Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 16
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR16
„Sjötugur? Jú, fólk í kringum mig
vill meina það, ætli það sé ekki vísast
rétt,“ segir Ingi Hrafn Jónsson sjón-
varpsmaður og sjónvarpsstjóri á ÍNN
– Íslands nýjasta nýtt – sem á stór-
afmæli í dag.
Ingvi Hrafn var að renna í hlað við
Mývatn ásamt konu sinni, Ragnheiði
Söru Hafsteinsdóttur, og vinahjónum
þeirra frá Flórída þegar blaðamaður
sló á þráðinn í gær.
„Við ætlum að njóta lífsins hér í dag
en brunum svo í Borgarfjörðinn þar
sem við ætlum að halda upp á tíma-
mótin með pomp og prakt.“
Dagurinn byrjar klukkan átta á
golfmóti í Borgarnesi en um kvöldið
verður boð fyrir vini og vandamenn
í félagsheimili hestamanna í Borg-
arnesi. „Þar ætlum við að skemmta
okkur fram eftir kvöldi. Þetta er bara
nákvæmlega eins dagskrá og á sex-
tugsafmælinu, hún lukkaðist vel svo
það var ástæðulaust að breyta því.“
Ingvi Hrafn segist vera mikið
afmælisbarn og finnst gaman að halda
upp á daginn.
„Aðallega vegna þess að mér finnst
svo skemmtilegt að vera innan um
fólk, ég er svona „peoples-person“,
eins og Kaninn segir, og það er gaman
að fá tilefni til að boða saman þá sem
manni þykir vænt um og eiga góða
stund.“
Hann segist þó ekki upplifa það sem
sérstakar krossgötur að standa á sjö-
tugu.
„Ég er í sjálfu sér alltaf jafn hissa á
að vera orðinn árinu eldri því ég finn
það ekki sjálfur að ég sé að eldast. Ég
er bara að reka mína sjónvarpsstöð,
held úti þremur klukkustundarlöngum
þáttum á viku og vinn tólf til fjórtán
tíma vinnudag án þess að finna fyrir
því.“
Ingvi er því ekkert á þeim buxunum
að hægja á sér þótt hann sé kominn á
virðulegan aldur.
„Ég sé enga ástæðu til þess svo
framarlega sem ég nýt þess sem ég
er að fást við. Ég skal segja þér það
að svo lengi sem hausinn er í lagi og
maður getur enn rifið kjaft hef ég ekki
yfir neinu að kvarta.“
bergsteinn@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
INGVI HRAFN JÓNSSON Segir það alltaf koma sér jafn mikið á óvart að vera orðinn árinu eldri
því hann finni ekki fyrir því. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
INGVI HRAFN JÓNSSON: HELDUR UPP Á SJÖTÍU ÁRA AFMÆLI Í DAG
Slæ ekki af meðan hausinn er
í lagi og ég get enn rifið kjaft
HAUKUR HEIÐAR HAUKSSON, læknir og forsprakki hljómsveitarinnar Diktu, er þrítugur í dag.
„Ég hef lent í því að taka á móti sjúklingi sem segist hafa verið á tónleikum
með mér kvöldið áður.“
30
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SVAVA VATNSDAL JÓNSDÓTTIR
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund mánudaginn 16. júlí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sævar Jóhann Bjarnason Hong Sun
Katrín Bjarnadóttir Guðmundur Guðmundsson
Soffía J. Bjarnadóttir Guðlaugur Ómar Leifsson
Agnes Helga Bjarnadóttir Róbert Lee Tómasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
dóttur, systur, mágkonu og frænku,
BRYNHILDAR MAGNÚSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Laufey Kristinsdóttir
Þorbjörg Magnúsdóttir
Rúnar Reynisson
Magnús Reynir Rúnarsson
Laufey Svafa Rúnarsdóttir
Kjartan Hugi Rúnarsson
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, sonur,
bróðir, mágur,tengdasonur og barnabarn,
JÓNAS EGILSSON
skipstjóri,
Dúfnahólum 2,
lést á krabbameinsdeild LSH föstudaginn
20. júlí. Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 30. júlí kl 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er beint á Ljósið
stuðningsfélag fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra,
reikningsnúmer: 0130-26-410420 kt. 590406-0740.
Brynhildur Hall
Sigrún Hall
Sylvía Hall
Egill Jónasson
Aðalheiður Hannesdóttir
Hannes Ingi Jónsson Signý Knútsdóttir
Borgþór Egilsson Arna Ásmundardóttir
Garðar Hall
Sigrún Jónsdóttir
Hulda Þórhallsdóttir
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓRARINN SIGURJÓNSSON
fyrrverandi bústjóri og alþingismaður
í Laugardælum,
lést 20. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 28. júlí kl. 13.30. Jarðsett
verður í Laugardælakirkjugarði.
Ólöf I. Haraldsdóttir
Sigríður Þórarinsdóttir Óli Sverrir Sigurjónsson
Haraldur Þórarinsson Þórey A. Axelsdóttir
Kristín Þórarinsdóttir Garðar Sverrisson
Ólafur Þór Þórarinsson Malin Widarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANTONÍA JÚLÍA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Brautarhóli, Glerárþorpi, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 22. júlí. Útförin fer fram frá
Glerárkirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 13.30.
Þorsteinn Heiðar Jónsson
Sigrún Fanney Jónsdóttir Sigurður Stefánsson
Arnar Heiðar Jónsson Kirsti Skåden
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför elskulegs bróður
okkar, mágs og frænda,
BJARNA BJARNASONAR
Krummahólum 8, Reykjavík.
Ragnheiður Óskarsdóttir Hallgrímur Thorsteinsson
Lára Bjarnadóttir Theodór Kárason
Elín Bjarney Bjarnadóttir Friðrik Helgi Vigfússon
og frændsystkin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GRÉTAR HANNESSON
Skriðustekk 3,
sem lést á líknardeild Landspítalans
Kópavogi 22. júlí, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 30. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Sigrún Steingrímsdóttir
Jónína B. Grétarsdóttir Þóroddur Sveinsson
Hannes Svanur Grétarsson Helga Marta Helgadóttir
Ingvar Grétarsson Vigdís Þórisdóttir
Margrét Grétarsdóttir Guðjón Guðjónsson
afastrákar og langafabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
BRANDDÍS INGIBJÖRG
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Bæ, til heimilis að Hjallabraut 33,
andaðist á Landspítalanum í Reykjavík miðviku-
daginn 25. júlí. Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Grétar Bjarnason Guðný S. Elíasdóttir
Elías Bjarni Guðmundsson Sigríður M. Þorfinnsdóttir
Gunnar Ingi Guðmundsson Dýrleif Ólafsdóttir
Margrét Ólöf Guðmundsd. Harald Helgheim
og langömmubörn.
JÓN HJÖRLEIFSSON
Kimbastöðum,
lést 17. júlí síðastliðinn. Útför hans fer fram
frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 28. júlí
kl. 14.00. Jarðsett verður í heimagrafreit.
Systkini og aðrir aðstandendur.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður minnar,
fóstursystur, móðursystur og ömmu,
HELGU FOSSBERG.
Ragna Fossberg Björn Emilsson
Cyril Edward Hoblyn Sigríður Ólafsdóttir
Einar Örn Thorlacius
Jóhanna M. Thorlacius
Anna R. Magnúsardóttir
Ívar Örn Helgason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
MARGRÉT SVEINSDÓTTIR ZÚBER
Sóleyjarima 9, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 25. júlí. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 1. ágúst
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Guðbjörg Lóní Kristjánsdóttir
Anna Lísa Kristjánsdóttir Leó E. Löve
Aníta Margrét Aradóttir
Kristján Jóhann Arason
Anna Margrét Leósdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI SÆVAR ÞÓRÐARSON
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 24. júlí sl.
Ásta Ágústsdóttir
Ágúst og Erika
Hulda og Þröstur
Örvar
Þóra
barnabörn og barnabarnabarn.