Bændablaðið - 01.03.2012, Side 15

Bændablaðið - 01.03.2012, Side 15
Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012 15 í héraði hjá þér Fóðurblandan Korngörðum 12 104 Reykjavík Sími 570 9800 Fax 570 9801 fodur@fodur.is www.fodur.is DeLaval rekstrarvörur FB Selfossi sími 570 9840 : FB Hvolsvelli sími 570 9850 : FB Egilsstöðum sími 570 9860 ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Sími 568-1500 | Akureyri: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is ÞÓR HF REYKJAVÍK - AKUREYRI Það er leit að annarri eins alhliða dráttarvél fyrir íslenskan landbúnað. KUBOTA M108s - Frábær alhliða vél, lipur og nett en skortir ekki aflið. Eigum vélar til afgreiðslu strax á hagstæðu verði. Hafið sambandi við sölumenn. Framleiðum Vélboða mykjudreifara í mörgum stærðum Heimasíða. www.velbodi.is Íslenskir lambakjötsútflytj- endur hafa síðustu misseri unnið að markaðssetningu á Rússlandsmarkaði. Fulltrúar frá Sláturfélagi Suðurlands og Kaupfélagi Skagfirðinga tóku á dögunum þátt í annað sinn á matvælasýningunni Prodexpo í Moskvu. Þar var íslenska lamba- kjötið kynnt undir merkjum „Iceland Lamb“ og m.a. haldið námskeið fyrir veitingamenn og haldin móttaka fyrir fjölmiðla og líklega kaupendur. Að sögn Ágústs Andréssonar, hjá KS, var lögð áhersla á að fylgja eftir þeim samböndum sem urðu til á síðasta ári á sýningunni. „Við viljum kynna íslenska lambakjötið sem hágæðavöru fyrir veitingahúsin í Moskvu og bindum vonir við að hægt verði að byggja upp góð sam- bönd sem gættu skilað sölu upp á um 200-300 tonn af lambakjöti á ári innan þriggja ára,“ segir Ágúst. Utanríkisráðuneytið stóð fyrir móttöku í sendiráðinu þar sem Friðrik Sigurðsson matreiðslumeistari eldaði fyrir gesti. „Aðkoma utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Moskvu var mjög mikilvægur og góður stuðningur. Albert Jónsson sendiherra og hans fólk lagði sig mikið fram við að aðstoða okkur og á þakkir skildar fyrir sitt framlag,“ sagði Ágúst. Vel sótt matreiðslunámskeið Í kjölfarið á móttökunni var haldið „master class“ matreiðslunámskeið fyr i r matre iðs lumeis tara og innkaupastjóra helstu veitingahúsakeðja Moskvuborgar í samstarfi við fyrirtækið Marr. Hátt í 70 manns sóttu námskeiðið þar sem Friðrik Sigurðsson leiðbeindi og haldið var erindi um íslenska lambakjötið. „Á námskeiðinu var lögð rík áhersla á sérstöðu íslenska lambakjötsins þar sem hrein náttúra er í aðalhlutverki og sú staðreynd að við slátrum lömbunum yngri en gengur og gerist í samanburði við þá sem eru stærstir á heimsmarkaðnum“ segir Ágúst. Það voru þeir Steinþór Skúlason frá SS og Ágúst Andrésson frá KS sem stóðu að kynningunni í samstarfi við G. Ingason fiskútflytjanda sem kynnti íslenskar sjávarafurðir við sama tækifæri. Erlendur Garðarsson hjá fyrirtækinu IM var sýnendum innan handar með skipulagningu á viðburðum í tengslum við sýninguna auk þess að starfa á sýningarbásnum. Á síðasta ári voru flutt út 52 tonn af kjöti til Rússlands að verðmæti rúmlega 30 milljónir króna. Ef áætlanir ganga upp um aukna sölu á Rússlandsmarkaði má búast við að þessar tölur hækki verulega á komandi árum. Íslenskt lambakjöt í Moskvuborg Vilja selja 200-300 tonn í rússnesk veitingahús Hópurinn sem kynnti íslensku afurðirnar í Moskvu ásamt starfsfólki utan- ríkisþjónustunnar. F.v. Erlendur Garðarsson, Steinþór Skúlason, Ágúst Andrésson, Ása Baldvinsdóttir, Albert Jónsson og Friðrik Sigurðsson. Um 70 manns sóttu matreiðslunám- skeið þar sem íslenska lambakjötið var í öndvegi. Friðrik Sigurðsson matreiðslumeistari kenndi réttu handtökin í eldhúsinu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.