Fréttablaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 34
14 • LÍFIÐ 24. FEBRÚAR 2012
ANNA JÚLÍANA ÞÓR-
ÓLFSDÓTTIR æfir
crossfit af krafti hjá
Líkamsræktarstöð-
inni Bjargi á Akureyri
þar sem hún er búsett.
Anna sleppir ekki úr
æfingu en hún æfir sex
daga vikunnar.
Hvað er það sem heillar
þig við crossfitið? Það
sem heillar mig við crossfit
eru þessar stuttu, snöggu
og fjölbreyttu æfingar. það
er aldrei of seint að byrja
að æfa, og crossfit er fyrir
alla!
Er crossfit öfgaíþrótt að
þínu mati eða getur hver
og einn farið á sínum
hraða? Það er hægt að
finna öfgar í öllum hlut-
um, en ég upplifi crossfitið
ekki þannig. Þegar ég fór
af stað í byrjun maí 2010,
þá undir leiðsögn Hrann-
ar Svansdóttur í Crossfit Reykjavík, var ég alltof þung og gat ekki hugs-
að mér að fara inn á líkamsræktarstöð. Hrönn var með mig í fjarþjálfun og
lagði fyrir mig æfingar sem ég gat gert heima í stofu og úti á lóð. Svo leið
ekki langur tími þar til að ég gat hugsað mér að fara á Bjarg. Ég hef alfar-
ið gert æfingarnar á mínum hraða og samkvæmt minni getu en ég hef líka
passað að staðna ekki og reyni alltaf að komast skrefi lengra í æfingunum.
Hvað færðu út úr æfingunum? Ég fæ góða líðan og mér finnst ég full
af orku og sjálfstrausti.
Áður fyrr hafði ég oft tekið skorpur og hreyft mig en datt alltaf út og hætti.
Þá var staða mín orðin þannig að ég gat ekki hugsað mér að fara inn á
líkamsræktarstöð. Mig óraði ekki fyrir því í maí fyrir tveimur árum að ég
yrði á þessum stað sem ég er á núna hvað varðar líkamsrækt og hreyf-
ingu og ef einhver hefði sagt það við mig þá hefði ég haldið hann eitthvað
bilaðan. Ég hef aldrei verið jafn hraust og í góðu líkamlegu formi og ég er
núna. Crossfit er frábært.
ERNA HLÍF JÓNSDÓTT-
IR, tveggja barna móðir
stundar crossfit hjá Cross-
fit Bootcamp fimm sinnum
í viku. Hún segist vera háð
tilfinningarússíbananum
sem fylgir því að taka þátt
í crossfit-mótum.
Ég heillaðist strax af crossfit
þar sem hér fer saman góð
blanda af bæði styrk og þoli.
Crossfit fyrir mér er fjölbreytt,
krefjandi og skemmtilegt þar
sem tvinnað er saman þol-
æfingum, ólympískum lyft-
ingum og fimleikaæfingum.
Hvað æfir þú oft? Ég æfi
að jafnaði fimm sinnum í
viku, mæti í crossfit tvisvar
til þrisvar í viku og tek boot-
camp-æfingar á móti.
Hefur þú keppt í íþrótt-
inni? Já, ég tók fyrst þátt í
liðakeppninni í Þrekmótaröð-
inni í fyrra og var það reynsla
og upplifun sem mér fannst
mjög skemmtileg. Það að
fara út fyrir þægindahring-
inn og gera eitthvað ögrandi
er jákvæð áskorun sem allir
ættu að hafa sem markmið.
Maður verður háður tilfinn-
ingarússíbananum sem fylgir
því að taka þátt í mótum sem
þessum þ.e. tilhlökkuninni,
stressinu og adrenalíninu
sem felst í því að hafa tekið
áskoruninni.
Æfingarnar eru lagaðar að
getu hvers og eins og því
geta allir stundað Crossfit á
eðlilegum nótum.
Hvað færðu út úr æfing-
unum? Ég hef æft íþróttir
frá því ég man eftir mér en
aldrei komist í jafn gott al-
hliða form eins og eftir að
ég byrjaði í crossfit. Síðast
en alls ekki síst þá er það
félagsskapurinn, metnað-
urinn og skemmtilegi and-
inn hjá Crossfit Bootcamp
sem gerir þetta að frábæru
áhugamáli.
Crossfit samanstendur af
fjölmörgum æfingum og því
eru margar mælistikur á ár-
angur í crossfit. Það að vera
stöðugt að keppa við mark-
mið sín, og ná þessum litlu
markmiðum, gerir þetta svo
spennandi og heldur manni
við efnið.
GOTT FORM
OG FRÁBÆR
FÉLAGSSKAPUR
LÍÐUR EINS OG
HLUTA AF HEILD
SÓLRÚN BIRGISDÓTTIR
æfir crossfit sex sinnum
í viku í Sporthúsinu. Hún
byrjaði að stunda íþrótt-
ina því hana langaði til að
umgangast fólk með heil-
brigðan lífsstíl.
Er crossfit öfgaíþrótt að
þínu mati? Það er hægt að
fara út í öfgar í öllum mögu-
legum hlutum í lífinu. Þetta
snýst allt um hvað þú vilt
sjálfur, það er enginn að ýta
þér út í öfgar í crossfit. Þú
velur sjálf hvar þú vilt vera og
gerir aldrei meira en þú getur
og vilt sjálf.
Hvað færð þú persónulega
út úr því að stunda cross-
fit? Ótrúlegan árangur, frá-
bæran félagsskap, mjög
fagmannlega leiðsögn. Það
besta í þessu öllu er að ég er
stöðugt að koma sjálfri mér
á óvart með því að gera hluti
sem mig hafði ekki órað fyrir
að ég ætti eftir að geta. Ég
held að allir í kringum mig
njóti góðs af því að ég sé í
crossfit því ég finn að ég er
miklu sáttari í lífinu, jákvæð-
ari, skapbetri og hamingju-
samari.
Hvað heillar þig við þessa
íþrótt? Frá fyrsta degi
fannst mér ég vera komin
á réttan stað. Mig langaði
að vera innan um fólk með
heilbrigðan lífsstíl. Það heill-
aði mig mest hversu vel var
tekið á móti mér, allir til-
búnir að aðstoða og deila
reynslu. Grunnnámskeið
lagði línurnar, þar var vel
farið í alla tækni, æfingarnar
fjölbreyttar og krefjandi og
áhersla lögð á markmiða-
setningu. Crossfit kemur
inn á nánast alla þætti sem
tengjast hreyfingu. Það sem
mér finnst standa upp úr er
hvað allir eru samstíga og
hvatningin og stuðningur-
inn er engu lík, hvort sem
er frá þjálfurum eða æfinga-
félögum. Allir hjálpast að og
manni líður eins og hluti af
heild.
Hefur þú tekið þátt í
crossfit-móti? Ég var búin
að setja mér það markmið
að taka þátt í móti þegar
eitt ár væri liðið frá fyrstu
crossfit-æfingunni sem var
31. mars 2011. Ég stóð við
það en ég veit ekki hvort ég
hefði sjálf tekið skrefið án
hjálpar góðra sem höfðu trú
á mér. Ég ákvað að slá til og
og tók þátt í liðakeppni 39+
á Crossfit-leikunum í febrúar.
Liðið mitt „crossfit bombur
seníors “ lenti í 2. sæti. Þetta
var heljarinnar skref fyrir mig
og gerði mikið fyrir sjálfs-
traustið. Spennan og gleðin
í kringum mótið varð bara til
þess að nú langar mig bara
að halda áfram.
31
ÁRS
43
ÁRA
46
ÁRA
Gjöf náttúrunnar
Árangur af vísindalegri rannsókn*- Eftir 28 daga notkun með Weleda Pomegranate dagkremi minnkuðu hrukkur um 14%,
mýkt húðarinnar jókst um 11%, frumu endurnýjun í húðinni jókst um 16% og vörn húðarinnar gegn skaðlegum geislum (free
radicals) var sýnileg. Weleda vörurnar eru Na True vottaðar. *Derma Consult Concept GMBH. Lesið meira um lífrænar
húðvörur á weleda.is
Í samhljómi við mann og náttúru
Síðan 1921