Fréttablaðið - 12.04.2012, Page 62
12. apríl 2012 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
BURSTAR í vél-
sópa á lager
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- flestar
stærðir
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU verður á Rúv árin 2014, 2018 og 2022. Rúv greindi
frá þessu í gær. Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, samdi við EBU, Evrópusamband útvarps- og sjónvarps-
stöðvam um rétt síðustu tveggja móta en Rúv átti þegar réttinn fyrir mótið árið 2014.
IE-deild kvenna:
Njarðvík-Haukar 66-69
Njarðvík: Shanae Baker-Brice 22/8 fráköst/3
varin skot, Lele Hardy 17/18 fráköst, Petrúnella
Skúladóttir 11/6 fráköst, Harpa Hallgrímsdóttir
6/7 fráköst, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 3, Ína
María Einarsdóttir 3, Ólöf Helga Pálsdóttir 2/4
fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 2.
Haukar: Tierny Jenkins 26/29 fráköst/6 varin skot,
Jence Ann Rhoads 19/6 fráköst/6 stoðsend-
ingar/4 varin skot, Margrét Rósa Hálfdanardóttir
11/4 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunn-
arsdóttir 9/5 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 4
Enska úrvalsdeildin:
Man. City-WBA 4-0
1-0 Sergio Aguero (6.), 2-0 Sergio Aguero (54.),
3-0 Carlos Tevez (61.), 4-0 David Silva (64.)
Wigan-Man. Utd 1-0
1-0 Shaun Maloney (49.)
Wolves-Arsenal 0-3
0-1 Robin van Persie, víti (9.), 0-2 Theo Walcott
(10.), 0-3 Yossi Benayoun (69.)
Rautt spjald: Sebastian Bassong, Wolves (8.).
QPR-Swansea 3-0
1-0 Joey Barton (45.+1), 2-0 Jamie Mackie (55.),
3-0 Akos Buzsaki (67.)
STAÐAN:
Man. United 33 25 4 4 78-28 79
Man. City 33 23 5 5 79-26 74
Arsenal 33 20 4 9 66-41 64
Tottenham 33 17 8 8 57-38 59
Newcastle 33 17 8 8 50-42 59
Chelsea 33 16 9 8 56-38 57
Everton 33 13 8 12 38-34 47
Liverpool 33 12 10 11 40-36 46
Fulham 33 11 10 12 43-43 43
Norwich City 33 11 10 12 46-52 43
Sunderland 33 11 9 13 42-41 42
Stoke City 33 11 9 13 32-45 42
WBA 33 11 6 16 39-47 39
Swansea City 33 10 9 14 35-44 39
Aston Villa 32 7 14 11 35-44 35
QPR 33 8 7 18 38-56 31
Wigan 33 7 10 16 31-57 31
Bolton 32 9 2 21 36-65 29
Blackburn 33 7 7 19 45-70 28
Wolves 33 5 7 21 34-73 22
Þýski handboltinn:
Lemgo-Kiel 25-31
Aron Pálmarsson gat ekki leikið með Kiel vegna
meiðsla. Kiel er búið að vinna alla 27 leiki sína
í deildinni í vetur. Tveir sigrar í viðbót og liðið er
orðið meistari.
Füchse Berlin-Huttenberg 36-28
Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Berlin
í leiknum en Berlin styrkti stöðu sína í öðru sæi
deildarinnar með sigrinum.
Tus N Lübbecke-Bergischer 26-20
Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Bergischer
sem er í fallbaráttu.
Magdeburg-Balingen 26-26
Einar Hólmgeirsson komst ekki á blað hjá
Magdeburg. Björgvin Páll Gústavsson er einnig
í liði Magdeburg. Liðið siglir frekar lygnan sjó í
þýsku úrvalsdeildinni.
Melsungen-Grosswallstadt 24-23
Sverre Andreas Jakobsson komst ekki á blað hjá
Grosswallstadt.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Gianfranco Zola, fyrrum
leikmaður Chelsea og stjóri West
Ham, hefur áhuga að snúa sér
aftur að þjálfun með því að taka
við liði Chelsea.
Zola er einn frægustu leik-
manna Chelsea á síðustu árum
en þar var hann í samtals sjö ár.
Hann var síðast starfandi knatt-
spyrnustjóri West Ham en hann
hætti þar í maí árið 2010.
„Ég sakna vallarins og leikj-
anna. En ég veit ekki hvað gerist
hjá mér í framtíðinni,“ sagði Zola.
„Það er reglulega haft sam-
band við mann þegar maður er
ekki starfandi en þá er samt
enn langur vegur frá því að
samningar takist. Hvað Chelsea
varðar þá væri það hræsni af mér
að segja að ég hefði ekki áhuga.
En ég tel ekki réttar aðstæður
til staðar svo að eitthvað verði
af því. Ég er stuðningsmaður
Chelsea og óska ég félaginu alls
hins besta. Núna eru þeir í góðum
höndum Roberto Di Matteo.“ - esá
Gianfranco Zola:
Til í að stýra
liði Chelsea
GIANFRANCO ZOLA Fagnar hér í leik
með Chelsea fyrir nokkrum árum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI David Moyes, stjóri
Everton, segir það ómögulegt
fyrir hinn unga Jack Rodwell að
ná EM í sumar en hann verður
frá vegna meiðsla þar til í sumar.
„Ég myndi ráðleggja honum
að einbeita sér að ná sér góðum
fyrir næsta tímabil,“ sagði Moyes
við enska fjölmiðla en Rodwell,
sem er 21 árs, á tvo A-landsleiki
að baki með Englandi.
„Jack hefur verið frá í um sex
mánuði samtals vegna meiðsla í
vöðva aftan í læri. Ég held að það
verði erfitt fyrir hann að spila
með Englandi á næstunni.“ - esá
Jack Rodwell:
Ekki með á EM
FÓTBOLTI Óvæntur sigur Wigan
á Man. Utd í gær hleypti heldur
betur spennu í toppbaráttu enska
boltans. Forysta Man. Utd á
toppnum er nú aðeins fimm stig
þar sem Man. City vann öruggan
sigur á WBA.
Það var lítill meistarabragur
á Man. Utd í fyrri hálfleik gegn
Wigan. Meistararnir voru yfir-
spilaðir og stálheppnir að vera
ekki undir í hálfleik. Wigan
skoraði meðal annars mark sem
dæmt var af fyrir litlar sakir.
Þeir létu það ekki á sig fá og
Maloney skoraði mark með laglegu
skoti í upphafi síðari hálfleiks.
Markið kom reyndar upp úr horn-
spyrnu sem aldrei átti að dæma.
Man. Utd náði aldrei að komast
almennilega í gang í leiknum og
baráttuglaðir leikmenn Wigan
fögnuðu ógurlega í leikslok.
„Við áttum að fá víti í þessum
leik og Phil Dowd dómari átti alls
ekki góðan dag,” sagði svekktur
stjóri Man. Utd, Sir Alex Ferguson.
„Engu að síður verður það ekki
flúið að við vorum hreinlega
slakur í þessum leik og það verð-
ur að hrósa Wigan fyrir sinn leik.”
Carlos Tevez var kominn í byrj-
unarlið Man. City gegn WBA í stað
Mario Balotelli og það virtist hafa
fín áhrif á lið City að vera laust við
Ítalann óþroskaða.
Sergio Aguero kom City yfir
með laglegu marki. Lék upp vall-
arhelming WBA og skoraði með
smekklegu skoti utan teigs. Hann
bætti öðru marki við snemma í síð-
ari hálfleik og afgreiddi leikinn.
Leikmenn City sýndu gamal-
kunna takta það sem eftir lifði
leiks og Tevez skoraði meðal
annars sitt fyrsta mark fyrir City
síðan hann kom úr sjálfskipulagðri
útlegð. David Villa skoraði líka en
hann hefur ekkert getað síðustu
vikur. - hbg
Toppbaráttan opnaðist upp á gátt í gær þegar Man. Utd tapaði óvænt á meðan Man. City vann sinn leik:
Wigan hleypti mikilli spennu í toppbaráttuna
SVEKKTIR Ryan Giggs og Phil Jones fórna hér höndum í leiknum í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Haukar unnu í gær
frábæran sigur, 69-66, á Njarð-
víkingum í úrslitaeinvíginu um
Íslandsmeistaratitilinn í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta.
Njarðvík komst mest 17 stigum
yfir í fyrri hálfleiknum en þær
rauðklæddu neituðu að gefast upp
og unnu að lokum sigur. Staðan
er því 2-1 fyrir Njarðvík í einvíg-
inu um titilinn en næsti leikur fer
fram á Ásvöllum á laugardaginn.
Það var greinilegt alveg frá
fyrstu mínútu að Njarðvíkingar
ætluðu sér að landa sínum fyrsta
Íslandsmeistaratitli.
Liðið byrjaði leikinn betur og
náði fljótlega ágætis tökum á vell-
inum. Heimastúlkur náðu nánast
öllum fráköstum í byrjun leiks-
ins og það skipti sköpum. Í öðrum
leikhluta varð munurinn á liðunum
mest sautján stig, 31-14, og Njarð-
vík virtist gjörsamlega ætla að
keyra yfir gestina.
Lyktin af Íslandsmeistaratitl-
inum var greinilega sterk og þær
ætluðu að landa sínum fyrsta. Það
gekk allt upp hjá þeim hvítklæddu
í fjórðungnum en á sama tíma var
ekkert ofan í hjá Haukum. Hauka-
stúlkur voru bara ekki í takt við
leikinn og áttu greinilega erfitt
með stressið og stemmninguna í
húsinu. Staðan í hálfleik var 33-22
fyrir Njarðvík og það þurfti margt
að breytast svo að illa færi ekki
fyrir Haukum.
Haukastúlkur voru ákveðnar
í upphafi síðari hálfleiksins og
minnkuðu muninn jafnt og þétt.
Þegar annar leikhlutinn var hálfn-
aður var munurinn aðeins fimm
stig, 43-38, og leikurinn galopinn.
Haukar fóru að láta boltann
ganga miklu betur á milli leik-
manna og unnu hlutina eins og
lið, ekki fimm einstaklingar eins
og hafði einkennt fyrri hálfleik-
inn. Í lokaleikhlutanum voru það
Haukar sem reyndust sterkari og
unnu að lokum frábæran sigur,
69-66. Gestirnir voru frábærir á
lokasprettinum og voru hreinlega
sterkari á andlega sviðinu.
„Það gekk allt upp hjá okkur
framan af og mikil stemmning í
liðinu,“ sagði Sverrir Sverrisson,
þjálfari Njarðvíkur, eftir tapið í
gær.
„Í síðari hálfleiknum förum
við að verja forskotið allt of
mikið og það er aldrei vænlegt
til árangurs. Við þurfum bara að
vinna í Hafnar firðinum á laugar-
daginn, þýðir ekkert að pæla í
öðru. Fyrir þann leik verðum við
að fara yfir hluti sem gengu ekki
upp hjá okkur í kvöld og lagfæra.
Við hættum bara að spila okkar
leik í fjórða leik hlutanum og fórum
að láta andlega þáttinn taka yfir.“
„Við vorum alveg skelfilegar
fyrstu fimmtán mínútur leiksins,“
sagði Bjarni Magnússon, þjálfari
Hauka, eftir sigurinn í kvöld.
„Við náum samt að koma okkur
aftur örlítið inn í leikinn í lok ann-
ars leikhluta og það var mikil-
vægt. Í hálfleik ræddum við bara
um það að hafa trú á verkefninu
og koma brjálaðar til leiks í síðari
hálf leikinn.
Ég er bara svakalega stoltur
af stelpunum og þær áttu þetta
svo sannarlega skilið í kvöld.
Núna er bara næsti leikur á okkar
heimavelli og við ætlum okkur að
jafna þetta einvígi. Þessir leikir
hafa verið þvílík auglýsing fyrir
íslenskan kvennakörfubolta og ég
vona að allir Hafnfirðingar mæti
á laugardaginn.“ - sáp
EKKERT TEITI Í NJARÐVÍK
Haukar eyðilögðu veisluhöld Njarðvíkurstúlkna sem hefðu orðið Íslandsmeist-
arar með sigri í Ljónagryfjunni í gær. Njarðvík sterkara nær allan leikinn en
Haukastúlkur komu geysilega grimmar til baka og unnu sætan sigur.
FLOTTAR Þessar stelpur skemmtu sér vel
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
GRIMMAR Haukastúlkur neituðu að fara í frí og unnu sigur af harðfylgi í gær. Liðin
þurfa því að mætast í fjórða leiknum hið minnsta. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG