Fréttablaðið - 12.04.2012, Side 10
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR10
SAMÞÆTTING
Við hjálpum þér að fá meira út úr fjárfestingu í viðskiptalausnum
með samþættingu við önnur upplýsingakerfi.
VIÐSKIPTALAUSNIR
Bjóðum uppá þrautreyndar viðskiptalausnir,
eins og Microsoft Dynamics NAV og LS Retail.
RÁÐGJÖF
Hjá Rue de Net starfar samstíga hópur sérfræðinga
með áralanga reynslu af rekstri og innleiðingu viðskiptakerfa.
KERFISÖRYGGI
Við tryggjum hámarks virkni og áreiðanleika
viðskiptalausna þinna.
Framúrskarandi
lausnir á einum stað
www.ruedenet i. s
Rue de Net Reykjavík - Vesturgötu 2a, 101 Reykjavík - Sími: 414 5050 - ruedenet@ruedenet.is
REYNSLA, ÞJÓNUSTA OG PERSÓNULEG RÁÐGJÖF
Rue de Net hefur yfir að ráða samstíga hópi sérfræðinga með áralanga reynslu af rekstri viðskiptakerfa,
innleiðingu og samþættingu viðskiptalausna. Við leggjum áherslu á nána og persónulega ráðgjöf þar sem
ráðgjafi Rue de Net kemur að verkferlinu frá byrjun til enda, frá sölu til afhendingar vöru, lausnar og þjónustu.
KAUPTHING FUND
Société d'Investissement à Capital Variable
14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 96.002
(the “Sicav“)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KAUPTHING FUND to attend the annual general
meeting to be held at the registered office of the Sicav on 19 April 2012 at 10.00 a.m. with the following agenda:
1. Report of the Board of Directors and of the Independent Auditor
2. Approval of the financial statements as at 31 December 2011
3. Allocation of the results
4. Discharge to the Directors
5. Renewal of the mandate of the Independent Auditor
6. Statutory elections
7. Miscellaneous
The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions
will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the Sicav.
Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors
(Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting.
GRIKKLAND, AP Lucas Papademos,
forsætisráðherra Grikklands,
boðaði í gær til
þingkosninga
í landinu þann
6. maí næst-
komandi.
„Meginmark-
mið ríkisstjórn-
arinnar hafa
náðst,“ sagði
Papademos á
fundi ríkis-
stjórnarinnar
í gær. Hann hefur stýrt bráða-
birgðastjórn sem tók við völdum í
nóvember eftir fjármálahrunið í
Grikklandi.
Ríkisstjórninni hefur nú tekist
að skera niður útgjöld og ná sam-
komulagi um skuldir ríkisins til
að bjarga Grikklandi frá þjóðar-
gjaldþroti. - bj
Kosið 6. maí í Grikklandi:
Ríkisstjórn náð
markmiði sínu
LUCAS PAPADEMOS
SPÁNN Ekki var nægur stuðningur
við áform bæjarstjórnar í
spænskum smábæ fyrir því að
hefja stórfellda ræktun á kanna-
bisi í íbúakosningum. Um 56 pró-
sent studdu ræktunina, en 75 pró-
sent hefðu þurft að vera henni
samþykk til að hún yrði að veru-
leika, samkvæmt frétt BBC.
Um 960 búa í bænum Rasquera
í Katalóníu, og hafa bæjarbúar
hingað til lifað á ræktun vínberja
og ólífa. Bæjarfélagið er fremur
skuldsett eftir ágjöf síðustu ára,
og duttu stjórnendur bæjarins
niður á frumlega leið til að afla
bænum tekna.
Þeir lögðu til að bærinn legði
land undir kannabisræktun, en
á Spáni er heimilt að rækta lítil-
ræði af maríjúana til einkanota.
Bæjarfulltrúarnir töldu öruggt að
ræktun á talsverðu magni af fíkni-
efninu væri heimiluð með þessum
lagaákvæðum.
Stjórnvöld á Spáni voru á
annarri skoðun, og hótuðu bæjar-
yfirvöldum að fara með málið
fyrir dómstóla ef bærinn gerði
alvöru úr þessum áformum.
Þótt meirihluti þeirra sem þátt
tóku í íbúakosningunni hafi verið
hlynntir því að rækta kannabis
óttaðist stór hluti bæjarbúa að lög-
fræðikostnaður gæti sligað bæjar-
sjóð, sem þegar stendur tæpt.
Ekkert verður því af því að þorpið
beiti þessari frumlegu aðferð til að
afla tekna, í bili að minnsta kosti.
- bj
Barist um kannabisræktun í spænskum smábæ:
Ekki meirihluti fyrir
kannabisræktuninni
UMDEILD PLANTA Heimilt er að rækta lítilræði af maríjúana til einkanota á Spáni, en
óvíst hvernig áform smábæjar um að rækta og selja eiturlyfið hefði fallið að þeim
lögum. NORDICPHOTOS/AFP
TRÉ Í BLÓMA Þessi maður virti fyrir sér
kirsuberjatré í blóma í Tókýó, höfuð-
borg Japans, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERSLUN Nokkur gagnrýni hefur
verið uppi vegna unglegra nær-
fatafyrirsæta í síðasta Hagkaups-
bæklingi. Fyrirsæturnar sem um
ræðir eru sextán og tuttugu ára.
Að minnsta kosti ein athugasemd
hefur verið send til Hagkaupa
vegna málsins, en ekkert svar
hefur borist.
Sigríður Gröndal, innkaupa-
stjóri sérvöru Hagkaupa, segir að
kvenfatamódelin í bæklingunum
eigi almennt að vera eldri en átján
ára, yfirleitt miðað við tvítugt.
„Okkar markhópur er konur á
öllum aldri,“ segir hún. „Þær eru
heldur grannar í þessu blaði og við
ætlum að reyna að hafa það í huga
fyrir næsta blað.“
Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, segir
allra reglna yfirleitt gætt. „Ef við-
skiptavinir hafa bent okkur á eitt-
hvað höfum við reynt að bregðast
við því,“ segir hann.
Kristín Pálsdóttir, talskona
Femínistafélags Íslands, segir
það enn athyglisverðara að flestar
konurnar í blaðinu séu klæðalitlar
og í bjóðandi stellingum.
„Mjöðmum er skotið út eða
hárið ýft til að undirstrika kyn-
þokka módelanna,“ segir hún.
„Annars eru þær með hendur
fyrir aftan hnakka eða lafandi í
óvirkri stellingu.“ Þá segir Kristín
að uppstillingar á karlmódelum
séu af allt öðrum toga og engan
kynferðis legan undirtón sé þar að
finna. - sv
Hagkaup með sextán ára undirfatamódel í nýjasta bæklingi sínum:
Gagnrýni vegna unglegra fyrirsæta
ÚR AUGLÝSINGABÆKLINGI HAGKAUPA
Að minnsta kosti ein athugasemd hefur
verið send til Hagkaupa þar sem unglegt
útlit fyrirsætanna er gagnrýnt.
PERÚ, AP Níu mönnum var bjargað
úr námu í Perú í gær, eftir að hafa
verið fastir þar í tæpa viku.
Mennirnir eru sagðir við góða
heilsu. Einn þeirra átti erfitt með
gang og var með súrefnisgrímu
þegar hann kom upp úr námunni.
„Við sögðum brandara til þess
að halda í vonina og hlupum á milli
staða til að halda á okkur hita,“
sagði einn mannanna, Edwin Bel-
lido Sarmiento. Annar, Javier Tapia
Lopez, sagði að á tímabili hefðu þeir
haldið að þeim yrði ekki bjargað.
Mennirnir voru fastir um 200
metra undir yfirborði jarðar frá
því á fimmtudag í síðustu viku þar
til í gær. Þeir fengu súrefni og mat
í gegnum rör niður í námuna.
Meira en fimmtíu manns létust
af slysförum í námum Perú í fyrra.
- þeb
Mennirnir höfðu verið fastir í tæpa viku:
Níu bjargað úr námu
FRELSINU FEGNIR Námamönnunum var bjargað einum í einu í gær og fjölskyldur
þeirra tóku á móti þeim.