Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGBílar LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 20126
HRAÐSKREIÐUSTU
BÍLARNIR
Á heimasíðunni The Super Cars
er listi yfir þá bíla sem eru þeir
hraðskreiðustu í heimi á þessu
ári.
Í fyrsta sætinu á listanum er
Bugatti Veyron Super Sport en
hann nær 430 kílómetra há-
markshraða. Hann nær hundrað
kílómetra hraða á klukkustund
á 2,5 sekúndum. Hann var líka
hraðskreiðasti bíllinn árið 2010.
Ef Íslendingar hyggjast festa
kaup á hraðskreiðasta bíl heims
þá þurfa þeir að reiða fram 2,4
milljónir dollara eða sem nemur
rúmlega 303 milljónum íslenskra
króna.
Í öðru sætinu eru tveir bílar
jafnir. Hennessey Venom GT og
Koenigsegg Agera R en þeir
náðu báðir 418 kílómetra hraða
á klukkustund. Venom GT náði
hundrað kílómetra hraða á
rúmlega 2,5 sekúndum og Agera
R var 2,9 sekúndur að ná hundr-
aðinu. Það á þó eftir að prófa
Venom GT betur en hann getur
mögulega náð 442 kílómetra
hámarkshraða. Hann verður
líklega helsti keppinautur Veyron
Super Sport á næstu árum.
LOFTÞRÝSTINGUR Í
DEKKJUM
Jeppafólk á það til að lækka
loftþrýsting í dekkjum til að
auka drifgetuna. Þetta er
nauðsynlegt við snjóakstur en
margir freistast til að gera slíkt
hið sama á grófum malar-
vegum á sumrin, en þannig
verður aksturinn mýkri og
þægilegri fyrir farþega.
Engin dekk eru þó sér-
staklega gerð fyrir lágan
loftþrýsting. Mikilvægt er að
pumpa í dekkin aftur hið fyrsta
þegar aka skal undir eðlilegum
kringumstæðum á ný. Hvassir
steinar geta eyðilagt dekk
auðveldlega.
Þegar ekið er í snjó með
lágum loftþrýstingi í dekkjum
skal gæta þess að þau hitni
ekki. Best er að aka hægt svo
snjórinn nái að kæla þau. Í
hörðum snjó eykst hraðagetan
og þar með hættan á dekkja-
skemmdum.
Dekk sem ekið er með lágan
loftþrýsting eru á ábyrgð
notanda því framleiðendur
samþykkja ekki að lofti sé
hleypt úr dekkjum. Athugið að
umhverfisþættir hafa einnig
áhrif á þrýstinginn, svo sem
hæð yfir sjávarmáli, hitastig,
hæðir og lægðir. Mikilvægt er
að fylgjast alltaf með þegar
ekið er með lágan loftþrýsting í
dekkjum. Heimild: Arctictrucks.is
ÖRYGGI BARNA Í BÍLUM FER BATNANDI
Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu í maí á síðasta ári öryggisbúnað barna í bifreiðum.
Öryggisbúnaður 2504 barna var skoðaður og var farið í 68 leikskóla í þessum erindagjörðum. Slík könnun hefur
farið fram árlega frá árinu 1996 og telur Umferðarstofa ástandið hafa batnað mikið á þessum sextán árum. Engu
að síður er enn hægt að setja út á öryggisþætti barna í bílum. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að
einungis 11,7% barna undir þriggja ára voru í bakvísandi barnabílstólum. Þá sátu 23 börn fyrir framan virkan
öryggispúða, þar af voru sjö börn eingöngu með bílbelti og þrjú alveg laus. Allar þessar niðurstöður voru þó
ívið betri en árið áður og hefur ástandið farið batnandi ár frá ári frá því könnunin var fyrst gerð. Þetta kemur
fram í ársskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2011.
Umferðarstofa leggur mikla áherslu á öryggi barna í umferðinni sem annarra og gerir reglulegar kannanir til að
fylgjast með umferðarmenningu landsmanna. Margt jákvætt kemur fram í ársskýrslunni um bætta hegðun öku-
manna en sérstök áhersla hefur verið lögð á fræðslu nýrra ökumanna. Stofnuð hefur verið sérstök Facebook-
síða í þeim tilgangi. Síðan fékk nafnið Vertu til og er ætlað að miðla upplýsingum til nemenda framhalds-
skólanna.
SONAX býður allt sem þarf: bón fyrir allar gerðir af lakki, felguhreinsi, dekkjahreinsi,
sápur, svampa, vínylhreinsi, gluggahreinsi og fleiri hágæða hreinsivörur.
Glansandi bíll með SONAX bón-
og hreinsivörum grípur augað
4