Bændablaðið - 01.03.2012, Síða 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012
„Ég er stoltur af starfi bænda og
aðlögunarhæfni landbúnaðarins
sem við þessar aðstæður sýnir styrk
sinn. Ég er stoltur af því að vera í
forsvari atvinnugreinar sem getur
átt svo mikil tækifæri og hefur sann-
að gildi sitt. Bændur gera Ísland að
ríkara og betra landi að lifa og starfa
í," sagði Haraldur Benediktsson,
formaður Bændasamtaka Íslands,
m.a. í ræðu sinni við setningu
Búnaðarþins 2012.
„En fyrst og fremst er það hlutverk
okkar sjálfra að skapa vöxt og sýna
möguleikana. Það er erfitt verk. Við
þróum ekki landbúnaðinn til vaxtar
– við stækkum ekki landbúnaðinn án
samstarfs við umhverfi okkar.
Landbúnaðurinn getur skapað vöxt
og störf sem land okkar þarfnast nú
eftir efnahagshrunið. Ég segi líka að
við þurfum að vera sýnilegri. Við
þurfum að segja frá því ævintýri sem
landbúnaðurinn er og getur verið.
Beinharðar hagtölur og staðlaðir þjóð-
hagsreikningar eru ágætir að segja
ákveðna sögu. En til er frásögn af öðru
ævintýri. Íslenski landbúnaðarklasinn
– samsettur af bændum og þeim fyrir-
tækjum öllum sem með einhverjum
hætti byggja tilveru sína á starfi bónd-
ans er miklu stærri en okkur er tamt að
hugsa um. Tólf þúsund störf eru með
beinum hætti tengd landbúnaði, en ef
dýpra er skoðað má áætla að störfin
séu mun fleiri. Hér er því slegið fram
að hlutur okkar í íslensku atvinnulífi
sé miklu nær því að vera um fimmtán
þúsund störf og 130 milljarða velta á
ári. Það munar um minna."
Sóknartækifæri
„Hver eru sóknartækifærin sem liggja
við götu okkar? Ég nefni hér nokkur
þeirra:
Aukum framleiðslu á mat-
vælum. Búum okkur undir
að framfylgja stefnumörkun
stjórnvalda um að auka inn-
lenda matvælaframleiðslu
fyrir árið 2020. Við flytjum
of mikið inn af mat sem við
gætum framleitt hér á landi.
Flytjum meira af framleiðslu
á korni til landsins, sækjum
fram með framsækna og fjöl-
breyttari jarðrækt.
Landbúnaðurinn getur skipt
sköpum í að auka sjálfbærni
landsins með eigin elds-
neytisframleiðslu. Við erum
á krossgötum í orkumálum
og víðast hvar um heiminn
leika bændur þar stórt hlut-
verk.
Innan núverandi búgreina
liggja spennandi tækifæri á
markaði, með sérhæfingu,
fjölbreytni og meiri gæði að
leiðarljósi.
Við eigum skóga sem skila
okkur vaxandi verðmætum.
Íslenski hesturinn á mikla
möguleika enda þekktasti
Íslendingurinn í víðri veröld.
Tækifæri liggja í minkarækt.
Ferðaþjónusta bænda, sem
á árinu fékk útflutnings-
verðlaun Forseta Íslands, er
tákn um glæsilegan árangur
– til hamingju íslenskir ferða-
þjónustubændur. Þið hafið
sýnt hvernig hægt er að nýta
tækifærin.
Af þessari upptalningu sést að
tækifærin byggjast á íslensku bújörð-
inni. Bújörðin er ein af auðlindum
þessa lands. Umgjörðin um hana þarf
að vera sterk og að sama skapi þarf
umgjörð um landbúnaðinn að vera
skýrt mótuð og horfa til langs tíma.
En við fjölgum ekki störfum í land-
búnaði eða aukum verðmæti hans með
sama viðhorfi og verið hefur undan-
farin mörg ár, sem nefna má hugarfar
tómlætis eða sinnuleysis.
Vísbendingar eru um að efna-
hagur bænda sé að styrkjast á nýjan
leik. Samkvæmt tölum lánastofnana
lækka nú heildarskuldir bænda. Það
og góð sala á afurðum byggir á nýjan
leik upp kraft til að halda áfram. En
ég geri samt ekki lítið úr vanda þeirra
sem glíma við afleiðingar hrunsins.
Mörg önnur merki eru í umhverf-
inu sem benda til þess að þegar á þessu
ári geti bændur stuðlað að aukinni
fjárfestingu og umsvifum í íslensku
atvinnulífi. Mig langar að segja ykkur
frá nýlegri viðhorfskönnun Capacent,
þar sem þau ummæli voru m.a. höfð
um bændur að þeir væru harðduglegt
fólk, sem er góður vitnisburður um
viðhorf til íslenskra bænda. Fólkinu
sem ofbauð yfirborðsmennskan
og bruðl sjálftökufólksins á árum
græðginnar horfir til bóndans og
segir; ekki eru þeir með einkaþotur!
Gildi íslenskra bænda, dugnaður og
hógværð eru þau gildi sem duga til
að koma okkur áfram."
„Leiktu þér ekki að eldinum"
Varðandi aðildarviðræður Íslands að
Evrópusambandinu beindi Haraldur
orðum sínum til Steingríms J.
Sigfússonar sem tók við starfi land-
búnaðarráðherra um nýliðin áramót.
„En hvernig sem stjórnvöld vilja
halda á ESB-málunum þá hafa bændur
lagt fram sínar áherslur í svokölluðum
varnarlínum. Þar tökum við skýra
afstöðu og útskýrum kröfur okkar
varðandi fjölmörg atriði sem hafa
verður í huga í ESB-vegferð ríkis-
stjórnarinnar. Margt bendir nú til að
á vettvangi stjórnvalda sé þegar und-
irbúið að stíga yfir fjórar varnarlínur
okkar af sjö.
Bændur segja því aðeins eitt við þig
háttvirtur sjávarútvegs og landbúnað-
arráðherra; leiktu þér ekki að eldinum.
Þú átt á hættu að aðild verði samþykkt.
Gerðu allt sem þú getur til að gæta
hagsmuna Íslands. Ekki fyrir bændur
heldur fyrir framtíð þjóðarinnar. Ef
það er svo að íslenskir samningamenn
þora ekki að ganga fram með sterka
kröfugerð eigum við sitja heima og
viðurkenna að klúbburinn hentar
okkur ekki og það er tímabært núna."
í héraði hjá þér
Fóðurblandan Korngörðum 12 104 Reykjavík Sími 570 9800 Fax 570 9801 fodur@fodur.is www.fodur.is
Búfénaður skal
ávallt hafa aðgang
að saltsteini
FB Selfossi sími 570 9840 : FB Hvolsvelli sími 570 9850 : FB Egilsstöðum sími 570 9860
Dekkjainnflutningur
Viltu spara
Eigum á lager flestar stærðir traktors, vagna og
vinnuvéladekkja á góðu verði.
Einnig mikið úrval fólksbíla og jeppadekkja
á lager, 10% aukaafsláttur.
Verðdæmi:
Skotbómulyftaradekk 405/70-24 kr. 116.000 m/vsk
Traktorsdekk 380/70 R24 kr. 109.000 m/vsk
Traktorsdekk crossply 16,9-34 kr. 122.000 m/vsk
Verð gildir á afhendingastöðvar Landflutninga um
allt land.
Jason ehf
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 - e-mail manni@gott.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
Haraldur Benedikstssonk, formaður Bændasamtaka Íslands sagði m.a. í ræðu sinni við setningu Búnaðarþings 2012
að það væri fyrst og fremst hlutverk bændanna sjálfra að skapa vöxt og sýna möguleikana sem í landbúnaðinum
felast . Mynd / HKr.
Áfram íslenskur landbúnaður
» Bændur
þakka aðstoð 2524-25 » ÁlyktanirBúnaðarþings
Búnaðarþing 2012