Fréttablaðið - 24.02.2012, Page 4
24. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR4
ORKUMÁL Nýjar rannsóknir á Dreka-
svæðinu staðfesta að olía hefur
myndast þar, en skera ekki úr um
hvort hún hefur safnast upp og sé
þar enn í nægilegu magni til að
hægt sé að bora eftir henni, segir
Þórarinn Sveinn Arnarsson, verk-
efnisstjóri hjá Orkustofnun.
„Þarna er virkt kolefniskerfi, sem
er lykilforsenda fyrir því að líkur
séu á að finna olíu eða gas,“ segir
Þórarinn. Hann segir fleiri skilyrði
þurfa að vera fyrir hendi til að olían
eða gasið festist í lindum, og rann-
sóknin taki ekki á þeim þáttum.
Rannsakendur söfnuðu ríflega
200 kílóum af grjóti og seti af hafs-
botni. Meðal þess sem fannst var
setberg frá ýmsum tímum miðlífs-
aldar, sem var fyrir 250 til 65 millj-
ónum ára.
Í sýnunum fundust ummerki um
olíu úr bergi frá Júratímabilinu,
fyrir 200 til 150 milljónum ára. Það
staðfestir að olía hefur myndast, en
ekki hvort hún sé enn til staðar á
svæðinu.
Niðurstöður rannsóknarinnar
hafa þýðingu fyrir yfirstandandi
útboð sérleyfa á Drekasvæðinu,
samkvæmt upplýsingum frá Orku-
stofnun. - bj
Rannsóknir á allt að 200 milljóna ára gömlu bergi á Drekasvæðinu auka vonir:
Sýna að olía myndaðist á svæðinu
BORAÐ Niðurstöður rannsóknanna sýna
að olía hefur myndast á svæðinu, en
gefa engar vísbendingar um hvort hún
hafi safnast þar saman og sé þar enn.
eigi við um margar aðrar ákvarð-
anir sem snúi að honum og
öðrum heildsölum.
Sigurður höfðaði mál fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur til að
fá ráðgefandi álit EFTA-dóm-
stólsins um heimildir ÁTVR.
Stofnunin tók til varna fyrir
dómi og taldi enga ástæðu til að
fá slíkt álit. Dómurinn tók undir
kröfu Sigurðar, og Hæstiréttur
staðfesti nýverið að afla skuli
álits dómstólsins.
Í átta blaðsíðna greinargerð sem
unnin var af sjálfstætt starfandi
lögmanni fyrir ÁTVR vegna epla-
drykkjarins er rýnt ítarlega
í myndir á umbúðunum og
þær sagðar til þess fallnar
að gera drykkinn „spenn-
andi og ögrandi á nautna-
legan hátt“, og að „kynferð-
isleg skírskotun“ blasi við.
Umbúðir eplamjaðar-
ins segir lögmaðurinn
vera í „síðrómantískum
stíl“ sem minni helst á
„Moulin Rouge þema“
með smágerðum fígúr-
um, blómum, fuglum
og öðru „dúlleríi“.
Þar segir jafnframt:
„Ekki er þörf á því að
vera kaþólskari en
páfinn til að sjá að
slíkur undirtónn hlað-
inn slíkum gildum,
samrýmist engan veginn áfengis-
stefnu íslenskra stjórnvalda, hvaða
skoðun sem menn annars kunna að
hafa á berum kvenmannskropp-
um.“
Í reglum sem gilda um vöruúr-
val í ÁTVR segir meðal annars að
umbúðir vöru megi aðeins inni-
halda skilaboð sem tengist vör-
unni. Ekki megi vera þar skila-
boð sem innihaldi gildishlaðnar
upplýsingar, eða gefi til kynna að
áfengi auki líkamlega, andlega,
félagslega eða kynferðislega getu.
Þá megi þær ekki brjóta í bága við
almennt velsæmi, meðal annars
með því að vera klámfengnar.
Lögmaðurinn lagði til að ÁTVR
hafnaði því að taka vöruna í sölu
meðal annars vegna þess að það
gæti opnað dyr fyrir enn grófari
umbúðir. brjann@frettabladid.is
GENGIÐ 23.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,3676
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,92 124,52
194,74 195,68
164,90 165,82
22,169 22,299
22,063 22,193
18,681 18,791
1,5461 1,5551
191,80 192,94
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
STJÓRNSÝSLA EFTA-dómstóllinn
mun gefa ráðgefandi álit á heim-
ildum Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins (ÁTVR) til að hafna því að
taka áfengistegundir í sölu. Áfeng-
isheildsalar hafa deilt hart á stofn-
unina fyrir að neita að selja áfeng-
istegundir vegna umbúðanna.
Sigurður Bernhöft, fram-
kvæmdastjóri áfengisheildsöl-
unnar HOB vín, segir ákvarðanir
stjórnenda ÁTVR iðulega gerræð-
islegar og byggja á afar hæpnum
forsendum.
ÁTVR hafnaði því á síðasta ári
að taka Tempt-eplamjöð (cider) í
dósum í tilraunasölu meðal ann-
ars á þeim forsendum að umbúð-
irnar væru með kynferðislegum
skírskotunum og brytu í bága við
almennt velsæmi.
Sigurður segir synjun ÁTVR
algerlega ómálefnalega, og það
EFTA mun skera úr
um heimildir ÁTVR
Heildsali sakar ÁTVR um gerræðislegar ákvarðanir um hvaða vörur séu teknar
í sölu. Í lögfræðiáliti vegna epladrykkjar sem ÁTVR hafnaði segir að teikningar
á umbúðum séu í „síðrómantískum stíl“ og minni á „Moulin Rouge“ þema.
BANNAÐUR Myndir og texti á
umbúðum Tempt-eplamjaðarins þóttu
kynferðislegar og ákvað ÁTVR að heimila
ekki sölu á drykknum.
LEYFÐUR ÁTVR ákvað
að eigin frumkvæði að
taka þennan Hoegaarden
bjór í sölu þrátt fyrir að
á flöskumiða sé mynd af
svo gott sem nöktu fólki.
ÁTVR hefur ítrekað hafnað því
að selja áfengistegundir þar sem
umbúðirnar hafa ekki þótt í
samræmi við reglur.
Bjórinn Svarti dauði: Textinn
„Drekkið í friði“ á flöskumiða
þótti ekki við hæfi.
Motörhead rauðvín: Þótti vera
tilvísun í amfetamínneyslu auk
þess sem hljómsveitin syngi um
stríð, óábyrgt kynlíf og fíkniefni.
Bjórinn Heilagur Papi: Mynd
af munki með kross í hendi
þótti brjóta í bága við almennt
velsæmi með skírskotun til trúar-
bragða.
Áfengi hafnað
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
EFNAHAGSMÁL Tveir af fimm með-
limum peningastefnunefndar
Seðlabanka
Íslands vildu
hækka vexti
við síðustu
vaxtaákvörð-
un. Þrír vildu
hins vegar
halda vöxtum
óbreyttum sem
varð ofan á.
Þetta kemur
fram í fundar-
gerð frá síðasta vaxtaákvörðun-
arfundi.
Í peningastefnunefndinni eiga
sæti Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri, Arnór Sighvatsson
aðstoðarseðlabankastjóri, Þórar-
inn G. Pétursson, aðalhagfræð-
ingur seðlabankans, auk Gylfa
Zoëga og Anne Sibert sem bæði
eru prófessorar í hagfræði. - mþl
Peningastefnunefnd SÍ:
Tveir vildu
hækka vexti
SVÍÞJÓÐ Sænskir bakarar voru í
allan gærdag önnum kafnir við
að baka hefðbundnar prinsessu-
tertur í tilefni fæðingar nýrrar
prinsessu.
Viktoría krónprinsessa af Sví-
þjóð og Daníel prins eignuðust
dóttur snemma í gærmorgun og
hélt fjölskyldan heim frá Karol-
ínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
til Haga-hallarinnar þegar í gær-
dag.
Gamlir og nýir stjórnmálafor-
ingjar óskuðu Viktoríu og Daníel
til hamingju á Facebook og Twitt-
er og fréttavefir birtu uppskrift-
ir af prinsessutertum. Terturn-
ar höfðu nefnilega selst upp í
bakaríum víða um land. - ibs
Erfingja fagnað:
Ný prinsessa
fædd í Svíþjóð
NÝBAKAÐIR FORELDRAR Viktoría krón-
prinsessa og Daníel prins.
SJÁVARÚTVEGUR Meðafli á laxi á
Íslandsmiðum virðist nema um 5
til 6 löxum á hverjar 1.000 lestir
sem veiðast af makríl. Rann-
sóknirnar benda til að laxinn sem
veiðist sem meðafli á Íslandsmið-
um sé ekki upprunninn á Íslandi.
Á árinu 2010 hóf Fiskistofa
skipulagða skoðun á meðafla í
flotvörpuveiðum með sérstaka
áherslu á lax. Veiðimálastofnun
og MATÍS hafa annast líffræði-
lega skoðun á laxinum og erfða-
fræðilega greiningu á sýnunum.
Undanfarin tvö sumur bárust
Fiskistofu alls 402 laxasýni frá
flotvörpuveiðiskipum. Þar sem
hér er um brautryðjendastarf að
ræða verða upplýsingarnar kynnt-
ar á vettvangi Alþjóða Hafrann-
sóknaráðsins (ICES). - shá
Meðafli í makrílveiðum:
Sex laxar á hver
þúsund tonn
MÁR
GUÐMUNDSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
12°
11°
7°
12°
10°
5°
5°
19°
15°
16°
15°
30°
3°
14°
18°
2°Á MORGUN
3-10 m/s en vaxandi
SA-átt annað kvöld.
SUNNUDAGUR
8-15 m/s.
0
0
0
0
-2
-4
2
2
2
3
5
15
3
3
4
8
5
8
13
7
7
5
4
3
0
2
-1 3
5
5
2
6
GOTT Á MORGUN
Betra veður á
morgun en á
sunnudag og helst
um landið norðan-
og austanvert.
Seint annað kvöld
fer að hvessa með
töluverðri úrkomu
um sunnanvert
landið. Þá hlýnar
heldur en kólnar á
ný er líður á sunnu-
daginn.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGREGLA Allnokkurt magn af
fíkniefnum fannst í húsleit lög-
reglu í Mosfellsbæ á þriðjudag.
Um var að ræða 900 grömm af
marijúana og um 1,4 kíló af öðru
kannabisefni. Fíkniefnin fundust
í þurrkunaraðstöðu í risi hússins.
Húsráðendur, karl og kona um
þrítugt, voru yfirheyrð vegna
málsins. „Áður hafði lögreglan
haft afskipti af manninum annars
staðar og þá fundið á fjórða tug
kannabisgræðlinga í bíl hans,“
segir í tilkynningu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. - óká
Dóp fannst í Mosfellsbæ:
Kannabisefni
og græðlingar
Dópaðir undir stýri
Þrír ökumenn á höfuðborgarsvæðinu
voru stöðvaðir af lögreglu á fyrsta og
öðrum tímanum aðfaranótt fimmtu-
dags grunaðir um vímuefnaakstur. Í
einu tilviki reyndist bifreiðin sem ekið
var ótryggð og því númerin klippt af
henni á staðnum.
Sjónvarpi stolið
Sjónvarpstæki var stolið í innbroti í
Húsaskóla við Dalhús í Reykjavík á
öðrum tímanum aðfaranótt fimmtu-
dags. Lögreglumenn á leið á staðinn
sáu til tveggja manna og tóku niður
nöfn þeirra. „Eftir vettvangsvinnu
fóru þeir á heimili annars þeirra og
fundu þar sjónvarpið,“ segir í skýrslu
lögreglu.
LÖGREGLUMÁL