Fréttablaðið - 24.02.2012, Qupperneq 45
FÖSTUDAGUR 24. febrúar 2012 25
Bækur á borðum og í hill-
um, í stöflum og stæðum
er draumur bókaorms-
ins. Bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefanda,
sem verður opnaður í dag,
uppfyllir þann draum en nú
sem áður er ýmislegt for-
vitnilegt að finna á hinum
árlega markaði sem hefur
lengi verið fastur liður í
íslensku menningarlífi.
Nýlegar bækur og gamlar gersem-
ar blasa við þegar gengið er um
gólf Perlunnar en sú bygging hýsir
markaðinn, jafnvel í síðasta sinn
því rætt hefur verið um að bygg-
ingin verði seld og hver veit hvar
bókamarkaðurinn verður hýstur.
Starfsfólk markaðarins hefur þó
lítinn tíma til að velta því fyrir sér.
„Einna mesta breytingin hjá
okkur undanfarin ár er fjölgun
kiljanna, ég held að við leggjum
fjórfalt meira pláss undir kiljur en
fyrir fjórum árum,“ segir Kristján
Karl Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri markaðarins nú eins og síð-
astliðin sex ár. „Sú aukning skýr-
ist vitanlega af aukinni kiljuútgáfu,
nýjungarnar koma til okkar nokkr-
um árum síðar.”
Nýjar bækur eru þó ekki það
sem fangar augu blaðamanns í
fyrstu. Staflar og stæður af inn-
bundnum ástarsögum minna á aðra
útgáfutíma, þegar Theresa Charles
var fastur gestur á metsölulistum
fyrir jól. „Daníel MacCraig, stofn-
andi hins blómstrandi öryggis-
fyrirtækis „Escorts“ var hrífandi
persónuleiki og Alidu Burnham
þótti gott að vinna með honum, en
það var yngri frændi hans, Brock,
sem hún hefði getað elskað,“ segir
í upphafi baksíðutexta bókar sem
blaðamaður grípur af handahófi úr
bunka bóka áðurnefndrar Theresu
Charles.
Unnendur ástarsagna hafa úr
nógu að velja og sama má segja
um unnendur spennusagna frá
liðinni tíð. Alistair MacLean er
samt ekki sjáanlegur og Kristján
Karl segir hann löngu horfinn af
Bókamarkaðnum. „En hér er Des-
mond Bagley,“ segir hann og bend-
ir á bækur höfundar sem íslenskir
spennusagnafíklar rifu í sig á átt-
unda og níunda áratugnum. Bókin
Arfurinn virðist reyndar forvitni-
leg en þar er víst að finna, fyrir
utan æsilega atburðarás, innsýn í
Kenía nútímans, það er ársins 1982.
Og höfundur lýsir „flóknum sam-
skiptum Afríku, Asíu- og Evrópu-
manna, sem lifa og starfa þarna
hlið við hlið og bera allir í brjósti
heitar tilfinningar til landsins sem
þeir unna“.
Fortíðarþráin kviknar í barna-
bókadeildinni, þarna eru Frank og
Jói og Öddubækurnar. Þær síðar-
nefndu hafa verið endurútgefnar
og sama á við um Frank og Jóa,
sem einnig er til í upprunalegri
útgáfu og sömuleiðis sögur af
hinn skörpu Nancy Drew. „Barna-
bækurnar seljast alltaf vel,“ segir
Kristján Karl sem kannast vel við
hagsýna foreldra sem kaupa bækur
til að eiga til gjafa enda margt vit-
lausara en sú fyrirhyggja.
Kristján Karl segir úrval fræði-
bóka hafa aukist mjög undanfar-
ið. „Hér er hægt að gera góð kaup
í fræðibókum af ýmsum toga.
Háskólaútgáfan, Hið íslenska bók-
menntafélag og Sögufélagið eru
til dæmis öll hér með bækur.“
Bókahorn frá Braga bóksala, lista-
verkabækur, matreiðslubækur,
ljóð og skáldsögur er auðvitað líka
að finna á markaðnum sem verð-
ur opnaður í dag og stendur til 11.
mars. „Svo förum við til Akur-
eyrar, sem verður örugglega jafn
gaman og í fyrra,“ segir Kristján
Karl að lokum. sigridur@frettabladid.is
FORTÍÐARÞRÁIN KVIKNAR Á BÓKAMARKAÐI
BÓKAMARKAÐUR Kristján Karl Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðarins, segir úrval fræðibóka hafa aukist mikið undanfarið.
„Hér er hægt að gera góð kaup í fræðibókum af ýmsum toga. Háskólaútgáfan, Hið íslenska bókmenntafélag og Sögufélagið eru
til að mynda öll hér með bækur.” FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÓKAKARL OG NÚ
EINNIG BÓKAKONA
Flestir kannast við merki Bóka-
markaðarins, Bókakarlinn. Karlinn
kom fyrst fram
um 1960 og
var óbeint
afsprengi
dekkja-
karlsins frá
Michelin.
Lengi var
hann
svarthvít-
ur en fyrir
nokkrum
árum endur-
skapaði
Halldór
Baldurs-
son teiknari
hann og bætti í hann litum og lífi.
Í ár hefur einsemd bókakarlsins
verið rofin, Halldór hefur lífgað
upp á tilveru karlsins og gefið
honum góðan og bókelskan vin,
Bókakonuna, sem er niðursokkin
í lestur alla daga. „Bókakonan er
að sjálfsögðu áminning um að
konur eru í meirihluta lesenda og
það eru konur sem oftast
kaupa bækur
fyrir alla fjöl-
skylduna og
velja bækur
fyrir börnin
að lesa,” segir
Kristján B.
Jónasson,
formaður
Félags
bóka-
útgef-
enda.
Bíldshöfði 20
TIL LEIGU
Frábær staðsetning og miklir möguleikar. Eigum laus verslunar-, skrifstofu- og þjónusturými á 3. hæð, allt að 2500 m2.
Eins er hluti af kjallara laus.
Nánari upplýsingar veitir Steinn Jóhannsson í síma 842 4909 eða steinnj@smaragardur.is
Smáragarður, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík, sími 585 2900, www.smaragardur.is