Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 16

Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 16
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is úthugsaðar og hugsaðar til lengri tíma.“ Hann segir það líka hafa skipt máli, þegar Tavistock ákvað að binda fé á Íslandi, að ákveðnar grunnstoðir séu hér til staðar sem félagið telur nauðsynlegar í þeim löndum sem félagið fjár- festir. „Þegar við erum að fjár- festa í nýjum ríkjum þá viljum við að ákveðnar stoðir séu til staðar. Í fyrsta lagi þarf mannauð. Ef þjóð er vel menntuð og upplýst þá fylgir hún lögum og allar nauðsynlegar stofnanir og innviðir, bæði sam- félagslegir og pólitískir, eru í lagi. Íslendingar eru mjög framarlega á öllum þessum sviðum. Fólkið hér talar til dæmis flest mörg tungu- mál og þjóðin stendur mjög fram- arlega á þeim sviðum sem eftir- sóknarvert er að skara fram úr á. Í öðru lagi skiptir máli að þjóð búi yfir náttúruauðlindum. Íslend- ingar eiga fisk, orku og einstaka landfræðilega staðsetningu. Ég hugsa alltaf um Ísland sem brú á milli Norður-Ameríku og Evrópu og landfræðilegt mikilvægi landsins mun aukast mikið í fram- tíðinni. Þessir kostir, mannauður, innviðir og náttúruauðlindir, skipta gríðarlegu máli vegna þess að þessir hlutir eru ekki að fara neitt. Þeir munu ekki hverfa þrátt fyrir að kreppa skelli tímabundið á.“ Kreppur orsakast af græðgi Espinosa hefur starfað hjá Tavistock í 16 ár og segist vera kreppusonur þar sem hann hefur nánast allan sinn starfsferil unnið í löndum sem eiga við kreppu- vandamál að stríða. Á meðal þeirra landa eru Mexíkó, Brasilía og Argentína. „Ég hef unnið í þessum þremur löndum á meðan kreppur hafa geisað þar. Vanda- málin sem Ísland er að glíma við eru auðvitað annars eðlis, enda miklu minna land, en þau eru samt sem áður kreppuvandamál. Það eru margir þættir sem orsaka kreppur. Ég tel að sú helsta sé græðgi. Það er ekki bara græðgi ríkra bankamanna, sem þó vissu- lega hagnast á ósanngjarnan hátt, heldur líka græðgi almennings sem, í leit sinni að betra lífi, sér tækifæri til að eignast alls kyns hluti sem á endanum gengur jafnan ekki upp. Þetta er einfald- lega hluti af opnu markaðshag- kerfi. Þangað til að við finnum betra kerfi þá er þetta það besta sem við eigum.“ Áhuga á orku og fasteignum Espinosa segir að Tavistock hafi mikinn áhuga á því að fjárfesta meira á Íslandi. „Í raun var það hugmyndin á bak við fjárfestingu okkar í MP banka að skoða önnur fjárfestingatækifæri á Íslandi. Við töldum þetta réttu leiðina til að kynna okkur til leiks sem fjár- festa á Íslandi. Að koma inn í gegnum aðaldyrnar og kaupa hlut í fjármálafyrirtæki, sem er undir stífu eftirliti og regluverki, ekki í gegnum bakdyrnar. Við myndum mjög gjarnan vilja fjárfesta meira á Íslandi. Við horfum til orku- geirans og við höfum þegar skoðað tvö verkefni sem honum eru tengd og við erum byrjaðir að greina. Fasteignageirinn er líka eitthvað sem við erum að skoða, enda sam- ræmast slíkar fjár festingar stefnu Tavistock. Stór hluti eignasafns okkar er í fasteignatengdum verk- efnum.“ Tavistock á þegar hluti í fimm fyrirtækjum í orkugeiranum og var um tíma á árum áður einn eigenda rússneska orkurisans Gazprom. Espinosa segir félagið þó ekki hafa áhuga á því að eignast íslensk orkuver eða íslenskar auð- lindir. Hann segir það heldur ekki hafa áhuga á því að fjárfesta í neinu sem íslensk stjórnvöld eða almenningur eru á móti að félagið kaupi í. Þeir hafi meiri áhuga á að fjárfesta í þeirri þekkingu og tækni sem Íslendingar hafa komið sér upp í nýtingu á hreinni orku. „Áhugi okkar snýr meira að því að vinna í sameiningu með íslenskum aðilum annars staðar í heiminum. Mexíkó, þar sem ég vinn mikið, er til dæmis einn af stærstu notendum jarðvarmaorku í heim- inum. Orkufyrirtækin þar hafa í gegnum tíðina hrifist af því sem hefur verið gert á Íslandi í nýting- armálum. Þarna gæti verið sam- fella sem myndi henta okkur.“ VARÐANDI IRISH LIFE & PERMANENT PLC („ILP“) OG VARÐANDI LÁNASTOFNANIR (STÖÐUGLEIKA-) LÖG 2010 Yfirréttur Írlands gaf út hinn 28 mars 2012 réttartilskipun samkvæmt 9. kafla (stöðugleika-) laganna um lánastofnanir með áorðnum breytingum samkvæmt lögum 2011 um (skiptanefndir) Seðlabanka og lánastofnanir, (Lögin) með eftirfarandi skilmálum: Beinir því til ILP inter alia að taka skref í að undirbúa sölu á Irish Life Limited („Irish Life“), sem er að öllu leyti dótturfélag ILP, og á dótturfélögum þess til Fjármálaráðuneytis Írlands (Ráðherrans) sem hluta af endurfjármögnun ILP. Slík skref fela í sér en takmarkast ekki við samning við Ráðherrann um hlutafjárkaup miðað við allt útgefið hlutafé Irish Life og önnur skref sem gera mögulega skiptingu trygginga- og bankastarfsemi ILP auk þess að ljúka við skipulag sem nauðsynlegt kann að reynast til að gera slíka skiptingu mögulega og gera samninga sem nauðsynlegir kunna að reynast til að gera slíka skiptingu mögulega. Rétturinn tilkynnti inter alia, að réttartilskipunin og sérhver hluti hennar, að svo miklu leyti sem henni er beint að og hún gerð vegna ILP, sé ráðstafanir til endurskipulagningar til að uppfylla tilskipun nr. 2001/24/EC frá Evrópuþinginu og Evrópuráðinu hinn 4. apríl 2001. Samkvæmt kafla 11 í lögunum er hægt að leggja fram umsókn um að víkja til hliðar réttartilskipun, að uppfylltum skilyrðum sem sett eru fram þar, til Yfirréttar Írlands, Four Courts, Inns Quay, Dublin 7, Írlandi, ekki síðar 14 daga eftir 30 mars 2012, sem er útgáfudagur réttartilskipunarinnar samkvæmt kafla 9A(1)(b) í lögunum. Samkvæmt kafla 64(2) í lögunum, er ekki hægt að áfrýja réttartilskipuninni til Hæstaréttar án samþykkis Yfirréttar. Eintök af réttartilskipuninni eru fáanleg hjá aðalskrifstofu Yfirréttar með því að senda tölvupóst til listroomhighcourt@courts.ie M ario Espinosa er framkvæmda- stjóri fjárfestinga- félagsins Tavistock Group en félagið hefur í gegnum dótturfélag sitt Manastur eignast 9,54% hlut í MP- banka gegn því að leggja honum til 530 milljónir. Spurður um hvernig það kom til að Tavistock ákvað að fjárfesta á Íslandi segir Espinosa að Joe Lewis, stofnandi og aðaleig- andi félagsins, hafi sjálfur komið með hugmyndina inn á borðið. „Skúli Mogensen [stærsti eigandi MP banka] og Joe Lewis þekkja mikið af sama bankafólkinu í Bret- landi. Hann beindi Skúla í áttina til okkar. Hlutirnir gerðust mjög hratt í kjölfarið. Ég myndi segja að það hafi tekið minna en viku frá því að við hittum Skúla og þangað til að við ákváðum að taka þátt. Við þurftum að vera með réttan samstarfsaðila sem þekkti til, og fundum hann í Skúla. Við erum ekki Morgan Stanley. Við getum ekki bara keypt eitthvað og flutt inn tíu manns til að reka það. Ef verkefnið er rétt, allar nauðsyn- legar upplýsingar liggja fyrir og réttur samstarfsaðili er til staðar þá þarf ekki að taka langan tíma að taka ákvörðun. Og við tókum ákvörðun um að vera með.“ Hafa oft synt gegn straumnum Það vekur upp spurningar, og í mörgum tilvikum tortryggni, þegar stórir fjárfestar ákveða að binda fé í löndum sem hafa ný verið gengið í gegnum fjármálaáföll. Espinosa segir slíkar aðstæður hins vegar geta boðið upp á tækifæri sem allir hlutaðeigandi geti hagnast á. „Við höfum oft ráðist í fjárfestingar sem eru gegn straumnum á stöðum sem aðrir vilja ekki snerta. Við fjárfest- um í Mexíkó árið 1995 þegar nán- ast enginn vildi fjárfesta þar. Við fjárfestum í Rússlandi og keypt- um hlut í Gazprom þegar ringul- reið ríkti þar og ekki var búið að skrá fyrirtækið á markað. Við erum því áhættufjárfestar, en allar ákvarðanir sem við tökum eru vel Vilja fjárfesta í orku og fasteignum FJÁRFESTIR „Við töldum þetta réttu leiðina til að kynna okkur til leiks sem fjárfesta á Íslandi. Að koma inn í gegnum aðal- dyrnar og kaupa hlut í fjármálafyrirtæki, sem er undir stífu eftirliti og regluverki, ekki í gegnum bakdyrnar,“ segir Mario Espinosa, framkvæmdastjóri hjá Tavistock Group. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eitt ár er liðið frá því að meira en 40 nýir hluthafar lögðu 5,5 milljarða króna inn í MP banka gegn því að eignast innlenda starfsemi hans. Þórður Snær Júlí- usson ræddi við Mario Espinosa um ástæður þess að erlent félag ákvað að kaupa hlut í litlum íslenskum banka, aðrar fjárfestingar og hvað orsaki kreppu. 119 þúsund Á Íslandi eru í gildi gjaldeyrishöft sem hafa fælingarmátt gagnvart erlendri fjárfestingu. Espinosa segir Tavistock Group hafa mikla reynslu af því að fjárfesta í löndum þar sem slík höft eru til staðar. „Það vill enginn gjaldeyris- höft. Ríkisstjórnir vilja þau ekki, fólkið vill þau ekki og fjárfestar vilja þau ekki. Það voru gjaldeyrishöft í Mexíkó þegar við fjárfestum þar. Þau eru enn til staðar í Brasilíu og Argentínu þó þau séu ekki endilega kölluð höft. Gjald- eyrishöft eru nefnilega stórt orð sem geta falið mismun- andi hluti í sér. Mín skoðun er sú að íslensk stjórnvöld hafi tekið rétta ákvörðun með setningu haftanna og að hún hafi verið tekin á réttum tímapunkti. En líkt og allar harkalegar ráðstafanir þá þurfa þau að vera tímabundin. Þegar við höfum hitt fólk frá Seðlabanka Íslands þá hefur það lýst yfir áhyggjum sínum af höftunum og einskærum vilja til að aflétta þeim þegar það verður hægt. Þeim líkar því ekki við höftin, en telja þau nauðsynleg. Ég er sammála þeirri skoðun.“ Hann segir gjaldeyrishöft vera eins og handbremsu sem þurfti að grípa í. Alvöruland eins og Ísland muni þó losa hana hægt og rólega. „Á Íslandi er farinn að myndast hagvöxtur einungis örfáum árum eftir efnahagshrunið. Lánshæfismat ríkissjóðs er líka komið í fjárfestingaflokk aftur. Viðsnúningurinn er því hraðari en við höfum átt von á. Það verða því ekki höft hérna til eilífðarnóns.“ Það vill enginn gjaldeyrishöft Tavistock Group var stofnað af Joe Lewis fyrir hartnær fjórum áratugum. Lewis, sem er Breti en býr á Bahama-eyjum, hafði efnast gríðarlega á gjald- eyrisviðskiptum á áttunda áratugnum. Félagið á í dag hluti í meira en 200 fyrirtækjum í sextán löndum. Sú fjárfesting Tavistock sem líkast til hefur vakið mesta athygli á undan- förnum árum eru kaup félagsins á enska knattspyrnuliðinu Tottenham Hotspur í gegnum dótturfélagið Enic. Daniel Levy, einn framkvæmdastjóra Tavistock, er í dag stjórnarformaður Tottenham. Kaupin voru að hluta til fjár- mögnuð með lánsfé frá Kaupthing Singer&Friedlander, fyrrum dótturbanka Kaupþings. Á meðal annarra fjárfestinga á undanförnum árum eru kaup á bresku kráarkeðjunni Mitchells&Butlers, sem var áður að hluta til í eigu Roberts Tchenguiz, eins stærsta viðskiptavinar Kaupþings fyrir bankahrun. Eiga Tottenham Hotspur VAR FJÖLDI FARÞEGA sem Icelandair flutti í mars. Fjölgaði farþegum félagsins um 23% miðað við sama mánuð í fyrra.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.