Fréttablaðið - 21.07.2012, Qupperneq 4
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR4
NÝ BÓK
FRÁ
HUGLEIKI
FJÖLMIÐLAR Hafið hefur göngu
sína tímaritið Iceland Review
Street Edition sem gefið er út í
samstarfi Jóns Kaldals, fyrrum
ritstjóra Iceland Review, og
útgáfufélagsins Heims. Upplag
blaðsins, sem
kemur út aðra
hvora viku er
um 25 þúsund
eintök og er
áhersla lögð
á að kynna
vaxandi fjölda
ferðamanna
land og þjóð.
Í fyrsta tölu-
blaðinu, sem
tekið var að dreifa í gær, er meðal
annars ítarleg umfjöllun um erlent
eignarhald á bújörðum. Fjallað
er um leigu Huangs Nubo á landi
Grímsstaða á Fjöllum og tekin
dæmi um aðra útlendinga sem hér
eiga stórar jarðir. - óká / bþh
Fyrsta tölublaðið komið út:
Fjalla um jarðir
í erlendri eigu
ICELAND REVIEW
STREET EDITION
MENNING Katrín Jakobs dóttir
mennta málaráðherra segist
undrast orð Valtýs Valtýssonar,
sveitarstjóra Bláskógabyggðar.
Hann sagði í Fréttablaðinu á mið-
vikudag að engin svör hefðu fengist
frá ráðuneytinu varðandi málefni
gamla héraðsskólans á Laugarvatni.
Sögufrægt hús héraðs skólans
er í eigu hins opinbera og stendur
tómt en bæði Gullkistan og
sveitar félagið vonast eftir því að
fá afnot af því.
„Það er ekki hægt að segja að
það hafi engin viðbrögð fengist frá
okkur því við höfum átt í heilmikl-
um samskiptum,
nú síðast í vor,“
segir Katrín.
Hún segir enn
fremur að þegar
farið var í end-
urbætur á hús-
inu, sem reynd-
ar var gert fyrir
hennar ráð -
herratíð, hafi
það verið gert í
samráði við sveitarstjórnarmenn
enda hafi það staðið til að sveitar-
stjórnin færi með hluta af starf-
semi sinni þangað inn.
„Síðan hefur ekki gengið að ná
leigusamningum,“ segir Katrín.
„Viðræðurnar hafa snúist um viss
afsláttarkjör en það er ekki hægt
að segja að málið sé pikkfast heldur
þarf fólk bara að ræða saman og
komast að einhverri niður stöðu.“
Sveitarfélagið falast einungis eftir
hluta hússins og segist mennta-
málaráðherra opinn fyrir við-
ræðum um það hverjir nýti hinn
hlutann. „Til dæmis Gullkistan ef
það gæti farið saman,“ segir hún.
Kostnaður við endur bæturnar
á húsinu nam um það bil 270
milljónum króna. - jse
Ríkið og Bláskógabyggð reyna að semja um héraðsskólann á Laugarvatni:
Ná ekki saman um leiguna
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Ranghermt var í frétt Fréttablaðsins
í gær að faðir Emils Ólafssonar hefði
fengið hjartaáfall þegar hann fékk í
raun hjartatruflanir. Þá þurfti hann
ekki að bíða eftir skoðun á bráða-
móttöku í tæpa sex tíma heldur fékk
hann rafvendingu að þeim tíma
liðnum. Loks greindist hann ekki með
krabbamein í fyrra eins og kom fram
í fréttinni.
LEIÐRÉTT
ÖRYGGISMÁL Nokkur tilvik hafa
komið upp þar sem starfsmenn
Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR)
hafa misst meðvitund við störf
sín vegna brennisteinsvetnis við
holur á Þeistareykjum. Viku-
blaðið Akureyri greinir frá þessu.
Enginn hefur enn slasast eða
hlotið varan legt heilsutjón vegna
þessa.
Í tölvupósti sem sendur var
til starfsmanna ÍSOR voru þeir
beðnir um að tilkynna slys af
þessu tagi til Vinnueftirlitsins.
Til eru þó nokkur dæmi um að
starfsmenn virkjana fái aðsvif við
störf sín vegna loftefna mengunar.
Vinnueftirlitið hefur skráð átta
slys á síðustu sjö árum þar sem
brennisteinsvetni er orsakavaldur
eða það talið hafa komið við sögu.
Þá er Vinnueftirlitinu kunnugt
um tilvik þar sem brenni-
steinsvetni er talið hafa valdið
óþægindum þó það hafi ekki leitt
til rannsóknar eða skýrslutöku.
Eitt þessara slysa var banaslys
þar sem tveir starfsmenn í Hellis-
heiðarvirkjun létust árið 2008.
Dánar orsök er talin hafa verið
súrefnisskortur en brennisteins-
vetni kann að hafa stuðlað að því.
Víðir Kristinsson, hjá efna- og
hollustuháttadeild Vinnueftir-
litsins, segir að brennisteins-
vetni leynist ekki aðeins í og við
virkjanir. „Það hafa orðið slys við
uppskipun á fiski vegna rotnunar
og í landbúnaði.“
Brennisteinsvetni er mjög
hættulegt, segir Víðir. „Það geta
verið margar lofttegundir sem
eyða súrefni. Brennisteinsvetni
er sérlega hættulegt því ef það
fer yfir ákveðin mörk deyfir það
eða lamar lyktarskynið og öndun-
arfæri geta lamast.“
Meðal starfsmanna í jarð-
varmavirkjunum, við byggingu
eða viðhald þeirra, gildir almennt
sú regla að starfsmenn séu með
mæla á sér sem pípa ef mengun-
in fer yfir ákveðin mörk. Víðir
segir þau mörk vera mjög lág til
að vernda starfsfólkið. „Ef það
verður eitthvað óhapp þá fá menn
bara gusu yfir sig og hafa engan
tíma til að forða sér. Þá er meng-
unin langt yfir þeim mörkum sem
mælarnir eru stilltir á.“
„Það fer svolítið eftir aðstæðum
hversu strangar kröfur eru
gerðar,“ segir Víðir og bendir á að
mörk fyrir starfsfólk í iðnaði eru
önnur en almenn umhverfismörk.
„Þau eru miklu lægri. Þá er verið
að reyna að koma í veg fyrir óþæg-
indi almennings og verið að hlífa
veiku fólki.“ birgirh@frettabladid.is
Líður yfir starfsfólk
vegna loftmengunar
Starfsmenn virkjana hafa fallið í yfirlið vegna súrefnisskorts af völdum brenni-
steinsvetnismengunar. Vinnueftirlitið hefur skráð átta slys á síðustu sjö árum,
þar af eitt banaslys. Vitað er um fleiri atvik sem ekki hafa verið skráð.
HELLISHEIÐARVIRKJUN Banaslys varð í Hellisheiðarvirkjun árið 2008 þar sem brenni-
steinsvetni olli líklega eyðingu súrefnis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Vísitala byggingar-
kostnaðar lækkaði um 0,2 prósent
á milli júní og júlí, samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofunni.
Verð á innfluttu efni lækkaði um
0,8 prósent, en vísitalan er 115,1
stig um miðjan júlí. Byggingar-
vísitalan hefur hækkað um 3,9
prósent á síðustu tólf mánuðum.
Launavísitalan er hins vegar
nær óbreytt á milli mánaða,
hækkaði um 0,04 prósent í júní
frá fyrra mánuði. Síðastliðna
tólf mánuði hefur launavísitalan
hækkað um 6,9 prósent. - kóp
Launavísitala nær óbreytt:
Byggingarvísi-
talan lækkar
ÓSÁTTIR SPÁNVERJAR Hundruð þúsunda
héldu út á götur Spánar í fyrrakvöld.
NORDICPHOTOS/AFP
SPÁNN, AP Fjármálaráðherrar
Evrópusambandsins samþykktu
í gær að greiða Spánverjum 100
milljarða evra í fjárhagsaðstoð,
eða um 1.520 milljarða króna, til
að rétta við illa stadda banka.
Hundruð þúsunda Spánverja
héldu hins vegar út á götur í
fyrrakvöld til að mótmæla niður-
skurði á ríkisfjármálum, sem
stjórnvöld eru að ráðast í þessa
dagana.
Christobal Montoro, fjármála-
ráðherra Spánar, sagðist í gær
reikna með að samdráttur verði
áfram á Spáni fram á næsta ár og
atvinnuleysi verði áfram hátt í 25
prósent. - gb
ESB samþykkir aðstoð:
Mótmæli gegn
niðurskurði
NOREGUR Þjófar sem vísað hefur
verið úr landi í Noregi og þeir
flutt heim til sín koma strax
aftur. Dómsmálaráðherra Noregs,
Grete Faremo, telur að þeir sem
koma ólöglega til Noregs eftir að
hafa verið vísað úr landi eigi að
fá þyngri refsingu. Norska lög-
reglan segir að refsingin eigi að
vera það þung að hún hafi fælandi
áhrif, að því er kemur fram á vef
Aftenposten.
Árið 2009 streymdu þjófar
sem sérhæfðu sig í innbrotum
í bústaði frá Austur-Evrópu til
Óslóar. Fyrstu sex mánuði ársins
voru skráð 918 innbrot. Þeim
hefur fækkað verulega en sömu
þjófarnir koma aftur og aftur. - ibs
Vilja þyngri refsingar:
Úthýstir þjófar
koma til baka
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
29°
28°
17°
20°
20°
20°
18°
18°
27°
19°
32°
27°
33°
19°
22°
23°
16°Á MORGUN
5-10 m/s
Hvassara á Vestfjörðum.
MÁNUDAGUR
10-15 m/s V-til,
annars hægari.
13
13
12
15
13
10
13
12
11
14
6
9
7
8
3
4
8
4
5
7
14
6
15
11 16
16
13 11
8 8
14
14
VINDUR & VÆTA Í
dag má búast við
vaxandi vindi og
vætu, fyrst S- og
SV-til en úrkomu-
svæðið ferðast
norður á bóginn og
í kvöld og nótt má
búast við rigningu
á öllu landinu. Á
morgun verður
vindur genginn að
mestu niður en
horfur á rigningu
eða skúrum víða.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 20.07.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,9849
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,51 125,11
195,46 196,42
152,24 153,1
20,463 20,583
20,502 20,622
17,941 18,047
1,5846 1,5938
187,37 188,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Brennisteinsvetni er
sérlega hættulegt því
ef það fer yfir ákveðin mörk
deyfir það eða lamar lyktar-
skynið og öndunarfæri geta
lamast.
VÍÐIR KRISTINSSON
STARFSMAÐUR VINNUEFTIRLITSINS