Fréttablaðið - 24.02.2012, Qupperneq 8
SAMGÖNGUR Flugrekstur leiðir
af sér verulegan þjóðhagslegan
ábata fyrir efnahag Íslands og
íslenska borgara, auk þess sem
sumir þættir flugrekstrarins eru
þess eðlis að ekkert getur komið
í þeirra stað og þeir eru algerlega
ómissandi fyrir nútímahagkerfi.
Þetta er meginniðurstaða nýrrar
landsskýrslu Oxford Economics
um efnahagslegan ábata af flug-
rekstri á Íslandi.
Skýrslan var kynnt á fundi á
Hótel Nordica í gærmorgun, þar
sem sérfræðingur Alþjóðasam-
taka flugfélaga (IATA) fór yfir
efni hennar.
Meðal helstu nið-
urstaðna eru að hér
á landi séu flugsam-
göngur bæði betri
og mikilvægari en í
öðrum löndum og að
flugsamgöngur hér
væru betri en í ríflega
50 samanburðarlönd-
um. Þá væri efnahags-
legt mikilvægi grein-
arinnar mun meira hér
en á hinum Norður-
löndunum.
Bent er á að efna-
hagslegur ábati sem
leiðir af greininni fel-
ist í fleiri þáttum en
þeim sem sjónum er
venjulega beint að,
sem eru þjóðhags-
leg heildaráhrif sem metin eru
út frá framlagi til vergrar lands-
framleiðslu, skatttekjum og fjölda
starfa í greininni og aðfangakeðju
hennar. „Aðalábatans nýtur við-
skiptavinurinn, farþeginn eða
farmsendandinn sem notar flug-
ið.“ Þá eru tengingar milli borga
og markaða sagðar fela í sér verð-
mætt samgöngukerfi, sem skapi
ábata með því að greiða fyrir
beinni erlendri fjárfestingu, starf-
semi fyrirtækjaklasa, sérhæfingu
og öðrum afleiddum áhrifum á
framleiðslugetu hagkerfa.
Bent er á að flugrekst-
urinn skili 102,2 millj-
örðum króna, eða 6,6
prósentum, til vergrar
landsframleiðslu. Þá
standi hann undir 9.200
störfum, auk þess sem
11.400 manns starfi við
afleidd störf í ferðaþjón-
ustu.
„Alls ferðaðist 2,1 millj-
ón farþega árið 2010 til
og frá Íslandi og 35.000
tonn af verðmætri flug-
frakt voru flutt sömu leið.
Árlega eru farnar 14.400
alþjóðlegar áætlunarferð-
ir frá Íslandi til 56 flug-
valla í 18 löndum. Sæta-
framboð í innanlandsflugi
nemur meira en 547.000
sætum í 11.000 flugferð-
um til 5 flugvalla,“ að því er fram
kemur í skýrslu Oxford Economics.
Þá er flug sagt skipta sköpum í
dreifingu varnings. „Þótt flutn-
ingur með flugfrakt nemi einung-
is 0,5 prósentum af heildarflutn-
ingi varnings í alþjóðaviðskiptum
í tonnum talið nemur hann um 34,6
prósentum af heildinni að verð-
mæti.“
olikr@frettabladid.is
24. febrúar 2012 FÖSTUDAGUR
Verulegur
ábati er af
flugstarfsemi
Þáttur flugrekstrar í hagvexti nemur 6,6 prósentum,
samkvæmt nýrri skýrslu, sem kynnt var í gær. Flug-
samgöngur eru hér með því besta sem gerist.
Á MORGUNVERÐARFUNDI Sérfræðingur IATA, Alþjóðasamtaka flugfélaga, kynnti í gær
nýja skýrslu Oxford Economics um áhrif flugstarfsemi á efnahagslífið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
þús-
und
tonn
af verðmætri
flugfrakt voru flutt
til og frá landinu
með flugi árið
2010. Sama ár
ferðuðust 2,1
milljón flug-
farþega til og frá
landinu.
LANDSSKÝRSLA
LONDON ECONOMICS
35
Íslenska ánægjuvogin er notuð til þess að mæla
ánægju viðskiptavina og er samstarfsverkefni
Capacent, Samtaka iðnaðarins og Stjórnvísi.
Markmið BYKO síðastliðin 50 ár hefur verið að
viðskiptavinir okkar séu ánægðir, því ánægðir
viðskiptavinir eru traustir viðskiptavinir.
Við þökkum viðskiptavinum okkar enn og aftur traustið
Starfsfólk BYKO
S T J Ó R N V Í S I
ER OKKAR MARKMIÐ
ÁNÆGJA YKKAR
Í FLOKKI BYGGINGAVÖRUVERSLANA
FRÁ UPPHAFI MÆLINGA Á ÍSLANDI
2011
1. SÆTI Flugrekstur stendur undir 9.200 störfum hér á landi.■ 2.800 störf tilheyra flugrekstri með beinum hætti.
■ 4.000 störf eru studd óbeint af
aðfangakerfi flugrekstrarins.
■ 2.400 störf leiða af neyslu starfsmanna
flugrekstrarins og aðfangakeðju hans.
■ Þá starfa 11.400 manns við afleidd
störf, í ferðaþjónustu.
Stór vinnuveitandi
BANDARÍKIN, AP Mitt Romney er
engan veginn öruggur lengur með
sigur í forkosningum Repúblikana-
flokksins. Samkvæmt nýjum skoð-
anakönnunum er Rick Santorum
kominn með nokkurn veginn jafnt
fylgi meðal flokksmanna.
Báðir mælast með um þriðjungs
fylgi en Newt Gingrich og Ron Paul
með 15 prósent hvor.
Barack Obama hefur þó enn
býsna örugga stöðu gagnvart öllum
hugsanlegum mótframbjóðendum
sínum. Hann mælist með meira en
50 prósenta fylgi, sama hver repú-
blikananna fjögurra færi í fram-
boð á móti honum. Santorum hefur
ótvíræða yfirburði meðal íhalds-
samasta hluta Repúblikanaflokks-
ins, ekki síst vegna andstöðu hans
gegn fóstureyðingum og áherslu á
gamaldags fjölskyldugildi.
Fram undan eru tveir mikilvæg-
ir kosningadagar í forkosningabar-
áttu Repúblikanaflokksins, sem
væntanlega ráða úrslitum um það
hvort sigurganga Romneys, sem til
þessa hefur virst illsigrandi, held-
ur áfram. Þriðjudaginn 28. febrú-
ar verða forkosningar í Michigan
og Arizona en viku síðar, 6. mars,
verður kosið í tíu ríkjum. - gb
Romney og Santorum hafa nú svipað fylgi:
Hrófla ekki við Obama