Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 21. júlí 2012 3
Capacent Ráðningar
Capacent Ráðningar
Borgartúni 27
Sími 540 1000
Umsjón með starfinu hafa Ragnheidur Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum
eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Helstu verkefni aðalbókara eru:
• Almenn bókhaldsstörf, samstæðan er gerð upp í evrum
• Skýrslugerð
• Innheimta og reikningagerð
• Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana
• Erlend samskipti
• Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur:
• Góð reynsla af bókhaldsstörfum
• Menntun sem viðurkenndur bókari mikill kostur
• Góð kunnátta á bókhaldskerfi skilyrði, þekking á Axapta kostur
• Góð tölvufærni, Word, Excel og önnur Office forrit
• Mjög gott vald á ensku
• Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
AÐALBÓKARI
Við bjóðum upp á:
• Fjölbreytt verkefni og krefjandi vinnuumhverfi
• Þátttöku í spennandi verkefnum á alþjóðavettvangi
• Tækifæri til að auka þekkingu þína á alþjóðlegu
viðskiptaumhverfi
• Fyrsta flokks starfsumhverfi með samhentu 8 manna
teymi á aðalskrifstofu samstæðunnar
Promens er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í framleiðslu plastafurða og rekur 42 verksmiðjur í 19 löndum í 4 heimsálfum. Promens framleiðir vörur fyrir breiðan hóp viðskiptavina
í mörgum greinum iðnaðar svo sem umbúðir fyrir matvæli, efnavörur, snyrtivörur og lyf, auk íhluta fyrir fólks- og vörubifreiðar, landbúnaðarvélar og þungavinnuvélar. Promens
leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum upp á lausnir byggðar á sköpunarkrafti og framsýni. Velta Promens á árinu 2011 nam 100 milljörðum króna. Hjá fyrirtækinu starfa
3.800 manns, þar af 80 á Íslandi.
Capacent Ráðningar
Capacent Ráðningar
Borgartúni 27
Sími 540 1000
Landsvirkjun óskar eftir að ráða starfsmann til stöðvargæslu við aflstöðvar á Mývatnssvæði. Aflstöðvar Landsvirkjunar við Kröflu, Bjarnarflag og Laxá eru á
Mývatnssvæði og heyra undir aflstöðvadeild á orkusviði Landsvirkjunar. Um er að ræða tímabundna ráðningu til ársloka 2013 með mögulegri framlengingu.
Umsjón með starfinu hafa Þóra Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum
eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskileg starfsreynsla:
• Reynsla af vinnu við aflstöðvar og raforkuvirki
• Rekstur og viðhald loft-, kæli-, vökva- og rafkerfa
• Reynsla af vélarupptektum og verkstæðisvinnu
• Reynsla af vinnu við iðntölvur og skjámyndakerfi
• Reynsla af verkefnum á sviði viðhalds-, gæða- og öryggisstjórnunar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Vélfræðingsmenntun
• Þekking á jarðgufuvirkjunum æskileg
• Haldgóð tölvukunnátta
• Aðlögunarhæfni og hæfni til þess að tileinka sér nýjungar
• Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum
STÖÐVARGÆSLA MÝVATNSSVÆÐI
Starfssvið
Starfið er fólgið í eftirliti og viðhaldi aflstöðva og veitumannvirkja á svæðinu ásamt verkefna-
bundinni vinnu við framþróun og viðhald vottana í gæða-, öryggis- og umhverfismálum.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um starfið.
Í boði er:
• Fyrirmyndar starfsaðstaða
• Metnaðarfullt og faglegt vinnuumhverfi
• Tækifæri til starfsþróunar
Landsvirkjun er eitt stærsta fyrirtæki landsins með efnahagreikning upp á 4,8 milljarða dala. Helstu viðskiptavinir hennar eru alþjóðleg fyrirtæki og breytingar á raforkumörkuðum
skapa fyrirtækinu ný sóknarfæri. Á síðasta ári setti Landsvirkjun sér nýja stefnu sem leggur áherslu á að hámarka afrakstur af þeim auðlindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með
sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Landsvirkjun stefnir að því að verða eitt af leiðandi orkufyrirtækjum Evrópu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa.
Hjá Landsvirkjun og dótturfélögum hennar starfa um 350 manns með fjölbreytta menntun. Áhersla er lögð á jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar.