim viðræðum og sjálfsagt ýmsum hér innan dyra það með öllu ástæðulaust, er tilvist þeirra mála staðreynd og það hvernig framtíðartengslum okkar við megin- land Evrópu, álfunnar sem við nú einu sinni tilheyrum, verður háttað er eitt af þeim málum sem þjóðin þarf að glíma við og átta sig á framtíð sinni gagnvart. Ég hef ekki hugsað mér að láta ístaðið dingla laust varðandi hagsmuni íslensks landbúnaðar í þessu máli meðan mér er falin þar á nokkur ábyrgð og hvers vegna ætti ég að gera það? Maður sem er jafn sannfærður nú ef ekki sannfærðari en áður um að það þjónar ekki best okkar hagsmunum að ganga í Evrópusambandið,“ sagði Steingrímur varðandi umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Að loknu máli ráðherra tók við hátíðardagskrá þar sem félagarnir í Hundi í óskilum, þeir Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson, skemmtu gestum af sinni alkunnu snilld. Á eftir þeim spilaði strengja- kvartettinn Hugo nokkur lög en dagskránni lauk með afhendingu Landbúnaðarverðlauna sem að þessu sinni féllu í skaut bændanna í Skarðaborg og Reykjahlíð og fjallað er um á bls. 26. Kátt í Bændahöllinni við setningu Búnaðarþings » Eldsneytisverð Markmið Að lækka eldsneytisverð en hækkun þess kemur hvað harðast niður á landsbyggðinni. Leiðir Að dregið verði úr skattlagningu á eldsneyti. Framgangur Ályktun verði send fjármálaráðu- neyti og efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis. » Stuðningur við orku- sparnað Markmið Búnaðarþing 2012 skorar á iðnað- arráðherra að koma myndarlega til móts við almenning í landinu með breytingu á reglugerð nr 660/2009 um niðurgreiðslur húshitunarkostn- aðar með það að markmiði að auka sjálfbærni í orkuöflun og lækka orkukostnað. Leiðir Núverandi reglugerð kveður á um allt að 8 ára niðurgreiðslu en Búnaðarþing 2012 leggur til að hún verði 16 ár. Framgangur Búnaðarþing beinir því til Bændasamtaka Íslands að fara fram á breytingu á reglugerð nr. 660/2009. Jafnframt að tryggt verði nægilegt fjármagn til stuðnings vegna fram- kvæmda við orkuöflun í dreifbýli. » Kúasæðingar Markmið Búnaðarþing 2012 beinir því til stjórnar B.Í. að skoða kosti og galla þess að sameina starfsemi kúasæðinga á landinu öllu með það að markmið að ein og sama gjald- skrá verði látin gilda fyrir alla. Leiðir Málið verði unnið í samráði við Búnaðarsamböndin og Landssamband kúabænda. Framgangur Málið sent stjórn B.Í. Niðurstaða liggi fyrir á næsta búnaðarþingi. » Búvörusamningar Markmið Búnaðarþing 2012 skorar á sjávar- útvegs og landbúnaðarráðherra að hefja viðræður við Bændasamtök Íslands, um framlengingu gildandi búvörusamninga. Mikilvægt er að treysta rekstrarumhverfi bænda, skapa stöðugleika og áframhaldandi framþróun viðkomandi búgreina. Leiðir Búnaðarþing beinir því til BÍ og þeirra búgreinafélaga sem málið varðar að óska eftir viðræðum við stjórnvöld um framlengingu búvörusamninga. Framgangur Bændasamtök Ísland í samráði við viðkomandi búgreinafélög fylgi mál- inu eftir gagnvart sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. » Viðskipti með greiðslu- mark mjólkur Markmið Búnaðarþing 2012 beinir því til sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra að fjölga markaðsdögum með greiðslu- mark mjólkur þannig að þeir verði a.m.k. þrír á ári. Leiðir Ályktuninni verði komið á framfæri við sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra Framgangur Bændasamtök Íslands vinni að mál- inu í samráði við Landssamband kúabænda. » Aðildarviðræður við Evrópusambandið Markmið Búnaðarþing 2012 krefst þess að varn- arlínur BÍ verði virtar í aðildarviðræð- um Íslands og Evrópusambandsins. Stjórnvöld setji tafarlaust fram samn- ingsmarkmið sem verndi með skýrum hætti hagsmuni íslensks landbúnaðar. Leiðir Fulltrúar BÍ komi þessum skilaboðum búnaðarþings með skýrum hætti á framfæri í nefndarstörfum vegna ESB- umsóknar stjórnvalda. Stjórn BÍ komi þeim með sama hætti á framfæri við íslensk stjórnvöld og sendifulltrúa Evrópuríkja hérlendis. Framgangur Stjórn BÍ er falið að vinna áfram að málinu af þunga Haraldur Benediktsson, Guðbjörg Haraldsdóttir, Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, Eiríkur Blöndal, Ólafur R. Grímsson og Steingrímur J. Sigfússon. Hörður Harðarson og Björn Halldórsson. Steingrímur J. Sigfússon. Einar Frogner frá Norges bondalag og Ib W. Jensen frá dönsku bændasamt-kökunum í félagsskap Ólafs R. Dýrmundssonar. Hljómsveitin Hundur í óskilum lék fyrir gesti á setningarathöfninni.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.