Fréttablaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 46
24. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Gítarleikarinn Arnar Grét-
arsson lagði bjórinn á hill-
una og hellti sér út í Cross-
fit. Hljómsveitin hans Sign
er þó ekki hætt og situr á
miklu magni af efni.
HEILSA „Ég fæ alls konar flugur í
hausinn, og allt í einu langaði mig
bara að verða góður í Crossfit,“
segir Arnar Grétarsson, gítarleik-
ari hljómsveitarinnar Sign og með-
limur í keppnisliðinu Dóra í Cross-
fit.
Arnar æfir sex til átta sinnum í
viku í Crossfit Sport í Kópavogi og
segir mataræðið hafa breyst sjálf-
krafa með auknum æfingum. „Svo
er orðið algjört spari að fara á fyll-
erí. Ég hef til dæmis ekkert drukk-
ið það sem af er ári, en áfengi og
Crossfitt fara ekki vel saman. Ég
fæ mér þó í glas við viss tilefni og
þá gefur maður líka allt í þetta,“
segir Arnar sem var að eigin sögn
duglegur að sækja barina áður
fyrr.
Á Crossfit-leikunum um síðustu
helgi lenti Arnar í áttunda sæti í
karlaflokki, en þar kepptu 86 fíl-
efldir karlar. Árangurinn er sér-
staklega áhugaverður í ljósi þess
að aðeins átta mánuðir eru síðan
hann byrjaði í crossfit.
Arnar segir ýmislegt líkt með
crossfit og rokkinu. „Það er nú
ákveðið rokk í geðveikinni í Cross-
fit. En svo er til dæmis þessi ólýs-
anlegi aukakraftur sem maður fær
út úr því að spila fyrir áhorfendur.
Ég fann líka fyrir því við að gera
æfingar fyrir framan áhorfendur
um helgina,“ segir Arnar, en bætir
þó við að hann hafi hlaupið á sig í
seinustu greininni og sprengt sig
of fljótt með þeim afleiðingum að
hann var fjarri því að ná sínum
besta árangri.
Hljómsveit Arnars, Sign, er nú
í pásu en þó hvergi nærri hætt.
„Við eigum fullt af efni sem við
komum til með að gefa út, en það
hefur ekkert verið ákveðið hve-
nær,“ segir Arnar sem stefnir á
að klára listnám við Iðnskólann í
Hafnarfirði í vor og í framhaldi
læra arkitektúr erlendis.
En óttast Arnar ekkert að heilsu-
samlega lífernið fari forgörðum
þegar Sign kemur saman aftur?
„Nei alls ekki. Crossfit kenn-
ir manni að nota náttúruna til að
halda sér við þannig að ef ég væri
að túra gæti ég þess vegna skokk-
að niður að strönd og lyft steinum.
Svo er ég líka kominn með kærustu
og orðinn rólegri,“ segir Arnar og
bætir við að þó að menn séu rokk-
arar þurfi þeir ekki að djamma öll
kvöld. tinnaros@frettabladid.is
ROKK Í GEÐVEIKINNI Í CROSSFIT
Mataræðið breyttist hjá Arnari þegar hann fór að hreyfa
sig meira en hann segist þó ekki taka nein aukaefni,
hann fái allt sem hann þurfi úr fæðunni auk þess sem
hann taki lýsi. „Þetta er ekki beint meðvituð ákvörðun,
þetta gerist meira ósjálfrátt. Eins með drykkjuna, maður
fer ósjálfrátt að minnka hana, einkum þegar maður er
einhver drykkjuhestur,“ segir Arnar sem er búinn að prófa
ýmislegt og er nú kominn með mataræði sem hentar
honum.
08.00 Hafragrautur með bláberjum
09.30 Epli með hnetusmjöri og kannski smá skyr
Hádegismatur: Týpískur hádegismatur er pakki af beikoni
og 5 egg. Stundum er það samt kjöt og sætar kartöflur.
15.30 Tvær túnfisksdollur og grænmeti
Kvöldmatur: Oftast kjöt eða fiskur og sætar kartöflur eða
rófur.
Svo fær hann sér yfirleitt hálfan lítra af skyri fyrir
svefninn.
MATARDAGBÓK ARNARS
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TRYGGIR SÉR KLÁMLÉN Sir Richard
Branson hefur tryggt sér einkarétt
á vefslóðinni Richardbranson.xxx.
Hann átti í deilum
við Ástralann Sean
Truman sem keypti
vefslóðina í fyrra.
Samkvæmt frétt
BBC var óttast að
Truman ætlaði
sér að misnota
nafn auðjöfurs-
ins Bransons
og því var
ákveðið að
taka slóðina
af honum.
Stafirnir xxx
hafa hingað til
verið notaðir til
að hýsa klám-
síður.
FACEBOOK Í SJÓNVARPINU Face-
book og Twitter verða bráðum hluti
af sjónvarpsáhorfi fólks. Þannig getur
fólk tjáð sig um þættina sem það
er að horfa á og séð hvað vinunum
finnst í gegnum samskiptamiðlana
efst á sjónvarpsskjánum. Tilraun með
þetta verður gerð í Ástralíu í júní.
TÆKNI
HEILSA Meðalerfið eða erfið lík-
amsrækt á meðgöngu er ekki
skaðleg heilsu ófæddra barna
samkvæmt nýrri rannsókn sem
birtist í marsútgáfu tímaritsins
Obstetrics & Gynecology.
Að sögn Dr. Lindu Szymanski,
meðhöfundar rannsóknarinn-
ar, þurfa konur ekki að óttast
að erfið hreyfing skaði fóstur,
og hvetur kyrrsetukonur til að
hreyfa sig reglulega. Hún bendir
á að hjólreiðar og göngur henti
verðandi mæðrum vel.
Hreyfing
á meðgöngu
ekki skaðleg
TÍSKA Fatahönnuðurinn Marc
Jacobs gerðist sekur um að nota
of ungar fyrirsætur á sýningum
sínum á tískuvikunni í New York.
Félag fatahönnuða í Bandaríkjun-
um, CFDA, gaf út ákveðnar reglur
fyrir tískuvikuna þar sem hönnuð-
um var gert að ráða aðeins fyrir-
sætur sem höfðu náð 16 ára aldri.
The New York Times fletti hins
vegar ofan af því að tvær fyrir-
sætur í sýningum Marcs Jacobs á
nýafstaðinni tískuviku höfðu verið
einungis 15 ára gamlar.
Fyrirsæturnar sem um ræðir
eru þær Thairine Garcia og
Ondria Hardin en Marc Jacobs vill
meina að hann hafi fengið sam-
þykki hjá foreldrum stúlknanna.
„Ég ræð útliti sýningarinnar og
enginn annar getur stjórnað því.
Ef foreldrar gefa leyfi sé ég enga
ástæða fyrir að banna stúlkunum
að taka þátt í sýningunni,“ segir
Jacobs kokhraustur í samtali við
tímaritið á meðan forseti CFDA,
Steven Kolb var ekki ánægður með
hönnuðinn. „Við teljum að það sé
mjög mikilvægt að stúlkurnar séu
orðnar 16 ára gamlar. Það er mikil
synd ef hönnuðirnir eru ekki sam-
mála því.“
Marc Jacobs notaði
of ungar fyrirsætur
RÆÐUR Marc Jacobs hunsaði reglur
Félags fatahönnuða í Bandaríkjunum og
var með fyrirsætur undir 16 ára aldri í
sýningu sinni á tískuvikunni í New York.
NORDICPHOTOS/GETTY
HEILSA Bjartsýni, jákvætt hugar-
far og húmor er talið draga úr
áhyggjum og streitu þeirra sem
óttast að fara til tannlæknis,
samkvæmt nýrri rannsókn. Einn-
ig getur spjall á léttum nótum við
starfsfólk tannlæknastofa dreift
huganum og skapað þægilegt
andrúmsloft.
Samkvæmt rannsókn háskól-
ans í Gautaborg gengur jákvæð-
um sjúklingum með góða
kímnigáfu betur að takast á við
heimsókn til tannlæknis heldur
en þeim sem örvænta og mikla
hlutina fyrir sér.
Ef þú forðast tannlækna eins
og heitan eldinn, er því um að
gera að segja einn eða tvo brand-
ara í næstu heimsókn.
Húmor gegn
hræðslu við
tannlækna
GLENS HJÁLPAR Grín á tannlæknastof-
unni getur gert gæfumuninn.
MEGA SELJA IPAD Í SJANGHÆ Fyrirtækið Apple getur haldið áfram að selja iPad
í Sjanghæ. Kínverska fyrirtækið Proview hafði krafist þess að lögbann yrði sett á vöruna. Það
segist hafa komið fram með nafnið iPad árið 2000. Apple kveðst á hinn bóginn hafa tryggt
sér réttinn á nafninu á heimsvísu árið 2009.
krakkar@frettabladid.is
Greta Salóme
Stefánsdóttur
er farin að hlakka
verulega til að fara
til Aserbaídsjan með
Jónsa vini sínum, en
þau verða fulltrúar
Íslands í Eurovision-
söngvakeppninni sem
fram fer í maí.
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
Hefur þú gert
góðverk í dag?
lifsstill@frettabladid.is
26