Fréttablaðið - 12.04.2012, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 20124
Gott er að setja sér hæfileg markmið sem mögulegt er að ná. Best er að koma sér
í gang með léttri göngu daglega,
nota birtuna, súrefnið og gott færi
til að hreyfa sig. Ég mæli með því
að fara út undir bert loft vegna
þess hversu gott það er andlega.
Maður er svo miklu orkumeiri
eftir smá göngutúr,“ segir Guðrún.
Hálftími á dag
Guðrún segir að mælt sé með því
að hreyfa sig í að minnsta kosti
hálftíma á dag. „Það má taka
þann hálftíma í tveimur hlutum
og ganga fimmtán mínútur í senn.
Þeir sem ekkert hafa hreyft sig í
vetur ættu að byrja á tíu mínútum
og auka við sig á hverjum degi.
Síðan er mjög gott að taka stiga
í stað lyftu, ganga í búðina og
fara allar styttri vegalengdir fót-
gangandi. Ganga þrisvar í viku
hefur ótrúlega mikið að segja fyrir
heilsuna og andlega líðan,“ segir
Guðrún enn fremur.
Hún telur nauðsynlegt að setja
sér markmið og vera duglegur að
hrósa sér nái maður því. „Ekki láta
samviskubitið ná yfirhöndinni.
Farið frekar rólega af stað. Hinir
sem hafa hreyft sig í vetur ættu
endilega að halda áfram í sumar
og nota góða veðrið til aukinnar
líkams ræktar. Það er svo margt
hægt að gera án þess að fara í
líkams ræktarstöð þó að það sé
fínt líka. Að synda er góð íþrótt,
sérstaklega sundleikfimi. Ef fólki
finnst gaman að dansa þá endilega
skrá sig í salsa eða aðra fjöruga
danstíma. Öll hreyfing er góð og
frábært að nýta sér áhugamálin í
leiðinni svo sem að stunda golf.“
Þol og þrek eykst
Oft getur líka verið gott að draga
einhvern með sér í göngu því
tíminn líður hratt þegar fólk spjall-
ar á leiðinni. Til að ná árangri í
göngu ætti hún að vera nokkuð
hröð til að viðhalda hjarta- og
blóðrásarkerfinu. Ég mæli þó alltaf
með því að byrja smátt og bæta
síðan við sig. Þeir sem vilja hlaupa
þurfa líka að gæta varúðar fyrst í
stað. Sérstaklega ef fólk er þungt
eða á við liðvandamál að stríða.
Best er að byrja á því að ganga milli
tveggja ljósastaura og skokka síðan
að næsta ljósastaur og þannig
halda áfram. Þolið og þrekið er
fljótt að aukast, svefninn batnar
og matarlystin breytist. Fólk sem
byrjar að hreyfa sig fer ósjálfrátt að
borða hollari mat.“
Guðrún greinir frá því að í
rannsókn sem hún vann að ásamt
fleiri í Háskóla Íslands um hreyf-
ingu eldri borgara hafi greini-
lega komið í ljós hversu hreyf-
ingin bætti lífsgæði þátttakanda.
„Gönguþjálfunin er einföld þar
sem ekki þarf nein tæki en jafn-
framt er hún afar árangursrík og
heilsubætandi.“
Ekki láta samviskubitið ná yfirhöndinni.
Farið frekar rólega af stað.
Undanfarin ár hafa átröskun-arsjúkdómar verið töluvert í umræðunni og ástæður
þeirra. Fæstir kannast við hug-
takið vöðvafíkn en flestir kannast
við einstaklinga sem virðist vera
með líkama sinn, útlit og stærð
vöðva á heilanum. Flestir þeirra
eiga þó ekki við nein vandamál að
stríða og stunda heilbrigt líferni.
Vöðvafíkn herjar helst á karlmenn
en ekki hefur mikið verið fjallað
um hana í samfélaginu.
Fa r ið hef u r m i n na f y r i r
kröfum samfélagsins á útlit karla
í gegnum tíðina samanborið við
útlit kvenna, en orsök þessara
sjúkdóma er oft bendluð við sam-
félagslegar útlitskröfur. Sjúk-
dómurinn var ekki læknisfræði-
lega skilgreindur fyrr en á tíunda
áratugnum undir heitinu Body
dysmorphic disorder eða bigo-
rexia. Til að byrja með var hann
þó kallaður öfug anorexía og er
af sama meiði og aðrir sjúkdómar
sem snúa að útliti eins og lystarstol
og lotugræðgi.
Vöðvafíkn lýsir sér þannig að
einstaklingurinn hefur miklar
ranghugmyndir um að hann sé
of léttur, lítill eða að vöðvamassi
hans sé undir meðallagi. Af þeim
sökum eyðir hann miklum tíma í
lóðalyftingar sem síðar hefur áhrif
á félagslíf hans og tengsl við annað
fólk þannig að hann einangrast.
Hann notar að öllum líkindum
fæðubótaefni óhóflega og hefur
áhyggjur af því að borða ekki
nóg eða rétt og á á hættu að hefja
stera notkun. þessi hegðun getur á
endanum leitt til alvarlegra líkam-
legra kvilla. Vöðvafíkillinn forðast
staði sem gætu dregið athygli að
líkama hans og er upptekinn af
því að hann sé of lítill eða væskils-
legur. Vöðvafíkn hefur mikil áhrif
á líðan viðkomandi og endar oft
með þunglyndi eða stöðugri við-
bjóðstilfinningu á eigin líkama;
þetta má rekja til þess að einstak-
lingurinn er með mjög svo óraun-
hæfar væntingar og viðhorf um
eigið holdafar.
Sjúkdómurinn byrjar oftast að
láta á sér kræla á unglings árum.
Áhættuþættir eru margir en talið
er að lágt sjálfsmat sé megin orsök
hans og hann geti í raun ekki
þrifist án þess. Sjúkdómurinn er
algengastur á Vesturlöndum og
telja margir að rekja megi ástæður
þess til óhóflegrar útlitsdýrkunar
samfélagsins og birtingar myndar
hennar í fjölmiðlum. Eins eru leik-
föng barna stöðugt að breytast,
með áherslum á útlit og óraun-
hæfan líkamsvöxt. Þessar áherslur
í vestrænu samfélagi virka svo sem
hvati að þeim ranghugmyndum
sem hrjá þá sem þjást af vöðva-
fíkn.
Heimildir: doktor.is og wikipedia.org
Vöðvafíkn
er varasöm
Sjúkdómurinn bigorexia eða vöðvafíkn hefur ekki mikið verið í umræðunni hérlendis.
Hann herjar oftast á karlmenn og eru unglingsdrengir helsti áhættuhópurinn.
Vöðvafíkill eyðir óhóflegum tíma í lóðalyftingar.
Ganga bætir lífsgæði
og er heilsubætandi
Þegar sól hækkar á lofti eru mörg sófadýr sem hyggjast gera eitthvað í sínum málum. Guðrún
Valgerður Ásgeirsdóttir íþróttafræðingur segir að fólk ætti að byrja hreyfinguna hægt og rólega.
Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir íþróttafræðingur leggur áherslu á að þeir sem vilja hefja
líkamsrækt og hreyfingu ættu að byrja hægt en auka smátt og smátt við sig. Þol og þrek
er fljótt að eflast. MYND/STEFAN
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín