Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGBílrúður LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 20128
Bílrúðan er rótgróið fyrirtæki í miðbænum en þar er skipt um allar tegundir bílrúða
og hægt að panta tíma með eins
dags fyrirvara.
Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt
fyrirtæki,“ segir Jakob Þórar-
insson, framkvæmdastjóri Bíl-
rúðunnar, eins elsta starfandi
fyrir tækis á sviði bílrúðuskipta á
Íslandi. „Við flytjum inn, skiptum
um og gerum við rúður,“ segir
Jakob og tekur fram að nóg sé að
panta tíma hjá Bílrúðunni með
eins dags fyrirvara. Skipt sé um
rúðurnar samdægurs en það taki
fjóra til fimm klukkutíma.
Jakob segir að þegar Bílrúðan
var stofnuð árið 1972 hafi fyrir-
tækið smíðað rúðurnar sjálft.
Síðustu tuttugu árin hafi það
flutt þær inn. „Þetta voru orðnar
svo stórar og flóknar rúður,“ segir
Jakob en Bílrúðan flytur inn rúður
frá Sant-Gobain Sekurit sem er að
hans sögn „einn stærsti „orginal“
bílrúðuframleiðandi í heiminum
í dag.“
Bílrúðan flytur inn bæði fram-
rúður og afturrúður ásamt því
að gera við rúður. „Við erum með
rúður á lager í allar bíl tegundir.
Svo getum við útvegað alls konar
rúður með skömmum fyrirvara ef
við eigum þær ekki,“ segir Jakob
og bætir við að á Bílrúðunni sé
einungis notað viðurkennt efni.
Hann lýsir svo við gerðum á
skemmdum á rúðum: „Þegar gert
er við minniháttar skemmdir á
rúðunum þá fellur eigin áhætta
niður og þá þarf eigandi ekki að
borga neitt. Það er engin sjálfs-
ábyrgð á því,“ upplýsir hann en
Bílrúðan er viðurkennd af öllum
tryggingafélögunum.
Hverjir leita helst til ykkar? „Það
eru bæði einstaklingar og fyrirtæki.
Við sinnum mörgum stórum bíla-
umboðum og flestum stærstu bíla-
leigunum,“ upplýsir Jakob en á verk-
stæðinu starfar einungis menntað
fagfólk. „Við leggjum mikla áherslu
á það að allir séu menntaðir í því sem
þeir eru að gera. Fram rúðurnar eru
burðarvirkið í bílnum þegar lent er í
tjóni, þannig að þetta þarf að vera vel
gert,“ segir Jakob og heldur áfram:
„Við erum líka réttingaverkstæði og
málningarverkstæði þannig að við
getum gert svo mörgu skil. Við erum
alhliða réttingaverkstæði.“
Bílrúðan er til húsa að Grettis-
götu 87 í Reykjavík. „Við erum
á Grettisgötunni, milli Snorra-
brautar og Rauðarárstígs, alveg við
Hlemm. Við erum á góðum stað og
með nóg af bílastæðum.“
Nánari upplýsingar má finna
á slóðinni www.bilrudan.is og í
símum 552 5780 og 552 5755.
Allar gerðir af rúðum í boði
Nóg er að panta tíma með eins dags fyrirvara hjá Bílrúðunni, að sögn Jakobs. Bílrúðan er fjörutíu ára gamalt fyrirtæki sem er við Grettisgötu í Reykjavík og nóg er af bílastæðum hjá fyrirtækinu.
Bílrúðan flytur inn bæði framrúður og afturrúður ásamt því að gera við rúður.
4