Fréttablaðið - 27.07.2012, Page 39
FÖSTUDAGUR 27. júlí 2012 23
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 27. júlí 2012
➜ Tónleikar
21.00 Hljómsveitin Brother Grass spilar
á sumartónleikum í Reykjahlíðarkirkju
við Mývatn. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
➜ Hátíðir
12.00 Hin árlega Big Kahuna-keppni
verður haldin á Prikinu. 10 þátttakendur
etja kappi við að klára Big Kahuna-
hamborgaramáltíð Priksins.
➜ Leikrit
20.00 Leik- og söngdagskráin Ekki
skamma mig séra Tumi, verður sýnd í
Hólaneskirkju Skagaströnd. Dagskráin
fjallar um Jónas Hallgrímsson, rithöf-
und og ljóðskáld, og vin hans Tómas
Sæmundsson. Ragnar Kjartansson og
Davíð Þór Jónsson fara með aðalhlut-
verk. Miðaverð er kr. 2.000
➜ Tónlist
21.00 Hljómsveitin Ultra mega Techno-
bandið Stefán mætir á Bar 11 og spilar
fram eftir kvöldi. DJ mætir í búrið að
þeim loknum. Aðgangur er ókeypis.
22.00 Svavar Knútur heldur tónleika á
Café Rosenberg.
22.00 Plötusnúðateymið Kanill spilar
á skemmtistaðnum Faktorý. Þeim til
aðstoðar er plötusnúðurinn Francesca
Lombardo frá Ítalíu. Er uppákoman liður
í tveggja ára afmælisfögnuði staðarins
og er aðgangur ókeypis.
22.00 Hljómsveitin Kiriyama Family
lokar forkvöldi Bræðslunnar í Borgarfirði
Eystri. Einnig koma fram hljómsveitirnar
Coney Island Babies og Tilbury.
➜ Leiðsögn
12.10 Boðið er upp á hádegisleiðsögn
í Listasafni Íslands.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
og þó við séum fyrir opnu hafi þá er
alltaf notalegt að vera hér og alltaf til-
komumikið. Ekki síðra á veturna. Þá er
oft mikil undiralda og brim og maður
finnur fyrir þrýstingnum frá hafinu. Það
orkar sterkt á mann.“
Mikil saga er fólgin á þessu svæði,
að sögn Ingu, bryggja og athafnalíf við
hana. Þjóðvegurinn lá um sneiðing
niður háan bakka, rétt hjá gömlu
kirkjunni. „Mörg hús sem hér stóðu
hafa verið rifin en þeir sem búa hér
núna hafa sem betur fer smekk fyrir því
að halda þeim við sem eftir eru,“ segir
Inga Elsa. „Það er svo margt fallegt hér
þó það falli ekki inn í póstkortastílinn.“
MENNINGARHÚS Gamla kirkjan
hefur verið afhelguð og er nýtt undir
menningar starfsemi. Þar var í fyrrahaust
lesið upp úr fjórum nýútkomnum bókum
eftir íbúa vesturbakkans. Þessa stundina
býr þar listamaður um tíma. Hann er
kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur,
ættaður frá Argentínu en búsettur í París.
Hann hyggst skrifa handrit að kvikmynd
sem á sér stað í Eldlandi, Tierra del fuego,
syðsta hluta Argentínu.
SÁLMATAFLAN Á lofti gömlu kirkjunnar
fær sálmataflan að vera í fríi.
SVEINN M. SVEINSSON „Ég keypti þetta
hús árið 2000 en hef leigt það út og er
nýfluttur hingað,“ segir Sveinn í Plúsfilm
sem býr í gamla læknishúsinu. Hann er
búinn að taka það algerlega í gegn. Vinur
hans á sjúkrahúshluta hússins. „Eitt það
merkilegasta við læknishúsið er að Skák-
samband Íslands var stofnað í því 1925.
Hér verður einhvern tíma skákmót,“ segir
Sveinn brosandi og kveðst afar ánægður
með mannlíf og náttúru á vesturbakk-
anum. „Hér eru selirnir svamlandi uppi í
landsteinum og fuglalífið afar fjölbreytt í
ósnum.“
VERTU Í TAKT
VIÐ ÓLYMPÍULEIKANA
Í LONDON 2012
C
o
c
a
-C
o
la
;
C
o
k
e
´a
n
d
t
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
´c
o
n
to
u
r
b
o
tt
le
a
re
t
ra
d
e
m
a
rk
s
o
f
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.
©
2
0
12
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.