Fréttablaðið - 12.04.2012, Síða 38
Heilsa FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 20126
SALT FÓTABAÐ
1 bolli gróft sjávar-
salt
1 sítróna skorin í
sneiðar
10 myntulauf ef vill
Hellið salti og
sítrónus neiðum í
stórt vaskafat. Byrjið
á að nudda fæturna
aðeins upp úr þurru
saltinu áður en heitu
vatni (ekki of heitu) er
hellt yfir fæturna svo
fljóti vel yfir. Slakið á í
10 mínútur.
Nauðsynlegt er að hugsa vel um fæturna þar sem mikið mæðir á þeim alla daga. Reglulega ætti að nudda burt þurra húð svo ekki myndist sigg og bera mýkjandi krem á fæturna að kvöldi. Í búr-
hillunni má vel finna hráefni í fínasta heimatilbúið skrúbb og krem.
Heimatilbúið
fótadekur
Þreyttir og aumir fætur geta haft neikvæð áhrif á
almenna líðan fólks. Yfir veturinn eru fæturnir einnig
innilokaðir í ullarsokkum og kuldaskóm og hafa því gott
af örlitlu dekri með vorinu. Búrskápurinn er fullur af
fínasta hráefni í heimatilbúið skrúbb, krem og fótabað.
Nýburar sem eru umvafðir hlýju á meðan á bólusetningu stendur
finna minna til en ella. Þetta sýna niðurstöður nýlegrar rannsóknar
sem gerð eru skil í tímaritinu Pain.
Tilraunin fór þannig fram að 47 heilbrigðum nýburum var skipt í
þrjá hópa. Einn hópurinn fékk yl undir hitalampa, annar hópurinn
sykurdropa og sá þriðji snuð rétt fyrir bólusetningu. Þá voru viðbrögð
ungbarnanna mæld í öllum hópum; grátur, grettur og hjartsláttar-
tíðni.
Þeir nýburar sem kúrðu í hlýjunni hættu að kveinka sér og gráta
mun fyrr en börnin í hinum hópunum, og fjórðungur þeirra grét ekki
neitt á meðan allir hvítvoðungarnir sem fengu sykurdropa í munn
grétu sárast. Í öllum hópum jókst hjartsláttartíðni strax á eftir bólu-
setningu og lækkaði aftur á svipuðum hraða hjá öllum börnunum.
Niðurstaðan varð þessi: Náttúruleg hlýja dregur úr gráti og grettum
ungbarna sem vanalega fylgja sársaukafullri bólusetningu, ásamt því
að vera náttúrulegri, auðveldari og skilvirkari leið en aðrar til að lina
sársauka hjá nýburum.
Fleiri rannsókna er þörf til að sjá hvort aðferðin gagnist læknum í
framtíðinni og hvaða hitastig hentar ungbörnum best.
Heimild: BBC Health
Hlýja linar
sársauka
Ungbörnum þykir gott að vera umvafin hlýju og nú sýna rannsóknir að ylurinn linar
sársauka. NORDIC PHOTOS/GETTY
GRÓFT
SKRÚBB ÚR
HAFRAMJÖLI
1 bolli gróft
haframjöl
½ maukað epli
4 msk. hunang
Blandið öllu saman í
skál og nuddið vel á
fæturna. Látið bíða
í nokkrar mínútur
áður en skolað er af
fótunum. S krúbbið
losar dauðar húð-
frumur af þreyttum
fótum og gefur þeim
raka.
EINFALT SYKURSKRÚBB
1 bolli sykur
½ bolli ólífuolía
1 msk. rifinn sítrónubörkur
Blandað í skál og nuddað á fæturna. Nuddið vel á hælana og
undir tábergið. Skolið fæturna.
SYKUR OG KAFFISKRÚBB
¼ bolli púðursykur
¼ bolli hvítur sykur
3 msk. nýmalað kaffi
5 tsk. möndluolía
5 tsk. jojoba-olía
2 tsk. hunang
Öllu blandað saman í skál og nuddað á þreytta fætur.
Skrúbbið gefur fótunum mýkt og ljúfan ilm.
ÓLÍFUOLÍUKREM
1 dl ólífuolía
1 dl vaselín
1 hylki E-vítamín olía
¼ tsk. teatree-olía
Blandið ólífuolíunni við vaselínið, annað
hvort með gaffli eða með þeytara. Gatið
E-vítamín hylkið og kreistið olíuna út í.
Bætið teatree-olíu út í og blandið öllu vel
saman. Setjið í tóman brúsa og berið á
fæturna á kvöldin. Ef fæturnir eru mjög
þurrir skal bera þykkt lag á, fara svo í
víða sokka og stinga sér undir sæng.
Ólífuolía mýkir
húðina og er
tilvalin í heima-
tilbúin krem.
Gott er að nudda
fæturna upp úr þurru
saltinu áður en vatni er
hellt yfir.
Einfalt
sykurskrúbb.
Haframjöl má nota í
skrúbb til að nudda
dauðar húðfrumur af
fótunum.
NORDIC PHOTOS/GETTY
DANSpúl 20+
Langar þig að dansa og koma þér í gott líkamlegt form?
Framundan er fjölbreytt og skemmitlegt 6 vikna dans og púl námskeið fyrir 20 ára og eldri.
Áhersla á alhliða líkamsþjálfun, samhæfingu, jazzdans og dansgleði.
Tímabil: 16. apríl – 23. maí
Tímar á mánudögum kl. 19:40 og miðvikudögum kl. 20:20
Kennarar: Arna Sif Gunnarsdóttir og Una Björg Bjarnadóttir.
Verð 16.500 kr.
Frír aðgangur að tækjasal JSB meðan á námskeiði stendur
Skráning er hafin í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is
Vornámskeið
hjá DANSSTUDIO JSB
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nýtt námskeið
hefst 16. apríl!
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
KYNNING − AUGLÝSING