Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 24
24 12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR Eftir að sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (þskj. 1052) og frumvarp um veiðigjald (þskj. 1053) hefur umræðan snúist nær alfarið um upphæð veiðig jaldsins í stað grundvallaratriða fisk- veiðistjórnunar. Veiðigjaldið er vel til þess fallið að drepa umræðunni á dreif og til að nota sem bitling í póli- tískum hrossakaupum á Alþingi. Þannig verður hægt að breyta þeim lögum, og þar með upphæð gjaldsins, án þess að hrófla við því fiskveiðistjórnunar kerfi sem ríkisstjórnin ætlar sér að festa í sessi. Grundvallaratriði fiskveiði- stjórnunar Hver á fiskinn og miðin? Hver fær að veiða? Hver ákveður það og hvernig? Til hve langs tíma eru veiðiheimildirnar? Þegar við erum sammála um þetta þá er tími til kominn að ræða um hvað nýtingarheimildir eiga að kosta, hvernig skuli innheimt ásamt því hversu mikið skuli veitt. Frumvarpið um stjórn fisk- veiða er lítið breytt útgáfa af kvótakerfinu eins og það er í dag. Þeir sem nú „eiga” kvóta fá sjálf- krafa úthlutað nýtingar leyfum til 20 ára. Það má ekki hrófla við leyfunum eða kerfinu sjálfu í fimm ár eftir upphafsúthlutun. Eftir fyrstu fimm árin endur- nýjast leyfin til eins árs á hverju ári, þannig að núverandi kvóta- eigendur eru alltaf með kvóta til 15 ára. Þetta er kallað flokkur 1 í aflaheimildum/nýtingar leyfum í frumvarpinu. Flokkur 2 eru aflaheimildir sem á að úthluta á Kvótaþingi til eins árs í senn. Þessar heimildir eru þegar til og heita ýmsum nöfnum eins og byggðakvóti, línuívilnun, strand- veiðar o.fl. Úthlutun og eftirlit Kvótaþing verður rekið af Fiski- stofu sem einnig hefur eftirlit með þessum viðskiptum. Þetta er hönnunargalli. Framkvæmd og eftirlit á aldrei að vera á sömu hendi. Það er hagsmunaárekstur og uppskrift að spillingu. Það gefst aldrei vel að veita stjórn- málamönnum og embættis- mönnum völd til þess að úthluta gæðum. Engar betrumbætur – auðlind í eigu ríkisins Gallar kvótakerfisins eru ekki leiðréttir í þessu nýja kerfi. Núverandi hand hafar kvótans sem fengu hann afhentan fyrir hartnær 30 árum fá að hafa hann áfram næstu 20 árin og líklega fram í það óendanlega skv. sjálfkrafa endur nýjun veiðileyfa. Nýliðun í útgerð er ekki auð- veldari. Atvinnufrelsi eru settar skorður. Strandveiðar eru ekki gefnar frjálsar. Tak- mörkun smábáta- og strandveiða er auðvitað jafnvitlaus og að banna kvenfélagskonum að selja kökur á basar. Aðskilnaður veiða og vinnslu er ekki tryggður. Auðlind hafsins er ekki sameign þjóðarinnar. Það er ekkert jafn- ræði. Þó veiðigjaldið renni í ríkis- sjóð þá er það engin trygging fyrir því að þeim fjármunum verði ráð- stafað í þágu þjóðar. Er ríkis- kassinn þjóðin? Ég segi nei. Aðskilnaður veiða og vinnslu Þeir sem eiga útgerð og vinnslu segja að það sé betra að þetta sé á einni hendi, gæðin séu betri. Eigendur geti sagt sínu fólki að ísa nógu vel. Fiskur af markaði sé ekki nógu góður. Mín reynsla af fisk- markaðnum er sú að þeir sem hugsa vel um veiðina og ísa nógu vel fá betra verð fyrir fiskinn en skussarnir. Við sem kaupum fisk af markaði vitum af hvaða miðum þorskurinn er bestur, hvaða bátar eru með góðan fisk og þar ráða lögmál markaðarins. Það vantar bara meiri fisk. Verðmyndun er oft óeðlileg vegna skorts á framboði. Ef núverandi frumvarp verður samþykkt sé ég fram á endalok frjálsra fiskmarkaða og fisk- vinnslu í landinu. Það er alltaf hagkvæmara fyrir útgerð að selja aflann til eigin vinnslu á niðursettu verði. Starfsfólk í fiskvinnslu er ekki ráðið upp á hlut eins og sjómenn. Því segi ég: Allur ferskur fiskur á að fara á markað. Þannig verður eðlileg verðmyndun á afla, hagnaðurinn fer á réttan stað og sjómenn eru ekki hlunnfarnir. Kæru þingmenn og konur Ég vona að Alþingi hafi kjark til að hafna þessum lögleysum, viður kenna álit mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna og smíða sanngjarnt og réttlátt fisk- veiðistjórnunarkerfi sem hægt verður að láta þjóðina kjósa um. Þjóðin á rétt á því að fá að segja sitt um þetta málefni. Dögun, samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem ætlar að bjóða fram í næstu kosningum orðar þetta svona í sinni kjarna- stefnu: „Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiði- auðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða skal álit Mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.“ Kvótakerfi 2.0 Sjávarútvegsmál Álfheiður Eymarsdóttir stjórnmálafræðingur og eigandi frjálsrar, kvótalausrar fiskvinnslu Ef núverandi frumvarp verð- ur samþykkt sé ég fram á endalok frjálsra fiskmarkaða og fiskvinnslu…
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.