Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 12
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR12
Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á
heidur.bjornsdottir@gmail.com eða í síma 618 7559. Verð kr. 6.100,-
Á námskeiðinu verður þessum spurningum m.a. svarað:
• Hvernig er best að byrja?
• Hvernig á að sá/forrækta?
• Hvernig er plantað út?
• Hvaða áhöld þarf?
•Hvernig fá plönturnar næringu?
• Hvað þarf til að fá uppskeru
allt sumarið?
• Hvaða jurtir eru fjölærar?
HEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR kennir hve auðvelt er að rækta grænmeti og kryddjurtir og
gefur góð ráð sem nýtast byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Námskeiðsgögn
fylgja sem hægt er
að nota ár eftir ár!
12
hagur heimilanna
ISAVIA býst við að umfang
flugstarfsemi í Keflavík
slái öll fyrri met í sumar.
Ráðist í endurbætur í Leifs-
stöð. Í sumar geta farþegar
á leið til Lundúna, Berlínar,
Alicante og Parísar valið á
milli fjögurra flugfélaga. Í
sumar er búist við að dag-
lega fari um 15 þúsund far-
þegar um Leifsstöð þegar
mest lætur.
Áætlað er að umfang flugstarf-
semi á Keflavíkurflugvelli slái öll
fyrri met í sumar.
„Veruleg aukning verður í leiða-
kerfum flugrekenda sem aldrei
hafa haft jafnmarga áfangastaði í
áætlunar- og leiguflugi til og frá
landinu,“ segir í tilkynningu sem
ISAVIA sendi nýverið frá sér. Alls
koma 17 flugfélög til með að halda
uppi ferðum til landsins í sumar og
tvö ný félög hyggja á áætlunarflug
allt árið.
Nýju félögin eru Wow air og
Easyjet, en með tilkomu þeirra eru
Lundúnir, eða flugvellir í nágrenni
borgarinnar, í áætlunarflugi hjá
fjórum flugfélögum, en bæði Ice-
landair og Iceland Express fljúga
þangað í áætlunarflugi.
Þótt flugfélögum sem fljúga frá
Keflavík hafi fjölgað mjög virðist
í fljótu bragði sem áfangastaðir
skarist ekki verulega þótt fjölgi
mjög úrvali áfangastaða í ein-
stökum löndum. Í fljótu bragði
virðist sem mest samkeppni verði
í flugi til Lundúna, Alicante,
Berlínar og Parísar, en fjögur flug-
félög bjóða upp á flug á þessa staði
í sumar. Síðan eru nokkuð fleiri
borgir sem þrjú flugfélög fljúga til.
Dæmi um það eru vinsælir áfanga-
staðir á borð við Kaupmannahöfn,
Ósló og Hamborg.
Þá bætast náttúrlega við
áfangastaðir sem íslensku flug-
félögin eru ekki með á sinni
flugáætlun. Til að mynda er
samkeppni í flugi héðan til Vínar-
borgar, en þar bítast um far-
þegana flugfélögin Austrian og
Niki Luftfahrt.
Í áðurnefndri tilkynningu
ISAVIA kemur fram að álag á
starfsemina á Keflavíkurflug-
velli aukist gríðarlega yfir sumar-
mánuðina. „Síðastliðið sumar voru
18 til 20 farþegaflug afgreidd á
Aldrei fleiri möguleikar í fluginu
Um leið og valkostum fjölgar bætast við hlutir sem huga þarf að þegar
bókað er flug til útlanda. Þannig verður fólk að gæta að því að örðugt kann
að vera að fá breytt flugmiðum sem keyptir hafa verið á netinu. Kapp er því
best með forsjá þegar kemur að ferðalögum á staði þar sem millilenda þarf
á leiðinni og jafnvel ferðast með mörgum flugfélögum.
Í slíkum tilvikum er örugglega ráðlegt að gera ráð fyrir því að flug geti
tafist og skoða vel samgöngur til og frá þeim flugvöllum sem nota á. Þannig
getur til að mynda verið misauðvelt, eða erfitt eftir atvikum, að ferðast á
milli flugvalla Lundúnaborgar.
Þá er nauðsynlegt að hafa auga með því að endanlegur kostnaður við
ferð getur aukist nokkuð frá auglýstu flugfargjaldi. Sum lággjaldaflugfélög
hafa þann háttinn á að greiða þarf sérstaklega fyrir farangur, mat um borð í
vélinni og fleira slíkt.
Mikilvægast er að gefa sér góðan tíma í skipulagningu ferðarinnar
og bókun. Þegar kemur að flugsamgöngum er það nefnilega þannig að
þeir sem bóka tímanlega og hafa augun opin fyrir tilboðum fá að öllum
líkindum hagkvæmustu ferðina. Hinir sem bíða fram á síðustu stundu með
að bóka ferð eru líklegir til að þurfa að borga mikið fyrir sætið.
Til skoðunar áður en flugið er valið
GÓÐ HÚSRÁÐ
Glerhreinsir á kamínuglugga
Þrátt fyrir að sumarið gangi brátt í
garð og veður fari hlýnandi finnst
mörgum sumarbústaðar eigandanum
huggulegt og jafnvel nauðsynlegt
að kveikja upp í kamínunni í
bústaðnum sínum. Oft er gallinn
hins vegar sá að sót safnast saman
á gluggum kamínunnar svo ill-
mögulegt er að njóta loganna að
öðru leyti en því að leyfa þeim að
ylja sér. Almennur glugga- og gler-
hreinsir virkar afar vel til að losna við
sótið og heldur gluggunum hreinum
lengur en ef notast er einungis við
vatn eða venjulega sápu.
Kaupás hf. hefur í samráði við mat-
vælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkur ákveðið að innkalla af markaði
vöruna Allra grænir frostpinnar þar
sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru
ekki merktir á umbúðum hennar. Í
fréttatilkynningu frá Kaupás hf. segir að
varan hafi verið í dreifingu í verslunum
Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals.
Ekki kemur fram í innihaldslýsingu
á umbúðunum að varan innihaldi
sojalesitín sem er á lista yfir ofnæmis-
og óþolsvalda. Neytendur sem eru við-
kvæmir fyrir soja eða afurðum úr soja
eru beðnir um að farga frost pinnunum
eða hafa samband við Krónuna,
Nóatún eða Kjarval í síma 458 1100.
■ Matvæli
Frostpinnar innkall-
aðir vegna ofnæmis-
og óþolsvalda
Gert er ráð fyrir að verð á gistingu á hótelum í Bretlandi verði hærra í
sumar en venjulega þegar Ólympíuleikarnir fara þar fram í júlí og ágúst.
Þeir sem geta hugsað sér að sofa í tjaldi ættu þess vegna að skoða
vefsíðuna www.campinmygarden.com. Þar er hægt að panta tjaldstæði
í einkagörðum víðs vegar um Bretland þar sem er að finna nauðsynleg
þægindi eins og salerni og sturtu. Algengt verð fyrir nóttina er um 2.000
krónur á mann en það er oft hærra nálægt London. Hægt er að tjalda í
einkagörðum í fleiri löndum.
■ Ferðaþjónusta
Boðið upp á tjaldstæði í einkagörðum
í Englandi
Áfangastaðir flugfélaga sem fljúga frá Keflavíkurflugvelli
Germanwings Primera Air
Edelweiss Air AG Travel Service
WOW Air
Easy Jet
Norwegian Air Shuttle
Air Berlin
Delta
Air Greenland
Niki Luftfahrt
Lufthansa
Austrian
Icelandair
SAS
Transavia.com France
Iceland Express
Noregur
Finnland
Grænland
Kanada
Stuttgart, Köln Alicante, Billund, Malaga, Palma, Tenerife
Genf, Zürich Budapest, Prag
Alicante, Basel, Berlin, Kaupmannahöfn,
Krakow, Köln, London, Lyon, París, Stuttgart,
Varsjá, Zürich
London
Alicante, Almeria, Barcelona, Basel, Berlin, Bill-
und, Bologna, Edinburgh, Frankfurt, Gautaborg,
Kaupmannahöfn, Krakow, London, París, Prag,
Vilnius, Varsjá
Alicante, Amsterdam, Barcelona, Billund, Boston, Brussel, Denver, Faro, Frankfurt, Gauta-
borg, Glasgow, Halifax, Hamburg, Helsinki, Kaupmannahöfn, London Heathrow, Madrid,
Manchester, Milano, Milas Bodrum, Minneapolis, Munchen, New York, Orlando, Oslo,
París, Seattle, Stavenger/Bergen, Stokkhólmur, Toronto, Trondheim/Bergen, Washington
Berlin, Dusseldorf, Hamburg
París
Oslo, Stokkhólmur
Vínarborg
Vínarborg
Nuuk
New York (JFK)
Berlin, Dusseldorf, Hamburg,
Munchen, Stuttgart
Oslo
Ísland
Kanaríeyjar,
Spánn
Bandaríkin Portúgal Tyrkland
Spánn
Mallorca
Ítalía
SvissFrakkland Ungverjaland
Tékkland
Austurríki
Þýska-
land
Bretland Danmörk
Pólland
Litháen
háannatíma að morgni og síðdegis
flesta daga vikunnar. Samkvæmt
áætlun á komandi sumri munu 23
farþegaflug verða afgreidd yfir
háannatíma að morgni og síð degis
þegar álagið er hvað mest.“
Búist er við að daglega fari um
15 þúsund farþegar um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar þegar mest
verður um háannatímann í júní,
júlí og ágúst. Til þess að anna
aukinni umferð verður á næstu
vikum ráðist í endurbætur á flug-
stöðinni. „Gerður verður nýr inn-
gangur í norðurbyggingu flug-
stöðvarinnar fyrir farþega sem
fluttir verða með rútum til og
frá flugvélum sem fá afgreiðslu
á stæðum fjarri flugstöðinni.
Afköst í vopnaleit verða aukin, og
sjálfsinnritunarstöðvum fjölgað í
brottfararsal.“ olikr@frettabladid.is
48,2% ER ÞAÐ HLUTFALL HEIMILA sem árið 2011 átti auðvelt með að láta enda ná saman samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. 38,3 prósent áttu erfitt, eða nokkuð erfitt með að láta
enda ná saman og hjá 13,3 prósentum var það mjög erfitt.