Fréttablaðið - 21.07.2012, Qupperneq 48
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
EINARS JÓNSSONAR
frá Patreksfirði.
Dröfn Árnadóttir
Árni Freyr Einarsson Þorbjörg Sólbjartsdóttir
Elín Kristín Einarsdóttir Haraldur Haraldsson
Atli Már Einarsson Margrét Magnúsdóttir
og barnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
SVEINFRÍÐAR H. SVEINSDÓTTUR
Sveinn Ingvarsson Katrín Andrésdóttir
Magnús Gunnarsson
Steinunn Ingvarsdóttir Ólafur Hjaltason
Erna Ingvarsdóttir Þorsteinn Hjartarson
og fjölskyldur.
Árnað heilla
80 ára afmæli
Kristín Jónsdóttir
Smáratúni 21 í Keflavík,
verður áttræð þann 22. júlí næstkomandi.
Í tilefni af afmælinu tekur hún á móti
gestum í húsi Björgunarsveitarinnar
Suðurnes að Holtsgötu 51 í Njarðvík á
milli kl. 16 og 20. Gjafir eru vinsamlegast
afþakkaðar en söfnun verður fyrir ABC
barnahjálp á staðnum.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
VALGERÐAR GUÐLAUGSDÓTTUR
frá Seyðisfirði,
áður til heimilis að Smáraflöt 16 í Garðabæ.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
hennar ósk. Starfsfólki og hjúkrunarfólki á
Sólvangi í Hafnarfirði eru færðar sérstakar þakkir fyrir frábæra
umönnun hennar þar síðustu ár. Guð veri með ykkur öllum.
Ásdís Bernburg
Herdís Rut Hallgrímsdóttir Grétar Guðmundsson
Hallgrímur S. Hallgrímsson Helga S. L. Bachmann
Óli Svavar Hallgrímsson Halldóra Gyða Matthíasdóttir
Proppé
ömmubörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs bróður, föður, mágs
og frænda,
VILHELMS ARNAR OTTESEN
Efstahjalla 13, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu fyrir ómetanlegan stuðning á
erfiðum tímum. Guð veri með ykkur öllum.
Ásta Ottesen Páll H. Jónsson
Gunnlaug Ottesen Friðrik Diego
Þórhallur Ottesen Elín Margrét Jóhannsdóttir
Kristín Ottesen Sigmundur Ásgeirsson
Jón Ívar Vilhelmsson Ellert Heiðar Vilhelmsson
og frændsystkini.
Ævintýri fyrri tíma eru innblástur
sýningar Margrétar Magnús dóttur
sem opnar á morgun í gullsmiðju
og listhúsi Ófeigs. „Ég vann þessar
myndir úr gömlum vax litum barnanna
minna. Ég átti fullan kassa af gömlum
litum og nýtti þá til að vinna þess-
ar myndir, bræddi þá og gerði ævin-
týri úr æsku barnanna minna,“ segir
Margrét. Listhúsið sem er til húsa við
Skólavörðustíg 5 fagnar 20 ára afmæli
á morgun en svo skemmtilega vill til að
Margrét var fyrsti listamaðurinn sem
sýndi í galleríinu.
Margrét á að baki langan feril í
myndlist. „Ég hef unnið í myndlist
frá því ég var 16 ára gömul. Ég lauk
stúdents prófi frá listnámsbraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Fór svo í
Myndlistar- og handíðarskólann sem
þá var og hét og lauk þaðan prófi 1987.
Svo flutti ég til Berlínar og var þar í
Hochschule der Kunste.“
Margrét bjó í Berlín til ársins 1993.
„Ég upplifði sögulega tíma í Berlín, bjó
þar þegar múrinn féll og eignaðist raun-
ar eldri son minn þegar Ceausescu var
steypt af stóli, þann 22. desember 1989.“
Margrét bjó alls sautján ár í Þýska-
landi, þar af hluta tímans í Bæjara-
landi þar sem hún rak gallerí. „Ég
hef ferðast víða og búið bæði í Banda-
ríkjunum og Þýskalandi. Ég á fjögur
börn og hef sinnt móðurhlutverkinu
vel og hef kannski ekki getað sinnt
listinni eins og ég hef viljað. En nú er
komið að því. Á sýningunni sýni ég
ævintýramyndir sem minna á mynd-
skreytingar bóka úr æsku minni,
þarna má sjá bæði fugla, hafmeyjur
og engla,“ segir Margrét að lokum.
sigridur@frettabladid.is
LISTHÚS ÓFEIGS 20 ÁRA: MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR SÝNIR ÆVINTÝRAMYNDIR
VANN VERK MEÐ VAXLITUM
BÖRNUM SÍNUM TIL HEIÐURS
ÆVINTÝRAMYNDIR Margrét Magnúsdóttir var fyrst til að sýna í Listhúsi Ófeigs og sýnir á 20 ára afmæli gallerísins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Light Nights, sýning Kristínar G. Magnús, hefur verið
fastur liður í menningarlífi landans að sumarlagi í rúm
40 ár. Undanfarin ár hefur hún sýnt í Iðnó en í ár verður
sýningin sett upp heima í stofu að Baldursgötu 37. „Ég
hef sett upp heila leikmynd hér heima hjá mér og ég fékk
hingað smiði, ljósameistara, hljóðmeistara, saumakonu
og aðstoðarfólk. Við stóðum á haus við undirbúning en
það small allt saman að lokum,“ segir Kristín en sýningin
var frumsýnd á dögunum.
„Light Nights byggist upp eins og kvöldvakan gerði
í hundruð ára. Ég fjalla um upphaf landnáms Íslands,
leikles þjóðsögur og bý til leikatriði úr mörgum þeirra,“
segir Kristín sem sér ein um flutning verksins. „En það
er reyndar aldrei að vita nema djákninn á Myrká skjóti
upp kollinum, hann hefur flækst í kringum mig lengi.“
Sýningin tekur klukkustund í flutningi og er sýnd á
fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöldum. Hún er flutt á ensku, nema að kveðnar eru
rímur á íslensku. Meirihluti gesta eru erlendir ferða-
menn en Kristín segir að þeir Íslendingar sem komi
skemmti sér afar vel.
Light Nights heim í stofu
KRISTÍN G. MAGNÚS Heil leikmynd hefur verið sett upp heima hjá
Kristínu fyrir sýningu hennar, Light Nights. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ERNEST HEMINGWAY rithöfundur (1899-1961) fæddist þennan dag
„Það er hægt að granda manni, en ekki sigra hann.“