Fréttablaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 71
KYNNING − AUGLÝSING Eurovision26. MAÍ 2012 LAUGARDAGUR 73
VERSTA LAG SÖGUNNAR?
Versta Eurovision lag allra tíma, samkvæmt
könnun aðdáendasíðunnar The Eurovision Times,
er framlag Sviss frá árinu 2004. Lagið var flutt af
Piero and the Music Stars og ber nafnið Cele-
brate. Ekkert íslenskt lag er á listanum. Í umsögn
síðunnar segir að lagið sé hreinræktað popp fyrir
börn með heimskulegum texta. Einnig er söngur
Piero sagður vera hugsanlega sá versti í sögu
keppninnar. Í lok lagsins var Piero orðinn svo
andstuttur að hann var farinn að stynja og kreista
fram orðin fremur en að syngja texta lagsins. Sviss
fékk engin stig í keppninni það árið.
ÓTRÚLEGT AFREK
Kristalshöllin í Bakú í Aserbaídsjan var byggð á aðeins átta mán-
uðum sem er mikið afrek sé hugsað til stærðar og mikilfengleika hennar.
Þýska byggingarfyrirtækið Alphine var fengið þann 2. ágúst 2011 til að
hanna og útfæra fjölnota hús sem tæki 25.000 áhorfendur. Þessi ótrúlega
skammi byggingartími krafðist þess að hönnun hallarinnar fór fram sam-
hliða byggingu. Þessi aðferð gerði gríðarlegar kröfur um góða heildar-
yfirsýn og samhæfingu milli hönnuða og verktaka á byggingarstað.
Sambærilegt mannvirki tekur alla jafna um fjögur til fimm ár í hönnun og
smíði.
Höllin er ekki hönnuð sem eiginlegt tónleikahús heldur fyrir innan-
hússviðburði af ýmsum toga. Í stað þess að nota hefðbundna aðferð
og steypa hluta hallarinnar er notast við stálvirki sem samanstendur af
nokkrum sjálfstæðum einingum sem byggðar eru hver í sínu lagi. Við
þetta sparaðist tími og hægt var að vinna við einingarnar sjálftætt áður
en þær voru settar saman. Ysta lag hallarinnar er demantslaga og lýst
upp með 9.500 led-ljósum. Hægt er að breyta um lit á yfirborðinu og
forma þannig hin ýmsu merki líkt og gert var í undankeppnunum þegar
fánalitir hvers lands birtust á yfirborði hallarinnar og vörpuðust út í nátt-
myrkrið.
Ekki fara allir sáttir heim frá Bakú því sextán lönd komust ekki áfram
í aðalkeppnina í kvöld. Allar Norðurlandaþjóðirnar keppa í kvöld fyrir
utan Finnland.
Þau lönd sem sitja eftir með sárt ennið eru:
ÞAU SITJA EFTIR
Svartfjallaland
Lettland
Rúmenía
Sviss
Belgía
Finnland
Ísrael
Kýpur
Slóvakía
Króatía
Slóvenía
Búlgaría
Portúgal
Hvíta-Rússland
Holland
Georgía
Þótt löndin hafi ekki
komist áfram í aðal-
keppnina taka þau
þátt í atkvæðagreiðsl-
unni í kvöld.
TAKE
AW
AY T
ILBO
Ð
56
2
38
38
SUÐURLANDSBRAUT 12 | LAUGAVEGUR 81 BRAGAGATA 38a
16”PIZZ
A
24
95.- með tveim
ur ále
ggju
m
& 12” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
2
16”PIZZ
A
34
95.-
af m
atseð
li
& 16” MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
3
16”PIZZ
A
18
95.-með tveim
ur ále
ggju
m
1
Back Roller classic:
23.900,- (parið)
Front Roller classic:
19.900,- (parið)
Back Roller city:
17.900,- (parið)
Ultimate 5
stýristaska: 15.900,-
Bike Shopper:
14.900,-
Down Town: 24.900,- Messenger Bag:
20.900,-
Sölustaðir:
Kría Hólmaslóð 4 Reykjavík
Útilíf Holtagörðum Reykjavík
Framleitt í Þýskalandi
Smiðsbúð 6 Garðabæ sími 564 5040
www.hirzlan.com