Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 50
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR26
krakkar@frettabladid.is
26
Hvað heitir þú fullu nafni?
Aþena Mist Kjartansdóttir.
Hvað ertu gömul? Sjö ára.
Ertu mikill lestrarhestur? Já,
smá.
Hvenær lærðir þú að lesa?
Fimm ára.
Hvað er skemmtilegt við að
lesa bækur? Þær geta verið
svo spennandi.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Múmínsnáðinn á afmæli.
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? Ævintýra-
bækur.
Hvaða bók lastu síðast og
hvernig var hún? Hún heitir
Má ég vera memm? og er um
hana Fjólu sem var lögð í einelti
og sem betur fer fór allt vel að
lokum.
Í hvaða hverfi býrð þú?
Bústaðahverfi.
Í hvaða skóla gengur þú?
Breiðagerðisskóla.
Hvaða námsgrein er
skemmtilegust? Stærðfræði,
myndmennt, textíll og smíði.
Hver eru þín helstu áhuga-
mál? Sund, að hjóla, fimleikar,
djassballett, skautar og að leika
með vinum mínum.
Aþena Mist Kjartansdóttir
Hvað ertu gömul og í hvaða
skóla ertu? Ég er 12 ára og er
að fara að byrja í Réttarholts-
skóla í haust.
Hvenær byrjaðir þú að æfa
fótbolta og hjá hvaða liði? Ég
byrjaði að æfa fótbolta þegar ég
var 6 ára hjá Víkingi.
Hvers vegna byrjaðir þú að æfa
fótbolta? Ég byrjaði að æfa fót-
bolta vegna þess að mig langaði
að æfa fótbolta og nokkrar vin-
konur mínar æfðu fótbolta svo
mig langaði bara að prófa.
Hvaða stöðu spilar þú og í
hvaða f lokki ertu? Ég spila
bæði stöðu bakvarðar og kant-
manns og ég er í 4. flokki.
Hver er uppáhaldsæfingin
þín í fótbolta? Uppáhaldsæf-
ingin mín í fótbolta er halda
boltanum á lofti.
Eru margar vinkonur þínar að
æfa fótbolta? Já, mjög margar
vinkonur mínar æfa fótbolta.
Hver er uppáhaldsleikmaður
þinn í fótbolta? Uppáhaldsfót-
boltamaðurinn minn er Lionel
Messi og uppáhaldsfótbolta-
konan mín er Margrét Lára
Viðarsdóttir.
Ferðu oft á völlinn? Já, ég fer
stundum á völlinn í Víkinni og
svo fer ég líka stundum á lands-
leiki. Ég hef farið á leiki í ensku
deildinni og er að fara á úrslita-
leikinn í fótbolta á Ólympíu-
leikunum í London og hlakka
mikið til.
Áttu þér ef t irlæt islið í
enska boltanum eða í öðrum
erlendum deildum? Já, ég held
með Liverpool í enska boltanum
og Barcelona í spænsku
deildinni.
Hvað er skemmtilegasta fót-
boltamót sem þú hefur tekið
þátt í? Það er örugglega Pæju-
mótið á Siglufirði. Ég tók oft
þátt í Pæjumótinu og mér
fannst það alltaf jafn skemmti-
legt.
Hver er besti árangur sem þinn
flokkur hefur náð? Besti árangur
sem flokkurinn minn hefur náð
er Íslandsmeistaratitillinn :)
Áttu þér önnur áhugamál en
fótbolta? Mér finnst gaman
að lesa og mig langar að æfa
parkour.
Hvað ætlar þú að gera í sumar-
fríinu? Ég ætla að fara í sumar-
bústað, fara til Englands og að
sjálfsögðu æfa fótbolta og spila
fótboltaleiki.
ÆTLAR Á ÚRSLITALEIKINN
Á ÓLYMPÍULEIKUNUM
Alda Lín Auðunsdóttir hefur æft fótbolta hjá Víkingi síðan hún var sex ára en þar
spilar hún stöðu bakvarðar og kantmanns. Hún heldur með Liverpool í enska
boltanum, Barcelona í þeim spænska, en hefur fyrir utan fótbolta dálæti á lestri.
ÆFING Í UPPÁHALDI Alda Lín Auðunsdóttir æfir fótbolta með Víkingi.
Uppáhaldsæfingin hennar í fótbolta er að halda boltanum á lofti og hún
átti í engum vandræðum með sýna ljósmyndara Fréttablaðsins hvernig
bera ætti sig að við það. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LJÓS Í MYRKRI Nú þegar farið er að skyggja á kvöldin er bráðnauðsynlegt að muna
eftir vasaljósi í útileguna. Fyrir fjölskylduna er gott að taka lukt með í för en vasaljós eru
tilvalin í farteski krakka sem vilja vaka fram eftir í tjaldinu, lesa, leika og segja sögur.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Kennarinn:
„Hvað er stormur, Pétur?“
Pétur:
„Það er loft sem er að flýta
sér.“
Kennari:
„Af hverju lærir þú ekki neitt,
Svenni minn?“
Svenni:
„Af því að ég er alltaf að hlusta
á þig.“
Gesturinn:
„Mér líst vel á húsið þitt en
garðurinn er svolítið eyðilegur.“
Húsbóndinn:
„Já, trén eru enn svo ung. Ég
vona að þau verði orðin stór
þegar þú kemur næst.“
„Ég var duglegastur í
skólanum í dag, mamma,“
sagði Dóri litli hróðugur þegar
hann kom heim.
„Nú, hvernig fórstu að því?“
svaraði móðir hans glöð.
„Kennarinn spurði hvað
strúturinn hefði marga fætur
og ég sagði þrír.“
„En það er vitleysa, góði
minn.“
„Já, en hinir krakkarnir sögðu
fjórir og það var enn vitlausara.“
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.