Fréttablaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 98
26. maí 2012 LAUGARDAGUR58
Hljómsveitin Thin Jim var að
senda frá sér nýtt lag sem heit-
ir Fjólubláar sóleyjar. Þetta er
fyrsta lagið sem hljómsveitin
sendir frá sér með íslenskum
texta. Lagið er sungið af Margréti
Eiri og Þór Breiðfjörð, sem hefur
farið á kostum í söngleiknum
Vesal ingunum i Þjóðleikhúsinu.
Margrét og Þór unnu fyrst saman
í Hárinu árið 1994.
Næstu tónleikar Thin Jim
verða á Café Rosenberg í kvöld
þar sem Þór ætlar að koma og
syngja dúettinn með Margréti.
Aðal gestur kvöldsins verður Páll
Rósin krans sem ætlar að syngja
ný lög með hljómsveitinni.
Fyrsta lagið á íslensku
NÝTT LAG Fyrsta lag Thin Jim á íslensku er komið út.
Það hefur komið gamanleikar-
anum Will Ferrell mjög á óvart
hversu margir vilja taka þátt í
framhaldsmyndinni Anchorman
2. Stutt er síðan Ferrell tilkynnti
að hann ætlaði að endurtaka hlut-
verk sitt sem fréttaþulurinn Ron
Burgundy í myndinni.
Að sögn Ferrells er handritið
enn í vinnslu og hefjast tökur
snemma á næsta ári. „Fullt af
fólki hefur sent okkur tölvupóst
og hringt í okkur og sagt: „Ég
skal gera hvað sem er í þessari
mynd.“ Það er ótrúlega mikið
hrós og það er virkilega gaman
að fá svona góð viðbrögð við
þessari framhaldsmynd.“
Anchorman mjög vinsæl
WILL FERRELL Leikarinn er ánægður
með áhugann á Anchorman 2.
NORDICPHOTOS/GETTY
Will.i.am úr hljómsveitinni
Black Eyed Peas þarf á hjálp
tölvutækninnar að halda þegar
hann syngur lög í hljóðveri.
Vegna þess að hann hefur lítinn
tíma og rödd hans er ekki alveg
nógu góð notast hann við forritið
Auto-tune til að aðstoða sig.
„Ég nota Auto-tune vegna
þess að ég bæði sem og tek upp.
Ég er oft einn í hljóðverinu og
enginn vinnur jafnmikið og
ég geri. Tölvan hjálpar mér að
búa til tónlist með eigin söng í
stað þess að bíða eftir að aðrir
komi að syngja fyrir mig,“ sagði
Will.i.am en bætti við að hann
sé einnig að vinna í því að bæta
söngrödd sína.
Tölvan lagar röddina
ÓFEIMINN Will.i.am er ófeiminn við að
notast við tölvutæknina.
Zac Efron segir að það hafi verið
krefjandi að leika í myndinni The
Paperboy og að hlutverkið sé öðru-
vísi en fólk eigi að venjast frá
honum.
Hinn 24 ára leikari er þekktastur
fyrir High School Musical-mynd-
irnar. Í dramanu The Paperboy
leikur hann á móti Nicole Kidman
og Matthew McConaughey og við-
urkennir að það hafi verið gaman
að sýna á sér nýja hlið. „Ég er mjög
ánægður með það sem ég hef gert
hingað til en þetta var nýtt fyrir
mér og ótrúlega gefandi. Þetta
var draumur í dós og vonandi get
ég haldið áfram á þessari braut,“
sagði Efron á Cannes-hátíðinni.
Í myndinni er hann mikið á nær-
buxunum og viðurkennir að það
hafi verið óþægilegt að taka upp
þau atriði. „Ég held að mér hafi
ekkert átt að líða vel. Persónan er
að læra inn á lífið og tilveruna og
það getur verið mjög óþægilegt en
það er líka mjög spennandi.“
Kidman hafði gaman af því að
fækka fötum í myndinni og segir
að það hafi verið áskorun. „Sem
leikkona var ég búin að leita í
nokkurn tíma að einhverju hráu
og hættulegu eins og þessu.“ Leik-
stjóri myndarinnar er Lee Daniels
sem síðast sendi frá sér hina vel
heppnuðu Precious.
Óþægilegt á nærbuxunum
KREFJANDI Zac Efron á frumsýningu
The Paperboy í Cannes. Hann segir að
hlutverkið hafi verið mjög krefjandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveitin Retro Stefson
hefur sent frá sér sjö tommu
vínylplötu með laginu Qween.
Á B-hlið plötunnar er að finna
endurhljóðblandaða útgáfu af
laginu eftir Hermigervil. Hann
er einmitt að aðstoða sveitina
við upptökur á næstu plötu
hennar, eins og Fréttablaðið
hefur greint frá. Áætlað er að
hún komi út í lok sumars.
Sjö tomman er gefin út í
takmörkuðu upplagi, aðeins
þrjú hundruð eintökum. Þetta
er fyrsta plata Retro Stefson
undir merkjum útgáfunnar
Record Records.
Sjö tomma
frá Retro
RETRO STEFSON Hljómsveitin hefur
gefið út sjö tommu með laginu
Qween.