Fréttablaðið - 12.04.2012, Qupperneq 24
24 12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR
Eftir að sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp til laga
um stjórn fiskveiða (þskj. 1052)
og frumvarp um veiðigjald (þskj.
1053) hefur umræðan snúist nær
alfarið um upphæð veiðig jaldsins
í stað grundvallaratriða fisk-
veiðistjórnunar.
Veiðigjaldið er vel til þess fallið
að drepa umræðunni á dreif og
til að nota sem bitling í póli-
tískum hrossakaupum á Alþingi.
Þannig verður hægt að breyta
þeim lögum, og þar með upphæð
gjaldsins, án þess að hrófla við
því fiskveiðistjórnunar kerfi sem
ríkisstjórnin ætlar sér að festa í
sessi.
Grundvallaratriði fiskveiði-
stjórnunar
Hver á fiskinn og miðin? Hver
fær að veiða? Hver ákveður það
og hvernig? Til hve langs tíma
eru veiðiheimildirnar? Þegar við
erum sammála um þetta þá er
tími til kominn að ræða um hvað
nýtingarheimildir eiga að kosta,
hvernig skuli innheimt ásamt því
hversu mikið skuli veitt.
Frumvarpið um stjórn fisk-
veiða er lítið breytt útgáfa af
kvótakerfinu eins og það er í dag.
Þeir sem nú „eiga” kvóta fá sjálf-
krafa úthlutað nýtingar leyfum
til 20 ára. Það má ekki hrófla
við leyfunum eða kerfinu sjálfu
í fimm ár eftir upphafsúthlutun.
Eftir fyrstu fimm árin endur-
nýjast leyfin til eins árs á hverju
ári, þannig að núverandi kvóta-
eigendur eru alltaf með kvóta til
15 ára. Þetta er kallað flokkur 1
í aflaheimildum/nýtingar leyfum
í frumvarpinu. Flokkur 2 eru
aflaheimildir sem á að úthluta
á Kvótaþingi til eins árs í senn.
Þessar heimildir eru þegar til
og heita ýmsum nöfnum eins og
byggðakvóti, línuívilnun, strand-
veiðar o.fl.
Úthlutun og eftirlit
Kvótaþing verður rekið af Fiski-
stofu sem einnig hefur eftirlit
með þessum viðskiptum. Þetta
er hönnunargalli. Framkvæmd
og eftirlit á aldrei að vera á sömu
hendi. Það er hagsmunaárekstur
og uppskrift að spillingu. Það
gefst aldrei vel að veita stjórn-
málamönnum og embættis-
mönnum völd til þess að úthluta
gæðum.
Engar betrumbætur – auðlind í
eigu ríkisins
Gallar kvótakerfisins eru ekki
leiðréttir í þessu nýja kerfi.
Núverandi hand hafar
kvótans sem fengu
hann afhentan fyrir
hartnær 30 árum fá að
hafa hann áfram næstu
20 árin og líklega fram
í það óendanlega skv.
sjálfkrafa endur nýjun
veiðileyfa. Nýliðun
í útgerð er ekki auð-
veldari. Atvinnufrelsi
eru settar skorður.
Strandveiðar eru ekki
gefnar frjálsar. Tak-
mörkun smábáta- og
strandveiða er auðvitað
jafnvitlaus og að banna
kvenfélagskonum að
selja kökur á basar. Aðskilnaður
veiða og vinnslu er ekki tryggður.
Auðlind hafsins er ekki sameign
þjóðarinnar. Það er ekkert jafn-
ræði. Þó veiðigjaldið renni í ríkis-
sjóð þá er það engin trygging fyrir
því að þeim fjármunum verði ráð-
stafað í þágu þjóðar. Er ríkis-
kassinn þjóðin? Ég segi nei.
Aðskilnaður veiða og vinnslu
Þeir sem eiga útgerð og vinnslu
segja að það sé betra að þetta sé
á einni hendi, gæðin séu betri.
Eigendur geti sagt sínu fólki að
ísa nógu vel. Fiskur af markaði
sé ekki nógu góður.
Mín reynsla af fisk-
markaðnum er sú að
þeir sem hugsa vel um
veiðina og ísa nógu
vel fá betra verð fyrir
fiskinn en skussarnir.
Við sem kaupum fisk
af markaði vitum
af hvaða miðum
þorskurinn er bestur,
hvaða bátar eru með
góðan fisk og þar ráða
lögmál markaðarins.
Það vantar bara meiri
fisk. Verðmyndun er
oft óeðlileg vegna
skorts á framboði.
Ef núverandi frumvarp verður
samþykkt sé ég fram á endalok
frjálsra fiskmarkaða og fisk-
vinnslu í landinu. Það er alltaf
hagkvæmara fyrir útgerð að
selja aflann til eigin vinnslu á
niðursettu verði. Starfsfólk í
fiskvinnslu er ekki ráðið upp á
hlut eins og sjómenn. Því segi ég:
Allur ferskur fiskur á að fara á
markað. Þannig verður eðlileg
verðmyndun á afla, hagnaðurinn
fer á réttan stað og sjómenn eru
ekki hlunnfarnir.
Kæru þingmenn og konur
Ég vona að Alþingi hafi kjark
til að hafna þessum lögleysum,
viður kenna álit mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna og
smíða sanngjarnt og réttlátt fisk-
veiðistjórnunarkerfi sem hægt
verður að láta þjóðina kjósa um.
Þjóðin á rétt á því að fá að segja
sitt um þetta málefni.
Dögun, samtök um réttlæti,
sanngirni og lýðræði sem ætlar
að bjóða fram í næstu kosningum
orðar þetta svona í sinni kjarna-
stefnu:
„Tryggja þarf aðskilnað veiða
og fiskvinnslu og að jafnræði ríki
meðal landsmanna við nýtingu
á sameiginlegum fiskveiði-
auðlindum. Hámarka skal arð
þjóðarinnar af auðlindum hennar.
Virða skal álit Mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna.
Allur ferskur fiskur skal seldur
á fiskmörkuðum.“
Kvótakerfi 2.0
Sjávarútvegsmál
Álfheiður
Eymarsdóttir
stjórnmálafræðingur
og eigandi frjálsrar,
kvótalausrar fiskvinnslu
Ef núverandi
frumvarp verð-
ur samþykkt
sé ég fram á
endalok frjálsra
fiskmarkaða og
fiskvinnslu…