Fréttablaðið - 26.05.2012, Side 43
Aðdáendur og unnendur tónlistar Svavars Knúts ættu að setja í til-hlökkunargírinn þar sem hann
vinnur að annarri sólóplötu sinni með
frumsömdu efni um þessar mundir.
„Ég hef alltaf tekið upp plöturnar
mínar „live“ en núna er ég í fyrsta skipti
að eyða meiri tíma í stúdíóinu, þannig að
þetta verður stuð.“ Nýlega kom Svavar
úr tónleikaferðalagi þar sem hann
heimsótti nokkur lönd Evrópu en spilaði
þó mest í Þýskalandi. „Ég spilaði í sam-
komuhúsum, kirkjum, börum og jafnvel
heimahúsum. Svo fer ég aftur út núna á
næstunni að klára smá verkefni.“ Svavar
hefur komið sér upp góðu tengslaneti
erlendis í gegnum tíðina og spilar á 80-90
tónleikum á ári erlendis. „Til að svona
ferðalag gangi upp þarf ég að spila dag-
lega svo að þetta er ágætis keyrsla. En
það er virkilega dásamlegt að geta lifað á
því að spila tónlistina sína.“
Aðspurður um Eurovision segist
Svavar vera mikill aðdáandi og muni að
öllum líkindum enda í góðum félags-
skap í kvöld þar sem keppnin verði á
skjánum. „Mér finnst best þegar sungið
er á móðurmálinu og var einmitt að
pikka upp danska Eurovision-lagið síðan
1957 á kassagítarinn. Það heitir Skibet
skal sejle i nat og er sungið af Birthe
Wilke og Gustav Winckler. Þau fóru svo
óvart í lengsta sleik sem birst hafði í
sjónvarpi frá upphafi í lok lagsins, en
áttu bara að kyssast svona létt þar til að
það kviknaði á ljósi, ljósið fór eitthvað
fram hjá þeim svo þau héldu bara áfram
í sleik. Hún er svo falleg og hann svo
skotinn í henni að það er alveg dásam-
legt. Ég hvet fólk til að líta á myndband-
ið á Youtube.“
Svavar tekur því rólega þessa dagana
og nýtur þess að vera með fjölskyld-
unni. Næstu tónleikar hans hér á landi
verða í júní en fólk getur fylgst með því
sem er fram undan og hlustað á tón-
dæmi ásamt öðru skemmtilegu efni á
heimasíðum kappans. ■ vidir@365.is
SÓLÓPLATA Í VÆNDUM
SÁTTUR VIÐ LÍFIÐ Tónlistarmaðurinn og fagurkerinn Svavar Knútur vinnur
að nýrri sólóplötu og nýtur þess að spila tónlist fyrir fólk víðs vegar um heim.
HEMASÍÐUR
SVAVARS KNÚTS
■ www.svavarknut-
ur.com
■ www.svavar-
knutur.band-
camp.com/
SVAVARI KNÚTI fagurkera
og markgreifa þykir gott að fá
sér kaffisopa á Kaffi Haíti og
vinna að hugmyndum sínum.
FERÐAHELGI FRAM UNDAN
Vel viðrar til tjaldútilegu á Norður- og Austurlandi
þessa fyrstu stóru ferðahelgi ársins. Ferðamenn í
öðrum landshlutum eru þó öruggari í húsbílum,
tjaldhýsum og sumarbústöðum. Aðalmálið er þó
að finna sjónvarp á laugardagskvöldið þegar
Eurovision-keppnin er haldin.
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Vald
ar v
öru
r á
allt
að %50afslætti
Stakir sófar
Tungusófar
Hornsófar
Leður sófasett
Borðstofustólar
Hægindastólar
Rúmgaflar
Heilsukoddar
Púðar
frá 86.450kr.
frá 85.450kr.
frá 142.950kr.
frá 199.900kr.
frá 12.900kr.
frá 59.900kr.
frá 5.900kr.
frá 3.000kr.
frá 2.900kr.
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
H Ú S G Ö G N
Næstu heilsunámskeið
1. júní, 6. júlí og 3. ágúst, í tvær vikur
Upplýsingar í síma 512 8040
www.heilsuhotel.is
Sunnudaga á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS