Bændablaðið - 01.03.2012, Side 7

Bændablaðið - 01.03.2012, Side 7
Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 7 lína Jónasdóttir þekkti vel til langana Lúðvíks Kemp, og sendi honum þessa vísu: Þó að stefni öll þín ást að einum litlum bleðli, þá er ekki um það að fást, þetta er mannlegt eðli. Milli Ingibjargar Sigfúsdóttur húsfreyju á Refsteinsstöðum og Valdimars K. Benónýssonar bónda á Ægissíðu á Vatnsnesi fóru mikil ljóðamál. Jafnan var þar enga hortitti að heyra. Í ljóðabréfi til Valdimars eru þessar vísur: Finn ég svíða frost á kinn, fölnar prýði haga. Ei þó kvíði, ef ég finn Ægissíðu Braga. Og Valdimar launar fyrir ljóða- bréfið í löngu bréfi. Þar er þessa vísu að finna: Refsteinsstaða freyjan fróð funans glaða njóti. Þú mátt raða á þína glóð þessu blaðadóti. Einhverju sinni urðu samferða austur á Selfoss þau hjónin Valdís Halldórsdóttir og sr. Gunnar Benediktsson ásamt Karólínu Einarsdóttur frá Miðdal. Gunnar var í þann tíma þjáður af gigt í læri. Karólína orti því til Gunnars: Ef ég settist ofan á þig í öllu þessu hossi, og þjakað lærið þyldi mig, þá væri stutt að Fossi. Sr. Gunnar svaraði Karólínu þannig: Ef þú settist ofan á mig, illa farið gæti, vertu kona vör um þig, vertu ekki með nein læti. Valdís kona sr. Gunnars, ágætlega vísnafær, vissi gjör um hagi bónda síns : Ef þú settist ofan á hann, illa máske færi. Veit ég manninn viðkvæman víðar en í læri. Júníus Jónsson verkstjóri á Akureyri var ágætur hagyrð- ingur. Þura í Garði bjó um tíma á Akureyri, skammt frá heimili Júníusar og átti vinskap ágætan við þau hjón bæði. Einhverju sinni sendi Þura konu Júníusar þessa afmæliskveðju: Gegnum lífið góða ferð á gæfuvegi fínum, þú ert ekki öfundsverð af eiginmanni þínum. Júníusi þótti sér skylt að þakka sinn hluta í kveðju Þuru og kvað: Þú kvartar ei en kalt er það að kúra ein í næturhúmi og enginn hefði öfundað eiginmann í þínu rúmi. Í mörgum vísnaviðureignum þessa tíma, kemur Þura í Garði við sögu. Einar Sæmundsen heimsótti Þuru einhverju sinni og orti til hennar: Þá er ég komin Þura mín að þínum garði, þrjátíu ár ég þráði fundinn, þó ég væri annarri bundinn. Þura svaraði Einari: Kætir mig þú komst að sjá kvenna-og sveitarprýði. Nú er lokið þeirri þrá og þrjátíu ára stríði. Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@gmail.com Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM Ó Viskukýrin haldin hjá Landbúnaðarháskóla Íslands: Heimamenn unnu Viskukúna 2012 Spurningakeppnin Viskukýrin hefur verið haldin hjá Landbúnaðarháskólanum í átta ár við góðar undirtektir. Þessi skemmtilega spurninga- keppni hefur fyllt matsalinn frá upp- hafi en þar etja kappi heimamenn, starfsmenn LbhÍ og nemendur en gestir koma víða að úr Borgarbyggð til að skemmta sér með nemendum. Garðyrkjuskólinn að Reykjum í Ölfusi kom í fyrsta sinn með lið nú í ár en sá skóli er undir hatti Landbúnaðarháskólans. Nemendur Reykja stóðu sig með prýði og kom- ust áfram upp í aðra umferð. Skemmtiatriði eru í höndum nemenda og í ár var boðið upp á Karlakórinn Hása hálsa, sem vöktu verðskuldaða athygli í flottum lopa- peysum. Frá upphafi hefur Logi Bergmann Eiðsson stjórnað keppninni og gerði hann óspart grín að keppendum og gestum, enda orðinn heimavanur á Hvanneyri og þekkir þar vel til. Keppnin var óvenju spennandi í ár en í úrslitaviðureigninni áttust við heimamenn og Stjörnuliðið svokallaða sem í voru forsprakk- ar Viskukýrinnar fyrstu árin, Guðrún Bjarnadóttir, Ásmundur Einar Daðason og Eyjólfur Yngvi Bjarnason, sem á sínum tíma voru nemendur í skólanum. Eftir tvöfald- an bráðabana sigruðu heimamenn en í sigurliðinu voru Sveinbjörn Eyjólfsson, Klara Sveinbjörnsdóttir og Haukur Júlíusson. Eitthvað gekk liðunum illa að hala inn stigum í upphafi úrslitakeppninnar og hafði Logi á orði að „bæði liðin væru jafn heimsk“! /Guðrún Bjarnadóttir Úrslitakeppnin var óvenju spennandi og jöfn í ár en að lokum sigruðu heimamenn Stjörnuliðið í tvöföldum bráða- bana og eru því Viskukýr ársins 2012. Magnús B. Jónsson afhendir Hauki Júlíussyni, Klöru Sveinbjörnsdóttur og Sveinbirni Eyjólfssyni verðlaunin. Logi Bergmann Eiðsson var spyrill eins og undanfarin ár. Matsalur Landbúnaðarháskóla Íslands var þéttsetinn að vanda þegar spurningakeppnin Viskukýrin fór fram í áttunda sinn. Nemendur Landbúnaðarháskólans fjölmenntu á keppnina, enda er þetta einn af stærstu viðburðum ársins í félagslífi skólans. Kálfurinn Viska áttunda var vinaleg í móttökunni og tók á móti gestum og bauð þá velkomna. Viska áttunda kemur úr Hvanneyrarfjósi. Í fyrsta sinn í sögu keppninnar mætti lið frá Garðyrkjuskólanum að Reykjum, en hann er undir hatti Landbúnaðarháskóla Íslands. Keppendurnir Einar Pálsson, Bergur Þór Björnsson og Hlöðver Jóhannsson stóðu sig með stakri prýði og komust áfram í aðra umferð. Stjörnuliðið var skipað fyrrum nemendum skólans, sem voru upphafsmenn að Viskukúnni fyrir 8 árum, þeim Ásmundi Einari Daðasyni, Guðrúnu Bjarna- dóttur og Eyjólfi Yngva Bjarnasyni. Þau komust alla leið í úrslitakeppnina en töpuðu fyrir liði heimamanna eftir tvöfaldan bráðabana.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.