Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 62
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR38 „Hapkido er bardagalist ættuð frá Kóreu og að mörgu leyti náskyld taekwondo og aikido. Það má líkja þessu við innanhúsfótbolta og utanhúsfótbolta, eiginlega sama íþróttin en öðruvísi reglur, aðferðir og spilamennska,“ segir Sigursteinn Snorrason, yfirþjálfari Hap- kido Iceland, sem er nýkominn heim frá Kóreu þar sem hann bjó og vann sem taekwondo-þjálfari. Þetta er í fyrsta skipti sem hapkido er kennt hérlendis og segir Sigursteinn hvern sem er geta iðkað íþróttina. „Þeir sem eru með reynslu úr bardaga- íþróttum standa tvímælalaust betur að vígi þegar þeir byrja í Hakido en það eru mjög margir að byrja sem eru ekki með neina reynslu. Eins og er kennum við öllum eins og byrj- endum en með tímanum förum við að skipta fólki niður eftir getu,“ segir hann. Fatnaðurinn í hapkido er sams konar galli og í karate, nema svartur og með merk- ingar sem gefa til kynna hvaða íþrótt sé verið að stunda og hvar. „Það er ekki enn hægt að fá gallana á Íslandi en við erum í góðu sambandi við birgi í Kóreu og getum pantað beint í gegnum hann. Við hendum samt engum út þó hann mæti á stuttbuxum, það má alveg,“ segir Sigursteinn og hlær. Að sögn Sigursteins er hapkido fyrst og fremst sjálfsvarnaríþrótt sem leggur mikið upp úr heimspeki og hugleiðslu og með meira af reglum og hefðum en eru í MMA, blönduðum bardagaíþróttum. 16 ára aldurstakmark er til að æfa íþróttina og skilyrði að vera með punghlíf, tanngómshlíf og hlífar fyrir hendur og fætur á æfingum. Hapkido Iceland býður upp á ókeypis æfingar í Combat Gym Ármúla 1 út júlímánuð, Allar nánari upplýsingar má finna á heima- síðunni hapkido.is. - trs PERSÓNAN Rúnar Geirmundsson Aldur: Er að verða 21 árs. Starf: Sund- laugavörður. Foreldrar: Guðbjörg Friðfinnsdóttir, starfsmaður í skóbúð, og Geirmundur Vil- hjálmsson, alt mulig mand. Fjölskylda: Einhleypur og barnlaus, en á einn bróður. Búseta: Á Grundarfirði. Stjörnumerki: Vog. Rúnar er nýr meðlimur hljómsveitarinnar Endless Dark. „Okkur fannst þessi rassendi á mið- bænum, það er að segja Hlemmur og Barónsstígur, þurfa á smá and- litslyftingu að halda. Við ræddum fyrst við húseigendur í kring og þeir tóku vel í hugmyndina og þá bárum við þetta undir Reykjavíkurborg og hún aðstoðar okkur við verkefnið,“ segir Pétur Marteinsson, eigandi og framkvæmdastjóri á Kexi hosteli, sem stendur við Skúlagötu 28. Pétur og meðeigendur hans hafa ráðist í framkvæmdir á svæðinu á milli Kexins og verslunarinnar 10-11 og ætla að skapa þar grænt svæði. „Við tókum við húsnæðinu í nóvember árið 2010 og lögðum þá áherslu á að við fengjum smá skika af lóðinni fyrir ofan okkur til að geta haft meiri áhrif á ásýnd Kex- ins og nú viljum við fara að gera fal- legt í bakgarðinum okkar,“ útskýrir Pétur. Á svæðinu var áður malarbíla- stæði sem geymdi nokkur bílhræ og var að því lítil prýði fyrir íbúana í kring. Þegar hefur verið ráðist í framkvæmdir á svæðinu og vonar Pétur að það verði orðið nothæft í lok mánaðarins. „Við erum byrjaðir að móta svæðið og fáum til þess aðstoð frá Veraldarvinum sem búa á móti okkur á Hverfisgötunni. Á árum áður stóð hér viti og á grunni Skúla- götu 28 var saltfisksplan, það væri gaman að geta gert einhvers konar minnisvarða um gamla tíma þarna.“ Einnig eru uppi hugmyndir um að reisa gróðurhús á skikanum og rækta þar grænmeti fyrir veitinga- stað Kexins. Inntur eftir því hvort garðurinn fái að standa óhreyfður um óákveð- inn tíma segir Pétur það ekki öruggt því að reitnum fylgi byggingarétt- ur sem hann og með eigendur hans hafa enga stjórn á. „Ég segi bara er á meðan er. Á meðan reiturinn stendur ónýttur getum við í það minnsta haft það huggulegt þarna.“ - sm Kex-menn fegra bakgarð sinn FEGRA BAKGARÐINN Pétur Marteins- son og félagar hans á Kexi hosteli eru byrjaðir á að skapa grænt svæði við Hverfisgötuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Verslunin Frúin í Hamborg hættir rekstri þann 28. júlí næstkomandi. Verslunin hefur verið starfrækt í tíu ár og nýtur mikilla vin- sælda meðal Akureyringa sem og innlendra og erlendra ferðamanna. Þorbjörg Halldórsdóttir og Guðrún Jóns- dóttir reka Frúna í Hamborg og segja breyttar aðstæður ráða því að þær ætli að hætta rekstri. „Ég keypti húsnæðið sem við erum í árið 2007 og eftir hrun hækkuðu afborganirnar tölu- vert og innkoma okkar var lítil þannig að þetta varð okkur þungur róður. Þó verslunin sé full á sumrin þá detta viðskiptin óhjákvæmilega niður á haustin í svona litlu bæjarfélagi. Við tókum ákvörðunina um að hætta í vor og vissu- lega er maður svolítið sorgmæddur. Við erum með mikið af fastakúnnum og á tímabili vorum við hættar að þora að segja fólki frá því að við ætluðum að loka því það varð alveg miður sín og sumir fóru jafnvel að gráta,“ segir Þorbjörg. Verslunin var opnuð árið 2003 og flutti í nýtt húsnæði árið 2007. Nafn verslunarinnar er þannig tilkomið að Þorbjörg og Guðrún ætluðu upphaflega að leigja í húsi sem heitir Hamborg og þótti því tilvalið að nefna búðina Frúna í Hamborg. Þó verslunin hafi á endanum aldrei verið rekin í Hamborgar-húsinu ákváðu vin- konurnar að halda nafninu. Innt eftir því hvað taki við að þessu loknu segir Þorbjörg það óráðið. „Við verðum að fara til spákonu,“ gamnast hún með en bætir svo við: „Er það ekki oftast þannig að þegar einar dyr lokast að þá opnast aðrar? Maður veit aldrei hvað gerist.“ Verslunin verður opin alla daga fram að lokum. - sm Fastakúnnar Frúarinnar felldu tár FRÚIN FLYTUR BURT Þorbjörg Halldórsdóttir og Guðrún Jónsdóttir, sem reka Frúna í Hamborg, hætta með verslunina í lok mánaðarins. Fastakúnnar þeirra felldu sumir tár er þeir fengu fréttirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Lífrænt ofur fjölvítamín náttúrunnar Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína er meira og nýtist betur en úr nokkru öðru fæði. Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er gott gegn streitu. Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni. Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og fullorðnum. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Fríhöfninni og Hagkaup Hraust og hress Árangur strax! www.celsus.is Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin. Vottað lífrænt „Ég varð mjög hissa því ég var orðin vonlaus um að hún mundi nokkurn tímann skila sér og eiginlega búin að taka það í sátt að hún væri horfin að eilífu. Við áttum annan kött sem hafði horfið sporlaust og því vorum við ekki vongóð um að Tsuki mundi finnast,“ segir Karólína Vig- dís Ásgeirsdóttir sem endurheimti nýverið læðuna Tsuki sem hafði horfið sporlaust af heimili sínu í september í fyrra. Karólína Vigdís býr í Þingholt- unum í Reykjavík en hjartagóðir kattavinir fundu Tsuki í Hafnar- firðinum nú fyrir stuttu. Læðan hafði þá verið á vergangi í tæpt ár og var nokkuð illa á sig komin og svöng. Hún var flutt í Kattholt til aðhlynningar og þar kom í ljós að Tsuki var örmerkt og því auðvelt að hafa uppi á eigandanum. „Ég er fólkinu mjög þakklát fyrir að hafa haft upp á henni og tilkynnt hana, þetta minnir á sögurnar um dýrin sem týnast en rata svo aftur heim eftir einhvern tíma. Hún hefur fylgt mér eins og skugginn eftir að hún kom heim og gerir ekki annað en að borða, kúra og hafa það gott. Fyrstu næturnar var hún svolítið óróleg og vaknaði oft og mjálmaði en hún er núna orðin róleg og sátt.“ Innt eftir því hvort Tsuki hafi þekkt eiganda sinn aftur eftir allan þennan tíma segir Karólína svo vera. „Hún var ekki örugg fyrst og mjálmaði alla leiðina heim en um leið og ég gerði smellhljóð sem hún þekkti þá áttaði hún sig hlutunum.“ Móðir Tsuki býr einnig á heimilinu og segir Karólína að mæðgurnar hafi þekkt hvor aðra strax þó það hafi tekið svolítinn tíma fyrir þær að taka hvor aðra í sátt. „Þær fengu fyrst að hittast í gegnum rimlana á búrinu upp á öryggisástæður,“ segir Karólína ánægð að lokum. sara@frettabladid.is KARÓLÍNA VIGDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR: ÉG VAR ORÐIN VONLAUS Læðan Tsuki komst heim eftir tæpt ár á vergangi Tsuki þýðir tungl á japönsku. Læðan litla er með blett á bakinu sem minnti á hálfmána og þaðan er nafngiftin komin. ? KOMIN HEIM Tsuki er komin heim til eiganda síns, Karólínu Vigdísar Ásgeirs- dóttur, eftir að hafa verið á vergangi í tæpt ár. Læðan fannst í Hafnarfirði en hafði horfið frá heimili sínu í Þingholtunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ný bardagaíþrótt fyrir hvern sem er FJÖR Hakido-æfingarnar í Combat Gym hófust fyrst á mánudaginn og eru þegar orðnar vinsælar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.