Bændablaðið - 01.03.2012, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | fimmtudagur 1. mars 2012
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Líffræðilega er enginn munur
á vorlaukum og hnýðum og
öðrum lauk- og hnýðisjurtum,
blómgunartíminn er bara annar.
Laukar, hnýði og forðarætur safna
í sig næringu, geyma hana yfir
hvíldartímann og nota hana svo
til að blómstra. Fæstir vorlaukar
eða hnýði lifa veturinn af úti hér
á landi og verður því að forrækta
þau inni áður en þau eru sett út.
Þegar vorlaukahnýði og
forðarætur eru forræktuð inni á
að setja þau í rúmgóðan pott með
næringarríkri mold um miðjan mars
og fram í maí. Því stærri sem þessar
rætur eru, því fyrr þarf að setja þær
niður. Bestur árangur næst með
því að láta plöntuna standa í sama
pottinum allan vaxtartímann.
Halda skal moldinni rakri
allan vaxtartímann en gæta vel að
frárennsli í pottinum því laukar,
hnýði og forðarætur fúna standi
þær í blautum jarðvegi. Séu hnýðin
mjög hörð er gott að mýkja þau í
vatni í tvær til þrjár klukkustundir
áður en þau eru sett í mold. Líkt og
með haustlauka og hnýði á að setja
vorlauka og hnýði niður eins djúpt
og nemur tvisvar til þrisvar sinnum
þykkt þeirra og þjappa moldinni
lauslega í kring.
Eftir að laukarnir eru komnir í
pott á að setja hann á bjartan stað.
Þegar fyrstu blöðin koma í ljós á að
flytja pottinn á svalari stað en gæta
þess að birta sé nóg. Gott er að gefa
áburð þegar vöxturinn er kominn vel
af stað og plantan hefur náð góðum
10 sentímetrum á hæð.
Í seinni hluta maí eða byrjun
júní er kominn tími til að herða
jurtirnar með því að setja pottinn
út á svalir eða tröppur í tvo til þrjá
klukkutíma á dag. Útiverutíminn
er svo lengdur smám saman þar til
hætta á næturfrosti er liðin hjá. Eftir
það er óhætt að hafa plönturnar úti
allan sólarhringinn.
Umhirða
Vorlaukar, hnýði og forðarætur
þurfa bjartan og skjólgóðan stað í
garðinum svo að blómin fái notið
sín. Jurtir í pottum er auðvelt að
flytja í skjól, gerist þess þörf. Það
auðveldar þeim lífið og eykur
blómgunina. Klípa skal burt visnuð
blóm sem búin eru að blómstra.
Það kemur í veg fyrir tilraunir til
fræmyndunar og eykur blómgun.
Fæstar þessara plantna lifa
veturinn af úti en eigi að rækta
þær áfram skal láta blöðin sölna að
fullu og taka svo pottinn inn fyrir
fyrsta frost. Geyma skal pottinn
með forðarótinni eða rótina sjálfa á
þurrum og svölum stað yfir veturinn.
Næsta vor er forðarótin sett aftur
í pott með góðri mold og þegar
búið er að vökva vaknar jurtin af
dvala sínum. Hringekja lífsins snýst
endalaust.
Nokkrir algengir vorlaukar
Asíusóley. Vex af forðarót og getur
orðið um 40 sentímetra há við góð
skilyrði. Asíusóley er til í fjölda
lita; hvít, gul, bleik, appelsínugul,
rauð og marglit. Gott er að bleyta
upp í rótinni í nokkra tíma áður en
hún er sett niður. Á rótinni eru eins
konar klær sem eiga að vísa niður
í moldinni. Heimkynni eru í Litlu-
Asíu. Hún er viðkvæm, þarf allra
besta staðinn í garðinum, skjól og
sól. Rótin geymist best á þurrum
stað við 10 til 13ºC.
Begónía. Vex af hnýði og getur
orðið 40 sentímetra há. ,Begonia
× tuberhybrida‘, sem er ræktuð
sem vorlaukur, er ekki til sem villt
tegund í náttúrunni heldur búin
til af ræktunarmönnum. Skáblað
er til í mörgum litum; rautt, hvítt,
bleikt, appelsínugult og marglitt.
Hnýðin eru kúpt á þeirri hlið sem
snúa á niður. Leggja skal hnýðin í
mold og þrýsta þeim niður en ekki
hylja alveg. Þegar sprotarnir hafa
náð 3ja til 4ra sentímetra hæð skal
hylja hnýðin. Hnýðin geymast best
á þurrum stað við 2 til 5ºC.
Bóndarós. Fyrirferðarmikil og
falleg planta með gildar forða-
rætur. Algeng hæð er 50 til 70
sentímetrar. Blað- og blómfallegar.
Blómin stór, fyllt eða einföld, rauð,
gul, bleik og hvít. Best er að láta
bóndarósir standa lengi á sama stað
þar sem þær hafa sæmilegt rými.
Þrífast best í skjóli í djúpum og
frjósömum jarðvegi, eru sólelskar
og þola hálfskugga. Gæta skal þess
að setja ræturnar ekki of djúpt og
brumin mega ekki fara dýpra en 5
sentímetra niður. Plantan er yfirleitt
ár að jafna sig eftir niðursetningu
áður en hún fer að blómstra.
Silkibóndarós er falleg tegund
innan ættkvíslar bóndarósa með
stórum og fallegum blómum
sem yfirleitt eru hvít. ,Festiva
Maxima‘ er gamalt og fallegt
yrki með ofkrýndum blómum,
,Karl Rosenfeld‘ er með rauð
og hálfofkrýnd blóm og ,Sarah
Bernhard‘ með risastór, ofkrýnd
og rósbleik blóm.
Brúska/Hosta. Harðgerð,
fjölær jurt sem vex upp af stuttum
jarðstöngli. Kemur seint upp og nær
35 til 40 sentímetra hæð. Ræktuð
vegna breiðra blaðanna sem eru
græn eða blágræn með gulum
eða hvítum lit, slétt, bylgjótt eða
hrukkótt. Blómin lítil, ljósbleik og
ljósblá, í hangandi klösum á löngum
blómstöngli. Þrífst best í hálfskugga,
í rökum jarðvegi og þarf mikið vatn
en gerir annars litlar kröfur. Kýs að
standa lengi á sama stað, góð í ker.
Brúskur eru ætar og kallast ,urui‘ í
Japan, þar sem þær eru eftirsóttar í
ýmsa rétti. Heimkynni í Japan og
Norðaustur-Asíu.
Dalía. Að öllum líkindum
vinsælustu jurtir í heimi sem
ræktaðar eru sem vorlaukar. Þær
eru gullfalleg blóm og til í fjölda
afbrigða. Blómlögun og blómlitir eru
fjölbreytt. Upprunalega koma dalíur
frá Mexíkó þar sem þær vaxa villtar.
Dalíur urðu snemma vinsælar til
ræktunar og mikið um kynbætur og
blöndun innan tegunda. Hnýðin eru
sett í mold í kringum mánaðamótin
mars/apríl. Rótarhálsinn á að standa
upp úr moldinni og þess þarf að
gæta að moldin sé rök en ekki of
blaut. Yfirleitt þarf að binda stærri
dalíur upp eftir að þær eru settar
út. Rótarhnýðin þola ekki frost og
geymast best í þurrum sandi við 2
til 7ºC.
Lilja. Upprunnin í Asíu og
Norður-Ameríku. Yfirleitt um
metri á hæð og getur þurft stuðning.
Ræktunarafbrigði skipta þúsundum
og þegar vel tekst til blómstra liljur
stórum og litríkum blómum. Dafna
best í frjósamri mold með góðu
frárennsli, enda rotna laukarnir ef
þeir standa í bleytu.
Skógarsóley/anemóna. Vex
af hnýði og getur orðið 20 til 40
sentímetra há. Anemónur eru
fáanlegar í nokkrum litum; bláar,
rauðar, hvítar og gular. Gott er
að leggja hnýðin í bleyti í 2 til 3
tíma áður en þau eru sett í mold.
Gætið þess að brumin snúi upp
þegar hnýðin eru sett í moldina.
Heimkynni eru í Evrópu og Kína.
Þær eru viðkvæmar en dafna best
í rökum og frjósömum jarðvegi.
Hnýðin geymast best á þurrum stað
við 10 til 13ºC.
Garðyrkja & ræktun
Vorlaukar og hnýði
Lilja, Pink Pixie.
Lilja, Lemmon Pixie.
Hrossarækt og
hestamennska
Almennir fundir um málefni hrossaræktar og hestamennsku
verða haldnir á eftirtöldum stöðum á næstu vikum.
Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.
Mánudaginn 5. mars. Reiðhöllinni í Víðidal, Reykjavík.
Þriðjudaginn 6. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.
Mánudaginn 12. mars. Ljósvetningabúð, Suður - Þing.
Þriðjudaginn 13. mars. Svaðastaðahöllinni, Sauðárkróki.
Miðvikudaginn 14. mars. Sjálfstæðissalnum, Blönduósi
Mánudaginn 19. mars. Gistiheimilinu, Egilsstöðum.
Frummælendur verða:
Kristinn Guðnason formaður Fé-
lags hrossabænda og fagráðs í
hrossarækt, Guðlaugur V. Antonsson
hrossaræktarráðunautur Bændasam-
taka Íslands og Lárus Hannesson
formaður Gæðingadómarafélags LH.
Bújörð í Eyjafirði til sölu
Tilboð óskast í jörðina Garðshorn á Þelamörk í Hörgársveit.
Stærð jarðarinnar er um 410 ha, þar af um 100 ha afgirtir.
Ræktað land um 29 ha. Á jörðinni er rekið sauðfjárbú.
Húsakostur: Íbúðarhús, 198,5 fm., byggt 1934, mikið endurnýjað.
Fjárhús byggð 1988 f. 300 fjár. Hlaða byggð 1982, um 1200 rúmm.,
auk eldri útihúsa ( fjárhús, hlöður, geymslur).
Jörðin er í um 23ja km fjarlægð frá Akureyri.
Seljendur áskilja sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar í síma 462-6872 og 861-6872,
eða hjá Fasteignasölunni ehf á Akureyri sími 861-5025.