Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 43
KYNNING − AUGLÝSING
Orka er gamalt og rótgróið fyrirtæki stofnað 1946 og verður því 66 ára í ár. Upp-
haflega var það stofnað til að bora
eftir heitu vatni en með tíð og tíma
þróaðist þjónusta þess út í inn-
flutning á bílrúðum og bílalakki
og alla þjónustu sem þeirri vöru
tengist. Starfsmenn Orku skipta
um fleiri hundruð rúður á ári í
höfuðstöðvunum að Stórhöfða
37 en á vegum fyrir tækisins eru
líka menn sem fara á milli verk-
stæða og skipta fagmannlega um
rúður. „Svo höfum við í nokkur ár
verið í rúðuviðgerðum líka,“ segir
Jóhann G. Hermannsson fram-
kvæmdastjóri. „Það er vakning í
þessu núna, við höfum síðast liðin
fimm ár verið að gera við svona
litlar stjörnur sem koma á fram-
rúðurnar. En núna eftir kreppu
kom meiri þrýstingur frá trygg-
ingafélögum að gera meira við,
sem er bara gott. En það er bara
hægt að gera við litlar stjörnur,
sprungur eltumst við ekki við,“
segir Jóhann sem telur að fyrir-
tækið eigi fram rúður á lager í um
95 prósent af bílum á landinu í
dag. Fyrirtækið er líka með þó
nokkuð magn af afturrúðum á
lager en hliðarrúður eru sérpant-
aðar. Erfitt er að vera með hliðar-
rúður á lager þar sem þær eru svo
mismunandi í laginu.
Þeir sem ætla að skipta um rúðu
hjá Orku hringja og panta tíma,
koma með bílinn að morgni og
fá hann aftur samdægurs. Orka
hjálpar til við útfyllingu á nauð-
synlegum plöggum og inn heimtir
15 prósenta sjálfsáhættugjald
fyrir tryggingafélagið. Viðskipta-
vinurinn þarf aldrei að hafa sam-
band við það sjálfur.
„Við getum oft séð hvar er verið
að vinna í vegum á landinu hér
á verkstæðinu,“ segir Jóhann og
hlær. „Það er mest um brotnar
rúður þar sem verið er að leggja
nýklæðningar og smásteinar
skjótast upp. En svo kemur önnur
törn þegar frystir. Þá hafa menn
fengið lítið steinkast um sumarið
og síðan myndast litlar stjörnur
sem springa út um veturinn. Þetta
tvennt er svona algengast,“ segir
Jóhann.
Hjá Orku starfa níu menn og
eru þeir með áratuga reynslu að
baki og með menntun í faginu.
Sjálfur er Jóhann lærður bifreiða-
smiður sem hefur ófáa bíl rúðuna
hanterað. Hann bendir fólki á
heimasíðu fyrirtækisins á slóðinni
Bilrudur.is.
Það er mest um
brotnar rúður
þar sem verið er að
leggja nýklæðningar og
smásteinar skjótast upp.
Bílrúður21. JÚLÍ 2012 LAUGARDAGUR 7
Skeinuhættar stjörnur
sem springa út
Fyrirtækið Orka að Stórhöfða 37 flytur inn og annast viðgerðir og skipti á bílrúðum.
FRAMRÚÐUTRYGGINGIN
DAUÐ
„Það sem áður hét framrúðu-
trygging heitir nú bílrúðutrygg-
ing, þá eru allar rúður tryggðar í
bílnum,“ segir Jóhann hjá Orku.
Þetta hlýst af því að viðskipta-
vinir voru heldur óánægðir með
að fá ekki nema framrúðuna
tryggða ef brotist var inn í
bílana þeirra og trygginga-
félögin sáu að sér og bættu
þjónustuna. „Nú fær fólk þó
allar rúður nýjar í bílinn,“ segir
Jóhann.
Jóhann Hermannsson, framkvæmdastjóri Orku. HRAÐARI ÞJÓNUSTA
Hjá Orku eru auðvitað notuð
nýjustu og bestu
efnin sem
til eru á
markaði.
Eitt það
mikilvæg-
asta við
ísetningu
á bílrúðum
er límið, en
það hefur þróast
mjög mikið. Í gamla daga var
kíttið miklu lengur að þorna og
því þurfti að bíða miklu lengur
áður en keyrt var af stað eftir
skiptingu. Nú þarf ekki að láta
límið þorna nema í klukku-
tíma áður en keyrt er af stað
áhyggjulaust. Að sögn Jóhanns
hjá Orku má alls ekki keyra af
stað fyrr en límið er orðið alveg
pottþétt, því ef maður lendir í
árekstri og límið er ekki tilbúið,
þá getur farið illa. „Þess vegna
afhendum við aldrei bíl fyrr en
eftir öruggan límtíma. Þetta er
upp á öryggið, maður verður
að búast við því versta,“ segir
Jóhann.
ORKA EHF STÓRHÖFÐA 37
5861900 WWW.BILRUDUR.IS
ER BÍLRÚÐAN
BROTIN?
SKIPTUM UM BÍLRÚÐUR
GERUM VIÐ BÍLRÚÐUR
...Í ÖLLUM GERÐUM BÍLA!
VINNUM FYRIR ÖLL TRYGGINGAFÉLÖGIN
3