Fréttablaðið - 15.06.2012, Síða 23
Matreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þáttinn Eldað með Holta á
sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þar matreiðir
hann skemmtilega og litríka rétti með
Holtakjúklingi frá Reykjagarði. Næstu
föstudaga mun hann bæta um betur
með girnilegum kjúklingaréttum á for-
síðu Fólks. Hér er hann með uppskrift að
grilluðum kjúklingi í sterkum kryddlegi
með kartöflubátum sem velt er upp úr
rósmarínkryddblöndu og heimalagaðri
hvítlaukssósu. Einfaldur og þægilegur
réttur sem tilvalið er að skella á grillið.
Hægt er að fylgjast með Kristjáni mat-
reiða þennan girnilega rétt í kvöld klukk-
an 21.30 á sjónvarpstöðinni ÍNN. Þætt-
irnir eru endursýndir yfir helgina en
einnig er hægt að horfa á þá á heima-
síðu ÍNN, www.inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Hlöðversson í þáttunum Eldað
með Holta á ÍNN gefur kjúklingauppskriftir alla föstudaga. Hér er hann með
grillaðan kjúkling í sterkum kryddlegi með rósmarínkartöflum.
BÍTLADJASS Á JÓMFRÚNNI
Feðginin Stefán S. Stefánsson og Erla Stefánsdóttir
koma fram á tónleikum á Jómfrúartorgi á morgun
kl. 15. Auk þeirra skipa hljómsveitina trompetleikar-
inn Snorri Sigurðarson, píanóleikarinn Vignir Þór Stef-
ánsson, bassaleikarinn Birgir Bragason og trommuleikarinn
Erik Qvick. Þau flytja eigin útsetningar af tónlist Bítlanna.
STERKUR KRYDDLÖGUR
1 dl corn-olía
1 msk. tabasco-sósa
1 tsk. salt
1 tsk. tom yum-mauk
1 tsk. red curry frá Thai Choice
1/2 poki fersk steinselja
2 stk. rauður chili-pipar, fræ-
hreinsaður
Öllu blandað saman með töfra-
sprota.
KJÚKLINGURINN
1/2 Holtakjúklingur, látinn liggja
í kryddleginum í 40 mínútur og
síðan grillaður í um 40 mínútur
RÓSMARÍNKARTÖFLUBÁTAR
1/2 dl corn-olía
3 tsk. rósmarín
1 msk. sojasósa
Salt og pipar
Kartöflur skornar í sex báta, velt
upp úr leginum og grillaðar í um
20 mínútur.
HVÍTLAUKSSÓSA
180 ml sýrður rjómi, 10%
1 dós hrein jógúrt
1 tsk. kraminn hvítlaukur
söxuð steinselja
2 tsk. hrásykur
1 tsk. grófur svartur pipar og salt
Allt hrært saman í skál
GRILLAÐUR KJÚKLINGUR, KARTÖFLUBÁTAR
OG HVÍTLAUKSSÓSA
STERKUR KJÚKLINGUR
Grillaður Holtakjúklingur í
sterkum kryddlegi með hvít-
laukssósu og kartöflubátum.
Fylgist með kl. 21.30 í kvöld á
ÍNN. MYND/VILHELM
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk
kennslubók í
matreiðslu fylgir.
MIKIÐ ÚRVAL
BRÚÐARGJAFA
FOR THE WAY IT´S MADE
Gildir um KitchenAid
hrærivélar.