Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 62
26. maí 2012 LAUGARDAGUR16
Staða leikskólastjóra við Sunnufold
Skóla- og frístundasviðs
Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra við Sunnufold
Leikskólinn Sunnufold er sameinaður leikskóli í Foldahverfi sem starfar á þremur starfsstöðvum við Frostafold 33,
Logafold 18 og Funafold 42, 112 Reykjavík.
Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfileika sem er reiðubúinn til að stýra stefnumótun og uppbyggingu í samein-
uðum leikskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Vera faglegur leiðtogi leikskóla og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
• Stýra rekstri leikskóla á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við aðila utan hans.
Hæfniskröfur
• Leyfisbréf sem leikskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri.
• Góð tölvukunnátta.
• Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
Óskað er eftir því að með umsókninni fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn á starf í leikskóla sem staðsettur
er í þrem húsum og hvernig umsækjandi uppfyllir menntunar-og hæfniskröfur. Einnig fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf,
leyfisbréf leikskólakennara og annað er málið varðar.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu Skóla- og frístundasviðs.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2012.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ vegna FL. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, sími 411 1111.
Netfang : hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laus staða skólastjóra við
sameinaðan leik- og grunnskóla
í Hvalfjarðarsveit.
Staða skólastjóra við sameinaðan leik- og grunnskóla í Hval-
fjarðarsveit er laus til umsóknar.
Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga til að samþætta
og leiða þróttmikið og krefjandi skólastarf. Haustið 2011 voru
leikskólinn og grunnskólinn sameinaðir. Í skólanum eru um
130 nemendur. Grunnskólasvið er í nýju húsnæði sem tekið
var í notkun í ágúst sl. og á skólasvæðinu er íþróttamiðstöð
sem tilheyrir rekstri skólans. Félagsmiðstöð ungmenna hefur
aðstöðu í skólanum. Leikskólasvið er í nýlegu húsnæði og
eru ca. 4 km á milli skólabygginga. Skóli sveitarfélagsins er
Grænfánaskóli og mikil áhersla er lögð á umhverfismennt og
útinám.
Starfssvið:
• Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu- uppeldis og
þróunar í skólastarfi innan ramma laga og reglugerða og í
samræmi við aðalnámskrár leik- og grunnskóla og
skólastefnu Hvalfjarðarsveitar.
• Leiða öflugt samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og
skólasamfélagsins í heild.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans, íþróttamiðstöðvar og
daglegri starfsemi.
Menntunar-og hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi og kennslureynsla á leik- og/eða
grunnskólastigi.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og
kennslufræða er æskileg.
• Reynsla af stjórnun, rekstri skóla og þróunarstarfi
er æskileg.
• Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og
leiðtogahæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í
skólamálum, er skapandi, metnaðarfullur og tilbúinn að takast
á við krefjandi starf.
Staðan er laus frá 1. ágúst 2012. Æskilegt er að viðkomandi
geti komið að skólastarfinu sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is og fylla út almenna
atvinnuumsókn og senda á Innrimel 3, 301 Akranes. Umsókn
þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til
kennslu, meðmæli og upplýsingar um frumkvæði á sviði
skólamála. Kynnisbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum
umsóknar og rökstuðningur um hæfni umsækjenda um
starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar:
Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, sími 4338500
laufey@hvalfjardarsveit.is
Vefsíða skólans er http://www.skoli.hvalfjardarsveit.is/
Í Hvalfjarðarsveit er mannvænt og blómlegt samfélag. Með
nýjum lögum og námskrám fyrir leik- og
grunnskóla hafa skapast tækifæri til þess að hafa heildarsýn yfir
skólamál sveitarfélagsins á einni hendi. Með sameiginlegum leik
og grunnskóla er leitast við að efla faglegt starf, skapa samfellu
í menntun og skólastarfi og byggja upp skólabrag með þeim
hætti að það verði eftirsóknarvert að búa og ala upp börn
í Hvalfjarðarsveit.
Skólastjóri
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja eða tæknimenntaðan aðila
í vinnu við að þjónusta siglingar- og fiskileitartæki og annan
tengdan búnað.
Brúin ehf starfar í þjónustu við sjávarútveg og er með starfstöð á
Akureyri. Óskað er eftir vönum aðila sem getur unnið sjálfstætt og
í teymi með öðrum.
Nánari upplýsingar veitir Finnur í síma 8945572.
Umsóknir skulu sendar á netfangið finnur@bruin.is eða í
pósti á: Brúin ehf. Baldursnesi 4, 603 Akureyri.
RAFEINDAVIRKI
ILVA er falleg húsgagna og gjafavöruverslun frá Danmörku.
Verslunin er rekin í 7000m² húsnæði á Korputorgi. ILVA er orðin þekkt meðal
landsmanna er varðar gæði, verðlagningu og þjónustu. Við viljum vera stolt af
starfsfólki okkar og að starfsfólk okkar sé stolt af okkur.
Verslunarstjóri er ábyrgur fyrir daglegum rekstri verslunarinnar sem og
starfsmannahaldi. Hann hefur yfi rumsjón með sölu og þjónustu.
Við leitum að kröfuhörðum einstaklingi og hæfi leikaríkum stjórnanda, sem hefur
næmt auga fyrir straumum og stefnum í húsgögnum og gjafavöru. Viðkomandi
þarf að vera lipur í samskiptum, hugmyndaríkur og fylginn sér til framkvæmda.
Starfsreynsla af sambærilegu er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk.
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf., veitir frekari upplýsingar,
en viðtalstími er frá kl.13-15 alla virka daga.
Vinsamlega sendið umsóknir/ferilskrár til stra@stra.is .
Við bjóðum glæsilegt vinnuumhverfi og góða starfsþjálfun.
Áhugasamir geta sótt um á www.ILVA.is eða sent umsóknir á netfangið ilva@ilva.is
einfaldlega betri kostur
ILVA óskar eftir að ráða
öfl ugan verslunarstjóra