Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 25
MIÐALDADAGAR Á GÁSUM Miðaldadagar á Gásum við Eyjafjörð standa nú sem hæst. Þar er reynt að endurskapa hið litríka mannlíf sem blómstraði á 13. og 14. öld en þá voru Gásir mesta umskipunarhöfn landsins. Þar er iðandi markaðstorg og vígamenn á ferð. Guðbjartur Hannesson, velferðar-ráðherra, ætlar á Landsmót skáta sem sett verður um helgina. Hann hefur tekið virkan þátt í skátastarfi frá því hann var barn. „Ég stend alveg undir slagorðinu „Eitt sinn skáti, ávallt skáti.“ Ég reyni alltaf að fara eitthvað á landsmót og mér er formlega boðið á setningu mótsins í ár,“ segir Guðbjartur. Guðbjartur segist nánast alltaf hafa tekið þátt í landsmóti í gamla daga, bæði á Úlfljótsvatni og Hreðavatni. Hann fór einnig á alþjóðlegt skátamót í Lillehammer árið 1975. „Þar fór ég í fyrsta sinn í gönguferð á fjöllum í nokkra daga. Ég byrjaði á því á fyrsta degi að ganga í stuttbuxum og var mikið hælt fyrir hreysti Íslendinga. Þá þurfti ég að sjálfsögðu að gera það allan tímann og lét mig hafa það verandi að drepast úr kulda. Stundum er betra að ætla sér ekki um of í byrjun en þetta endaði nú samt allt saman vel. Maður lærir ýmislegt í skátunum og meðal annars að hegða sér eftir aðstæðum og bregðast rétt við, jafnvel þó maður þurfi að brjóta odd af oflæti sínu,“ segir hann og hlær. Landsmót skáta verður sett á sunnu- dag og koma skátar hvaðanæva að úr heiminum til að taka þátt í því. „Þátt- taka í Landsmóti er afar gefandi. Það er stundum gert grín að skátastarfi og sagt að þar læri fólk bara að hnýta hnúta. Þar öðlast fólk hins vegar mikla reynslu, lærir að bera ábyrgð og öðlast sjálf- stæði. Í skátahreyfingunni er lögð rík áhersla á að bera virðingu fyrir fólki og ólíkum hópum. Þar eru almenn mannleg samskipti kennd og ég hef notið góðs af allri þessari reynslu í mínu ævistarfi. Ég mæli hiklaust með því að bæði börn og fullorðnir taki þátt í skátastarfi. Félagsskapurinn gefur manni svo mikið, það er stór og góður hópur á Akranesi sem heldur enn saman. Svo endurnýjar maður kynnin með því að fara á lands- mót.“ ■ lilja.bjork@365.is SKÁTAR HNÝTA EKKI BARA HNÚTA LANDSMÓT SETT Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra og skáti, ætlar ekki að láta sig vanta á Landsmót skáta sem verður sett um helgina. Hann segir skátastarf vera lærdómsríkt og skemmtilegt. RÁÐHERRA OG SKÁTI Guðbjartur hefur verið skáti frá barnsaldri. Hann ætlar að mæta á setningu Landsmóts skáta á sunnudaginn. MYND/STEFÁN BESTU BROTIN ÚR ÞÁTTUM FM 957 FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.