Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 2
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR2 Jóhannes, há dú jú læk Iceland? „Verí næs, ódýrt og gott.“ Jóhannes Jónsson, áður kenndur við Bónus, opnar Iceland verslun á morgun. SAMFÉLAG „Ég fann dóttur mína úti í horni gæsluvallarins í leik- fangabíl, umkringda þremur helmingi eldri drengjum, sem voru að djöflast í henni og vildu greinilega hafa af henni bílinn. Hún var orðin skelfd, enda föst í bílnum og enginn starfsmaður í grenndinni til að skakka leikinn,“ segir Laufey Ómarsdóttir, móðir tveggja ára stúlku í Hafnarfirði. Laufey segir farir sínar ekki sléttar af gæsluvellinum í Set- bergshverfinu í Hafnarfirði. „Þegar ég tók barnið svo upp, vantaði hana annan skóinn og svo var hún húfulaus. Stelpan var orðin köld þegar ég kom að, enda kalt í veðri á mánudaginn,“ segir Laufey. Laufey hefur nú skrifað bréf á Facebook þar sem hún varar aðra foreldra við gæsluvellinum. „Þennan litla tíma sem ég staldraði við á leikvellinum sá ég líka hvar fjögurra ára strákur tók eina tveggja ára hálstaki og keyrði andlitið á henni ofan í stéttina. Starfsfólkið var ekkert að fylgjast með og enginn gerði neitt fyrr en ég hljóp til. Annað barn var skólaust að leika sér í sandkassa við hliðina á tveimur starfsmönnum sem bara sátu hjá.“ Laufey segist hissa á skeytingar- leysinu í starfsfólki leikvallarins. „Starfsfólkið var ekki að fylgjast með börnunum og ég hafði það á tilfinningunni að það ætlaði bara að hafa það kósí.“ Hún segir að svo lítið aðhald af hálfu starfsfólks henti kannski stærri börnum, sem geti sagt frá og betur varið sig. „En þetta er engan veginn boðlegt fyrir yngri börn,“ segir Laufey og bendir á að þjónustan sé auglýst fyrir börn á aldrinum tveggja til sex ára. Þórunni Þórarinsdóttur yfir- manni gæsluvallarins er brugðið yfir lýsingunum. „Ég er miður mín að heyra þetta. Við erum með 43 börn og fimm ábyrgðarstarfsmenn og ég er mjög ánægð með starfsfólkið mitt. Við sinnum börnunum eins vel og við getum,“ segir Þórunn. „Börnin eru voðalega fljót að taka af sér skóna en við klæðum þau bara aftur í þá. Við látum þau ekkert hlaupa hérna um skólaus.“ Hún segist engar kvartanir hafa fengið og hvetur foreldrana til að koma og tala við sig. katrin@frettabladid.is Börn afskiptalaus á gæsluvelli í Setbergi Hafnfirsk móðir varar við gæsluvelli á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Á mánu- daginn sá hún þrjú eftirlitslaus börn á vellinum, eitt þeirra var dóttir hennar. Yfirmaður gæsluvallarins segir starfsmenn leggja sig alla fram við börnin. GÆSLUVÖLLURINN Í HAFNARFIRÐI Á gæsluvellinum eru fimm ábyrgðarstarfsmenn sem taka á móti 43 börnum. Rólóinn er opinn yfir helsta sumarleyfistímann, hann var opnaður 6. júlí og verður lokað 8. ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI Þennan litla tíma sem ég staldraði við á leikvellinum sá ég líka hvar fjögurra ára strákur tók eina tveggja ára hálstaki og keyrði andlitið á henni ofan í stéttina. LAUFEY ÓMARSDÓTTIR MÓÐIR Í HAFNARFIRÐI ÞÝSKALAND, AP Mario Draghi, yfir- maður Seðlabanka Evrópusam- bandsins, segir að bankinn muni gera allt sem í hans valdi stend- ur til að bjarga evrunni úr þeim vanda sem nú steðjar að. „Og trúið mér, það mun duga,“ bætti hann við. Orð hans höfðu samstundis þau áhrif að verðbréf hækkuðu í verði á mörkuðum víðs vegar í Evrópu. Fjárfestar á mörkuðum hafa undanfarið haft miklar áhyggjur af því að glíman við fjárhags- vanda Spánar, Grikklands og fleiri ríkja muni reynast evru- svæðinu um megn. - gb Draghi lofar stuðningi: Allt gert til að bjarga evrunni NEYTENDUR Neytendastofa hefur lagt bann við markaðssetningu á vörum sem innihalda hið svokall- aða DMF-dímetýlfúmerat. Efnið er sett í litla bréfpoka og er látið fylgja vörunum, til dæmis fest innan á húsgögn eða látið liggja hjá skóm í skókössum. Efnið er oftast notað til að koma í veg fyrir að vörur mygli þegar þær eru fluttar frá hitabeltislöndum. Ástæðan fyrir banninu er að efnið getur valdið miklum og alvarlegum ofnæmisviðbrögðum, svo sem útbrotum, bruna og jafn- vel öndunarvandamálum sem erfitt hefur reynst að meðhöndla. - ktg Neytendastofa tilkynnir: Sveppaeitur í vörum bannað STJÓRNSÝSLA Tryggingastofnun og Úrskurðarnefnd almannatrygginga fóru ekki að lögum þegar umsókn foreldra fatlaðs drengs um styrk til bíla- kaupa var hafnað árið 2010. Þetta er niðurstaða Umboðsmanns Alþingis, sem birti álit í þá veru í gær. Drengurinn er bundinn við hjólastól. Foreldrar hans fengu styrk til bílakaupa árið 2007 og sóttu svo aftur um styrk árið 2010. Samkvæmt lögum má aðeins fá styrk á fimm ára fresti, nema ef bíllinn eyðileggst. Tryggingastofnun og Úrskurðarnefndin túlkuðu undanþáguákvæðið þannig að það ætti bara við ef bíll eyðilegðist skyndilega, til dæmis í umferðar- slysi, en í tilfelli fólksins sem sótti um styrk bilaði hann og það svaraði ekki kostnaði að gera við hann. Umboðsmaður telur túlkun Trygginga stofnunar og Úrskurðarnefndarinnar of þrönga og ganga gegn því markmiði styrksins að gera fötluðum kleift að stunda vinnu, skóla og endurhæfingu. Hann æskir þess að mál fólksins verði tekið upp að nýju. Umboðsmaður átelur jafnframt Úrskurðar- nefndina fyrir að svara bréfi sínu með því að ítreka bara fyrri úrskurð og segjast ekki sjá ástæðu til að svara spurningunum sem í því voru nema þess væri sérstaklega óskað. - sh Umboðsmaður Alþingis telur reglur um styrki til bílakaupa túlkaðar of þröngt: Tryggingastofnun fór ekki að lögum TRYGGINGASTOFNUN Umboðsmaður átelur Úrskurðarnefnd almannatrygginga fyrir svör við bréfi embættisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Á BANNLISTA Eitrið má finna í litlum bréfpokum sem eru látnir fylgja vörum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FJÁRMÁL Íslensk heimili greiddu rúmlega tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum árið 2011 en árið á undan. Þetta kemur fram í úttekt fjármálaráðuneytisins. Í fyrra nam vaxta kostnaður vegna íbúðakaupa tæpum 55 milljörðum króna, en árið 2010 greiddu Íslendingar rúmlega 61 milljarð í vexti af íbúðalánum. Vaxtabætur og vaxtaniður- greiðsla sem koma til úthlutunar í ár eru af þeim sökum nokkuð lægri en í fyrra. Samtals er um að ræða 14,5 milljarða í ár saman- borið við 18,3 milljarða í fyrra, sem er rúmlega fimmtungs- lækkun milli ára. Þannig fá íbúðaeigendur 26,6 pró- sent af vaxtakostnaði sínum endur- greidd í ár en fengu 30 prósent í fyrra. Stjórnvöld telja þessar tölur sýna fram á að margt hafi þróast heimilum í hag í þessum efnum. Breytingar á úthlutun vaxtabóta eftir hrunið og auknir fjármunir sem settir hafi verið í að bæta stöðu heimilanna hafi bætt stöðu „þeirra sem voru í veikastri stöðu“. Vaxtakostnaður heimilanna vegna íbúðalána, að frádregnum vaxtabótum, nam í fyrra rúmum fjórum prósentum af skattskyldum tekjum, en var tæp fimm prósent árið 2010. - þj Úttekt fjármálaráðuneytis á vaxtabótum og vaxtagreiðslum íslenskra heimila: Tíu prósentum minna í vexti VAXTAGREIÐSLUR Íslendingar greiddu tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum í fyrra en árið áður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VÍSINDI Vísindamenn hafa uppgötv- að mikið gljúfur undir miklum ísbreiðum á Suðurskautslandinu. Þeir telja að uppgötvunin muni varpa nýju ljósi á bráðnun jökla og hafíss á suðurhveli jarðar. Frá þessu er greint í nýju tölublaði vísindatímaritsins Nature. Ferrigno-ísstraumurinn er meðal fjarlægustu staða Suður- skautslandsins og þangað hafa menn aðeins einu sinni áður komið, árið 1961. Vísindamenn segja þetta gefa enn frekara til- efni til þess að kanna hvernig bráðnun íss er undir yfirborði jökla og ísbreiða. - bþh Uppgvötun á suðurskautinu: Fundu gljúfur undir ísnum SUÐURSKAUTSLANDIÐ Erfiðar aðstæður og gríðarlegt flæmi gerir vísinda- mönnum það erfitt að rannsaka suður- skautið. NORDICPHOTOS/AFP BRETLAND Fyrstu prófanir á raf- magnsbíl sem hægt er að hlaða án þess að stinga í samband fara fram í London á næstunni. Samkvæmt frétt BBC er raf- geymir bílsins hlaðinn þráðlaust með rafsegultækni þegar honum er lagt í tiltekin stæði í borginni. Vonir standa til þess að í fram- tíðinni verði hægt að hlaða bílana þráðlaust á meðan á akstri stendur. Þessi tækni er talin geta aukið vinsældir rafmagnsbíla, og lækkað verðið þar sem þeir gætu virkað vel með minni rafgeymi en nú er talinn nauðsynlegur. - bj Ný tækni fyrir rafmagnsbíla: Hlaða rafgeymi bílsins þráðlaust SLYS Kona á miðjum aldri var flutt með þyrlu á slysadeild landspítala í gærdag eftir bíl- veltu ofarlega í Norðurárdal. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi kastaðist konan út úr bifreiðinni sem fór í margar veltur áður en hún stöðvaðist. Áður en blaðið fór í prentun fengust þær upplýsingar að konan væri á gjörgæsludeild Landspítala til eftirlits og er líðan hennar sögð eftir atvikum. - þj Kona slasaðist í bílveltu: Flutt með þyrlu á slysadeild SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.