Fréttablaðið - 21.07.2012, Side 18
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR18
Þú hringir heldur seint. Ég var að enda við að bóka ferð í sólina.
En það verður hægt að nýta þessa
miða líka,“ segir Þórir Tryggva-
son glaðlega þegar hann fréttir
að hann hafi hlotið flugmiða fyrir
tvo til Evrópu með mynd sinni af
fagnandi fótboltastrákum.
Þórir er málari og áhugaljós-
myndari á Akureyri. Sigurmynd-
ina tók hann á Nikulásarmóti VÍS
í Ólafsfirði um síðustu helgi, móti
sem Knattspyrnufélag Fjalla-
byggðar heldur árlega fyrir 6. og
7. flokka beggja kynja. „Þetta var
sterkt augnablik þarna á milli
fjallanna og gleðistund í lífi þess-
ara stráka. Þeir eru í 6. flokki HK
sem vann tvöfalt þetta árið, bæði
bikarmeistarakeppnina og mótið að
loknum riðlakeppnum,“ segir hann
um drengina á myndinni.
Stokkið, hlaupið og sparkað
Íþróttir voru þema annars hluta sumarmyndakeppni Fréttablaðsins. Líflegar myndir bárust af iðkendum ólíkra greina íþrótta og
sú list að smella af á hárréttu andartaki virðist á valdi margra. Þórir Ó. Tryggvason málari á Akureyri bar sigur úr býtum með
myndinni sem prýðir forsíðu þessa blaðs. Hann fær að launum farmiða fyrir tvo með flugfélaginu Wow Air til Evrópu.
DÓMARINN RÆÐUR Stefanía Ásta Gísladóttir fylgdist
með Símamótinu í fótbolta og tók þessa mynd af 7.
flokki stúlkna úr Breiðabliki og Stjörnunni.
4. - 5. SÆTI
4. - 5. SÆTI
3. SÆTI STOKKIÐ TIL SIGURS Hjörtur Stefánsson verkfræðingur náði mynd af Fjólu Signýju Hannesdóttur, Íslandsmeistara í hástökki, á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum í Laugardalshöll um síðustu helgi.
Verðlaun fyrir 1. sætið eru farseðlar fyrir tvo til Evrópu með flugfélaginu Wow Air.
Þeir sem fengu 2. og 3. verðlaun hljóta gjafakort með leikhúsmiðum fyrir tvo
í Borgarleikhúsið. Dómnefndina skipuðu Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Frétta-
blaðsins, Ólafur Stephensen ritstjóri og Sigríður Tómasdóttir ritstjórnarfulltrúi.
Næsta þema: náttúran ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is
Sterkt augnablik á milli fjalla
2. SÆTI ÓLÍKT HAFST AÐ Hrund Þórsdóttir ritstjóri tók þessa mynd í Húsadal í Þórsmörk 14. júlí af hlaupara að koma í mark eftir þá þolraun að þreyta Laugavegsmaraþonið sem er 55 kílómetra langt og liggur um
fjöll og firnindi. Móttökunefndin var ekki alveg viðbúin.
ÓVENJULEGT STRANDBLAK Heiða Kristín Másdóttir, starfs-
maður í Nauthólsvík, smellti mynd af hópi frá Kettlebells
Iceland í hörkuleik á ylströndinni með þungan bolta.