Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGBílrúður LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is sími 512 5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hluti stórkostlegs bílasafns Rainier fursta í Mónakó verður seldur
á uppboði í Mónakó 26. júlí. Rainier fursti, sem lést árið 2005, var
ástríðufullur bílasafnari og átti þegar best lét yfir 100 bíla af ýmsum
tegundum og í mörgum verðflokkum. Þótt uppboðið sjálft fari fram
26. júlí gefst almenningi kostur á að skoða dýrgripina fjórum dögum
fyrir uppboðið sem verður haldið í Museum Terrasses de Fontvieille í
Mónakó. Ekkert lágmarksverð er sett á bílana en ekki er búist við því
að þeir verði seldir ódýrt.
Uppáhaldsbíll Rainier fursta var Mercedes Benz 500 SEC-AMG frá
árinu 1983. Talið er að hann verði seldur á tvo til fjóra milljarða króna.
Önnur glæsikerra frá árinu 1913, Panhard X19, er metin á rúmlega
fimm milljarða króna. Aðrir verðmætir bílar í flotanum eru meðal
annars Citroen Cabriolet 5HP frá árinu 1925, Bentley S1 frá árinu
1956 og Dodge 4 x 4 Command frá árinu 1942. Yngsti bíllinn í bíla-
flotanum er fyrrnefndur Mercedes Benz 500 SEC-AMG en elsti bíllinn,
Berliet C2, er frá árinu 1907. Það er sonur Rainier fursta, Albert prins
í Mónakó, sem á frumkvæði að sölu bílanna þar sem rýma þarf fyrir
nýjum safngripum.
Glæsikerrur til sölu
í Mónakó
Rolls Royce frá árinu 1930 úr safni Grimaldi-fjölskyldunnar í Mónakó.
ÞEGAR MÆÐIR Á BÍLRÚÐURNAR
Móða á bílrúðunum er afskaplega pirrandi og getur auk þess verið
stórhættuleg því hún hindrar útsýni við akstur. Ein leið til að koma í veg
fyrir móðumyndun er að hafa rifu á glugganum þegar hann stendur á
bílastæðinu, þannig myndast ekki móða í bílnum meðan hann bíður.
Önnur er að hjóla heim úr ræktinni en setjast ekki sveittur inn í bíl, því
meðan líkaminn kælir sig sest auðvitað heit gufan á rúðurnar. Sú þriðja
er að takmarka inn- og útöndun farþega en það er kannski erfitt til
lengdar. Blástur á framrúðuna svínvirkar en þá er jafnvel árangursríkara
að nota kaldan blástur en heitan, því kælingin dregur úr raka andrúms-
loftsins og dregur þar af leiðandi úr móðunni. Þið þekkið þetta úr
flugvélunum - loftkælingin þar þurrkar upp húðina. Athugið einnig að
miðstöðin sé stillt á ytri hringrás því annars er hreinlega verið að stuðla
að móðumyndun.
Svo má auðvitað þurrka rúðuna með handklæði en það er tímabundin
lausn. Einnig er hægt að fá sérstaka svampa til þessa, sem skilja ekki eftir
ljótar línur á rúðunni.
Eitt ráð er gott fyrir veturinn: Blandið edik í vatn, í hlutföllunum einn á
móti þremur og úðið á rúðurnar innanverðar og utanverðar. Þetta kemur
í veg fyrir að rúðurnar kólni og frjósi.
Ef vandamálið er þrálátt gæti það tengst öðrum kvillum í bílnum sjálfum.
Miðstöðin gæti verið biluð, en það er mikilvægt að hún losi sig við allt
umframvatn. Móða innan á bílrúðum í þurrviðri getur einnig verið vís-
bending um ryð.
Móða í afturrúðu hverfur með hitastrengjunum í rúðunni. Munið bara að
slökkva aftur á þeim þegar móðan er horfin til að spara orku.
Bílrúðutryggingar eru val-kvæðar tryggingar hér lendis og seldar með lögboðinni
ábyrgðartryggingu ökutækis. Áður
var hún kölluð framrúðutrygging
og tók einungis til framrúðu bif-
reiða en því var breytt samkvæmt
óskum neytenda sem voru ekki
sáttir við að fá eingöngu framrúðu
bætta, ef til dæmis brotist var inn í
bílinn eða eftir umferðarslys.
Þegar brot kemur í framrúðu bíls,
til dæmis eftir stein, er nauðsynlegt
að láta gera við rúðuna eins fljótt
og hægt er. Sé viðgerð ekki mögu-
leg strax er skynsamlegt að setja
svokallaðan rúðuplástur í sárið
sem hægt er að nálgast ókeypis hjá
flestum tryggingafélögum. Rúðu-
plásturinn kemur í veg fyrir að
óhreinindi safnist í sárið og hægir
á stækkun sprungunnar. Sé hins
vegar beðið of lengi eftir viðgerð er
hætt við að sprungan teygi sig um
alla rúðuna með þeim afleiðingum
að skipta þarf um rúðuna með til-
heyrandi kostnaði.
Viðgerð á bílrúðum er að öllu
jöfnu ókeypis fyrir þá bíleigendur
sem hafa keypt bílrúðutryggingu.
Þurfi hins vegar að skipta um bíl-
rúðu þarf bíleigandinn að borga
sjálfsábyrgðina sem er yfirleitt 15%
af fjárhæðinni.
Kostnaður við bílrúðutryggingu
er eðlilega mishár en gera má ráð
fyrir 6500-7000 króna iðgjaldi á ári
fyrir fólksbíla og jepplinga. Iðgjald
fyrir jeppa er aðeins hærra eða um
7000-7500 krónur fyrir árið.
Hafi bíleigendur ekki keypt
bí lrúðutr yggingu fellur allur
kostnaður vegna viðgerðar og
rúðuskipta á þá. Þær fjárhæðir eru
misháar eftir eðli viðgerða og stærð
rúðunnar. Þó er hægt að áætla að
hefðbundin rúðuskipti á fólksbíl
kosti að lágmarki 60.000 krónur.
Innihaldi rúðan aukabúnað, eins
og regnskynjara, loftnet eða hita,
er kostnaðurinn mun meiri. Mörg
verkstæði sjá um viðgerðir og rúðu-
skipti hér á landi. Í fæstum tilfellum
þurfa bíleigendur að hafa samband
við tryggingafyrirtæki sitt heldur
sjá verkstæðin yfirleitt um öll slík
samskipti.
Bíleigendur mæta yfirleitt með
bílinn í upphafi dags og sækja hann
síðar um daginn.
Bílrúðutrygging getur
sparað mikla fjármuni
Það getur verið dýrt fyrir bíleigendur að bera fullan kostnað af viðgerð á
bílrúðum og rúðuskiptum. Bílrúðutrygging er því skynsamur kostur.
Það getur borgað sig að vera með bílrúðutryggingu.
Páll Gunnlaugsson, bifreiða-smíðameistari og eigandi Bílrúðumeistarans, hefur
unnið við bílrúðuviðgerðir í rúm
tíu ár. „Ég sérhæfi mig í bílrúðu-
viðgerðum, rúðuskiptum og rúðu-
ísetningum. Það er betra að gera
einn hlut vel en marga hluti illa.
Ég laga líka mött ljós og skipti um
upphalara. Bílrúðumeistarinn var
opnaður í mars í fyrra og það hefur
verið nóg að gera hjá mér síðan,“
segir Páll.
Hann segir að ef fólk lendir í því
óláni að það brotni rúða í bíl hjá
því þá sé nóg að hafa samband við
hann.
„Bílrúðumeistarinn er viður-
kenndur aðili hjá öllum trygg-
ingafélögum á Íslandi. Ég sé um öll
samskipti við tryggingafélög og er í
góðu samstarfi við þau. Fólk getur
að sjálfsögðu sjálft haft samband
við sitt félag en þarf það ekki frekar
en það vill. Flestum finnst gott að
ég sjái um alla pappírsvinnuna og
ég býð einnig upp á aðstoð við að
fylla út tjónaskýrslu. Það eina sem
fólk þarf að gera er að hringja í Bíl-
rúðumeistarann og panta tíma.“
Þegar þarf að skipta um rúðu í bíl
þarf fólk að borga sjálfs ábyrgðina
en ekki neitt ef einungis þarf að láta
gera við litlar skemmdir. „Trygg-
ingafélagið borgar það upp í topp.
Annars þarf að greiða sjálfsábyrgð
sem er fimmtán prósent af kostn-
aði sem er yfirleitt á bilinu átta
til tólf þúsund. Svo er framrúðan
sá hlutur bifreiðarinnar sem fólk
horfir mest á og mikið atriði að hún
sé í toppstandi.“
„Helstu ástæður þess að rúður
brotna eru fyrst og fremst stein-
kast og svo eru það skemmdar-
verk á hliðarrúðum vegna inn-
brota,“ segir Páll.
Bílnum er hægt að skila til
Páls hvenær sem er sólarhrings
og setja bíllykilinn inn um sér-
staka lúgu fyrir lykla hjá Bílrúðu-
meistaranum.
„Viðgerðin tekur yfirleitt um
fjóra tíma þannig að flestir koma
með bílinn um morguninn og ná
í hann í hádeginu eða koma með
hann í hádeginu og sækja hann
eftir vinnu.“
Fólk getur líka beðið á meðan
gert er við bílinn. „Konan mín,
Lucy, er með hárgreiðslustofuna
HairDoo við hliðina á Bílrúðu-
meistaranum hér á Dalvegi 18 og
við erum með sameiginlega að-
stöðu fyrir viðskiptavini. Fólk
getur jafnvel skroppið í klippingu
til hennar á meðan það bíður eftir
bílnum,“ segir Páll og hlær og lofar
toppgæðum og toppþjónustu hjá
þeim skötuhjúum á Dalveginum.
Einfalt hjá meistaranum
Það eina sem þarf að gera þegar bílrúða brotnar er að panta tíma hjá
Bílrúðumeistaranum. Páll Gunnlaugsson eigandi sér um samskipti við
tryggingafélögin og sérhæfir sig í öllu varðandi bílrúðuskipti og -viðgerðir.
Páll lofar toppgæðum og toppþjónustu í Bílrúðumeistaranum á Dalvegi. Hann sérhæfir
sig í öllu varðandi bílrúður og viðgerðir á þeim. MYND/STEFÁN