Fréttablaðið - 06.03.2012, Síða 26
6. mars 2012 ÞRIÐJUDAGUR18
Tælingarhljóð mannskepnunnar, nánar tiltekið karldýrsins,
er þema hádegistónleika Hafnarborgar í Hafnarfirði í
dag. Þá mun Ágúst Ólafsson baritónsöngvari flytja nokkur
dæmi um serenöður eða mansöngva úr heimi klassískrar
tónlistar við undirleik Antoníu Hevesi. Meðal annars verð-
ur á vegi okkar flagarinn mikli Don Juan, einnig hallæris-
gaurinn, ljúflingurinn, hrokagikkurinn og fleiri týpur sem
gera tilraun til að heilla kvenþjóðina með söngröddinni.
Ágúst er Hafnfirðingur að uppruna og lærði söng við
Tónlistarskólann þar áður en hann hélt út í heim til frek-
ara náms. Hann hefur verið mikilvirkur óperusöngvari
á síðustu árum, auk þess að hafa sungið fjölda ljóðasöng-
stónleika bæði hér heima og erlendis. Hann hlaut Grímu-
verðlaunin 2009 sem söngvari ársins, Íslensku tónlistar-
verðlaunin 2010 sem rödd ársins og 2011 sem flytjandi
ársins ásamt Gerrit Schuil. Nú æfir hann hlutverk Marcello
í sýningu Íslensku óperunnar á La bohème í Hörpu.
Tónleikarnir í Hafnarborg hefjast á slaginu 12 og standa
yfir í hálftíma. Þeir eru ókeypis og öllum opnir meðan
húsrúm leyfir. - gun
Tælingarhljóð karla
BARITÓNSÖNGVARINN
Gott tækifæri gefst til
að hlýða á söng Ágústs
Ólafssonar ókeypis á
hádegistónleikum í
Hafnarborg á morgun.
Okkar ástkæri
Kristján Helgi
Guðmundsson
bóndi,
Minna-Núpi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi,
fimmtudaginn 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar.
Ámundi Kristjánsson
Herdís Kristjánsdóttir
Guðbjörg Ámundadóttir
Snorri og fjölskylda
Erla og fjölskylda
Guðrún og fjölskylda
Ástkær móðir mín, tengdamóðir
og amma,
Halldóra Árnadóttir
Ársölum 5, Kópavogi,
andaðist á heimili sínu þann 2. mars. Útför hennar fer
fram frá Digraneskirkju föstudaginn 9. mars kl. 13.00.
Árni S. Pétursson Silja Huld Árnadóttir
Elín Kolfinna, Birta og Sigtryggur Haukur ömmubörn.
Elsku maðurinn minn, pabbi okkar,
sonur og tengdasonur,
Steingrímur Jóhannesson
frá Vestmannaeyjum,
Hæðargarði 42, Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtudaginn
1. mars. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 12. mars kl. 13.00.
Jóna Dís Kristjánsdóttir
Kristjana María Steingrímsdóttir
Jóhanna Rún Steingrímsdóttir
Geirrún Tómasdóttir
María Gústafsdóttir Kristján Birgisson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Margrét Finnbogadóttir
andaðist laugardaginn 3. mars á Droplaugarstöðum.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Valgerður I. Jóhannesdóttir Sigurður Sverrir
Guðmundsson
Rafnhildur R. Jóhannesdóttir Agnar Olsen
og fjölskyldur.
Ástkær systir okkar, mágkona
og frænka,
Kristín Helgadóttir
Brekkubæ 3, Reykjavík,
sem lést 29. febrúar, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. mars kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna og Umhyggju.
Logi Helgason
O. Stefanía Helgadóttir Bergþór Engilbertsson
Bryndís Helgadóttir
Jón Tryggvi Helgason Hrönn Ísleifsdóttir
Helgi Þór Helgason Soffía Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
Sólveig Bjarnþórsdóttir
Víðihvammi 30, Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 2. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Birgir Sigurðsson
Nanna Lára Sigurjónsdóttir
Ástkær móðir okkar,
Lára Kristjana Ólafson
lést á Hrafnistu í Reykjavík 1. mars. Útförin fer fram frá
Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. mars kl. 13.00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu
minnast hennar er bent á Thorvaldsensfélagið,
Austurstræti 4, Reykjavík.
Jakob Páll Jóhannsson
Birna Jakobína Jóhannsdóttir
Lárus Jóhannsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Ólafsson
vélstjóri,
frá Grænumýri, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn
7. mars kl. 15.00.
Árný V. Ingólfsdóttir Kolbeinn Guðmundsson
Sigríður Ingólfsdóttir
Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Gunnar Auðunsson
skipstjóri,
áður til heimilis að Vallarbraut 8,
Seltjarnarnesi,
lést 2. mars á Dvalarheimilinu Grund. Útför fer fram
föstudaginn 9. mars kl. 11.00. frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Gróa Eyjólfsdóttir
Pétur G. Gunnarsson Lisa L. Gunnarsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Sigurðardóttir
frá Gvendareyjum,
Skólastíg 14, Stykkishólmi,
sem lést fimmtudaginn 23. febrúar, verður jarðsungin
frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 9. mars kl. 14.00.
Magdalena Kristinsdóttir Jón Pétursson
Sigrún Kristinsdóttir
Sesselja Kristinsdóttir Árni Valgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku drengurinn okkar, bróðir,
ömmubarn og frændi,
Gunnar Örn Gunnarsson,
sem lést af slysförum í Tansaníu laugardaginn 18.
febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 7. mars kl. 15.00
Mjöll Helgadóttir Gunnar Þorsteinsson
Össur Gunnarsson Eyrún Valsdóttir
Soffía Gunnarsdóttir Daníel Helgi Gunnarsson
Hrafnhildur Thoroddsen.
Hinn síkviki fugl sandlóan
verður í brennidepli á
fræðslufundi Fuglaverndar
sem haldinn verður í kvöld.
Þar lýsa þeir Vigfús Eyjólfs-
son og Böðvar Þórisson að
rannsóknum sem þeir hafa
stundað á henni um árabil,
hvor á sínu svæði – hvernig
þeir hafa fundið út skilnaða-
tíðni, varpárangur, ferðalög
og fjölmargt fleira í lifnað-
arháttum þessa smávaxna
vaðfugls.
Fundurinn er í húsakynn-
um Arionbanka í Borgartúni
19 og hefst klukkan 20.30.
Gengið er inn um aðalinn-
gang hússins á austurhlið.
Aðgangur er ókeypis fyrir
félaga í Fuglavernd en kost-
ar 500 krónur fyrir aðra. - gun
Ástir og örlög
sandlóunnar
SANDLÓA Sandlóan flýgur langt í suður á haustin og Íslendingar í
vetrardvöl á Kanarí-eyjum geta rekist þar á nágranna af þeim stofni.