Fréttablaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Aðalfundur Beint frá býli verður haldinn að Sól-
heimum í Grímsnesi á morgun milli 13.45 og 18. Meðal efnis
á dagskrá verður kynning á skýrslu Háskólans á Akureyri um
lagaumhverfi heimavinnslu landbúnaðarafurða á Íslandi.
Sjá nánar á www.beintfrabyli.is
H
elga Soffía Kon-
ráðsdóttir, prestur í
Háteigskirkju, segist
ekki vera mikið fyrir
að elda mat. Hún kann þó að
njóta hans. Helga Soffía leggur
meiri áherslu á að baka og býður
gestum í kaffi hvern sunnudag,
enda er hún mikil fjölskyldu-
manneskja.
Helga Soffía kynntist fyrr-
verandi eiginmanni sínum, Tos-
hiki Toma, þegar þau voru bæði
við nám í Ísrael. Síðan fluttu þau
til heimalands hans, Japans, og
bjuggu þar í tvö ár. „Móðir mín
var flinkur kokkur þannig að
ég þurfti aldrei að gera neitt í
eldhúsinu. Það varð til þess að
ég fékk aldrei neinn sérstakan
áhuga á eldamennsku,“ segir
Helga Soffía. „Þegar ég kynnt-
ist Toshiki reyndist hann vera
afar snjall kokkur og tók að
sér matargerðina á heimilinu.
Ég kynntist japanskri matar-
gerð í gegnum Toshiki en hann
var sérlega hugmyndaríkur og
fylgdist vel með matreiðsluþátt-
um í sjónvarpinu. Það var allt
nýtt fyrir mér á þessum tíma
og margt framandi. Ég var hús-
móðir í Japan þar sem í boði var
ýmislegt framandi hráefni. Hrár
fiskur er mikið borðaður í Japan
en ég kunni ekkert með hann að
fara. Ég naut þess að borða, enda
líkaði mér maturinn. Matarhefð-
in í Japan er auk þess skemmti-
leg. Lengi er setið til borðs og
margir smáréttir bornir fram,“
segir Helga Soffía.
Hún segir að eftir að þau
fluttu til Íslands hafi haldist sú
hefð að eiginmaðurinn eldaði.
„Nú bý ég með tveimur börnum
mínum, 18 og 21 árs, en þegar ég
elda þá erum við bara að næra
okkur. Vegna þess hversu mikið
er að gera hjá mér þá dett ég oft
í það að hafa eitthvað fljótlegt í
matinn. Yngra barnið er svolítið
farið að prófa sig áfram í matar-
gerð og hefur erft þann áhuga
frá föður sínum. Mér finnst
ágætt að vera í hinu félagslega
hlutverki, leggja fallega á borð
og rabba við gesti. Til að geta
haldið góðu samneyti við fjöl-
skyldu og vini fór ég að sinna
bakstri og býð í huggulegt sunnu-
dagskaffi. Það finnst mér mjög
gaman,“ segir Helga Soffía sem
gefur hér uppskrift að romm-
kúlutertu sem hún fann í eftir-
réttabók frá Hagkaup og er afar
vinsæl hjá henni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
2
Þú velur 2 aðalrétti af 14 á
matseðli og greiðir eingöngu
fyrir báða réttina
Nú gerum við okkur glaðan dag
Gril lhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, www.gri l lhusid.is
GRRRillandi gott
í allan vetur
Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur í Háteigskirkju, býður heim á sunnudögum.
Alltaf með
sunnudagskaffi