Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 21. júlí 2012 5
Tæknimaður óskast
Leitað er eftir Tæknimanni með mikla tölvu og
leiktækjakunnáttu.
Starfið er fjölbreytt, snýr að viðhaldi á öllum tækni-
búnaði. Leitum að samviskusömum og duglegum
einstaklingi, með góða og vandaða framkomu.
Er reglusamur og hefur metnað á að takast á við
krefjandi og jafnframt gefandi og skemmtilegt starf.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknir sendast á arnar@skemmtigardur.is
Umsóknarfrestur er 10.ágúst.
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði
Kokkur eða matráður óskast
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði óskar eftir
kokk eða matráð fyrir skólaárið 2012 - 2013. Við-
komandi þarf að vera stundvís, heiðarlegur og ábyrgur.
Barnaskólinn er 100 barna skóli sem hefur verið starf-
ræktur í sex ár og hefur nú sjötta starfsárið sitt. Haustið
2011 færðist starfssemi skólans í nýtt húsnæði og hefur
eldhúsið verið notað sem móttökueldhús. Fyrir kom-
andi skólaár verður eldhúsið fullbúið og aðgengilegt og
aðstaða til eldunar góð.
Nánari upplýsingar gefur Hildur
Sæbjörg – skólastýra í síma
8999633, netfang hildur@hjalli.
is. Umsóknir berist á þetta net-
fang eða í gegnum heimasíðu
Barnaskólans http://www.hjalli.
is/bsk7610/.
Hársnyrtistofan Mojó óskar
eftir metnaðarfullum hársnyrti
í stólaleigu.
Umsóknarfrestur:
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist
á mojo@mojo.is fyrir 28.07.2012.
Skátafélagið Hraunbúar auglýsir eftir
metnaðarfullum verkefnastjóra í
krefjandi og skemmtilegt starf.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Almenn skrifstofustörf og tölvuvinnsla
• Samskipti við skáta, foreldra og erlenda sjálfboðaliða
• Samskipti og stuðningur við sveitarforingja félagsins
• Samræming og yfirsýn skátastarfs félagsins
• Umsjón með viðburðum
• Ýmis tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
• Almenn tölvukunnátta
• Góðir stjórnunar- og samskiptahæfileikar
• Vandvirkni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Hugmyndaauðgi og frumkvæði í starfi
• Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er
mikill kostur
• Viðkomandi þarf að hafa aðgang að bíl
• Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki seinna
en 15. ágúst 2012
Um er að ræða 50% starfshlutfall. Vinnutími er
mestmegnis síðdegis og á kvöldin og er starfið því
kjörið fyrir námsmenn. Starfsumsókn skal berast á
netfangið starf@hraunbuar.is og skal henni fylgja
ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfi. Fyrirspurnir skulu berast á sama
netfang. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við
skjólstæðing og bera ábyrgð á meðferð
» Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í teymisvinnu
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Góð samskiptahæfni
» Faglegur metnaður
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2012.
» Upplýsingar veitir Ingibjörg Tómasdóttir, iingibjo@landspitali.is, sími 824 5769
og Þórgunnur Hjaltadóttir, torghjal@landspitali.is, sími 825 5136.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá.
» Ráðning byggir m.a. á innsendum gögnum og viðtölum.
Hjúkrunarfræðingar
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á öldrunardeild L2
á Landakoti. Á deildinni eru 18 rúm fyrir sjúklinga sem hafa gilt
vistunarmat og eru að bíða eftir vist á hjúkrunarheimili. Starfshlutfall og
vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef