Fréttablaðið - 27.07.2012, Page 34
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR18
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ji minn! Þetta
er sjaldgæf sjón
á bekknum.
Velkominn Jói! Má
ég bjóða þér sopa af
heimalöguðum djús?
Nei,
takk!
Ég held þú ættir að venja þig
við bragðið af þriggjablöndu-
djúsnum því Þór-Pedro
stendur sig vel. Þú getur
gleymt þessari stöðu! Þú situr
áfram! Það held ég!
Já! Æj, æj, æj!
Finndu þér annað áhuga-
mál, Jói. Með Þór-Pedro
í liðinu er líklegra að ÉG
fái tækifæri á undan ÞÉR!
Og ég er með glerauga,
gervimjöðm og tognaðan
nára!
Og
snjáð
ennis-
band.
Sjáðu!
GH
GHH
Þá fer 4
hingað inn …
Ekki það, nei!
He$#&is!
Ég man ekki hvernig stykki
mig vantar.
Við þurfum
að skjótast
heim og …
Af hverju?
Ég sendi
mömmu
skilaboð og
bið hana um
að taka mynd
af pípunum
og senda
mér.
Hérna er
svarið þitt.
Oh.
Hvað er
að?
Að fara í
margar ferðir í
byggingavöru-
verslunina
er hluti af
fjörinu.
Oh ææjiii!! Annar
riddari? Hvernig væri
að bjóða upp á
prinsessu stöku
sinnum?
Hvernig
stafar maður
Tyrfingur?
T-Y-R-F-I-N-G-U-R
Hvað með
blæbrigði?
B-L-Æ-B-R-I-G-Ð-I
Maður á aldrei að læra
heima án íslenskrar
mömmu-orðabókar.
Ekki furða að þú
sért svona góð í
stafsetningu!
LÁRÉTT
2. köttur, 6. til dæmis, 8. aðstoð,
9. þvottur, 11. mun, 12. hængur,
14. pilla, 16. grískur bókstafur,
17. kelda, 18. angra, 20. þys, 21. tikka.
LÓÐRÉTT
1. tala, 3. þófi, 4. eyja, 5. svelg,
7. dagshluti, 10. líða vel, 13. upp-
hrópun, 15. svara, 16. fálm, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kisi, 6. td, 8. lið, 9. tau,
11. ku, 12. agnúi, 14. tafla, 16. pí,
17. fen, 18. ama, 20. ys, 21. tifa.
LÓÐRÉTT: 1. átta, 3. il, 4. sikiley,
5. iðu, 7. dagtími, 10. una, 13. úff,
15. ansa, 16. pat, 19. af.
Ísland á Ólympíuleikunum
Daufaslaka dalvískan
Olíuvetur en
ekki arabískt vor
Sýrlendingurinn Bashir Mustafa segir ógnaröldina í
heimalandi sínu snúast um yfirráð yfir olíu en ekki
lýðræðisbyltingu.
Meðal annars efnis:
Hvað veitir þér lífshamingju? Ef svarið þitt er að fylgjast með sápuóperum og
bresku konungsfjölskyldunni, þá eigum við
ekki skap saman. Þér er þó vorkunn því það
er merkilega erfitt að svara þessari spurn-
ingu án umhugsunar. Ég átti í það minnsta
erfitt með það þegar hún var borin undir
mig fyrir skömmu. Merkilega erfitt segi
ég því hamingja er alveg við toppinn á lista
okkar flestra yfir það sem við sækjumst
eftir í lífinu.
AUGLJÓSA svarið er líklega góðu hlutirnir.
Rauðbleik nautasteik og rauðvín. Heitt
freyðibað og heilnudd. Sofa út og slappa af.
Hvað sem kveikir í þér. Þetta svar er þó
ekki fullnægjandi því eintóm sætindi fara
illa með tennurnar. Þess sætasta nýtur
þú fyrst til fulls þegar þú hefur kynnst
hinu súra. Ein kenning er því sú að lífs-
hamingja byggi þvert á móti á aga. Leggja
skuli hart að sér og neita sér um freisting-
ar. Það byggi upp sterkan persónuleika
og þá sjaldan sem maður leyfi sér
eitthvað verði það þeim mun sæt-
ara. Ef marka má ævisögu Steve
Jobs lifði sá snillingur í samræmi
við þessa speki. Hann virkaði þó
reyndar ekki á mig sem sérstaklega
hamingjusamur gaur (Siri gat ekki
staðfest það, ég spurði). Í þessu er
þó sannleikskorn, maður getur leyft
sér að njóta helgarinnar ögn betur hafi
maður ræktað musterið í vinnuvikunni.
ÖNNUR kenning er sú að ánægja felist
í því að klára það sem maður tekur sér
fyrir hendur. Undir það geta væntan-
lega flestir tekið sem hafa klárað krefj-
andi verkefni og verið stoltir af vinnu
sinni. Í gær fór ég einmitt út og kláraði
hamborgaramáltíð. Þá leið mér leið vel.
Stundum virðist reyndar ánægjan felast
í vinnunni sjálfri fremur en afrakstr-
inum. Ferðalaginu, ekki áfangastaðnum.
Slík ánægja er þó væntanlega skilyrt;
verkefnið verður að vera spennandi. Ég
efast um að ræstingafólk í klámbíóum –
versta vinna í heimi samkvæmt Google
– ljómi af sjálfsvirðingu eftir dag á skrif-
stofunni. Niðurstaðan er því elsta ráð í
heimi; verðu tíma þínum í það sem þú
hefur einlægan áhuga á og telur virð-
ingarvert. Loks segja margir að lífsham-
ingja fáist með því að deila jákvæðum og
skemmti legum upplifunum með félögum
og ást vinum. Ég held að það sé mikið
til í því, í það minnsta tengist engin af
mínum eftirminnilegustu minningum
einveru. Ég er fyrir löngu búinn að bæla
þær allar niður.
HVERT er þá svarið? Jú, væntanlega að
taka sér fyrir hendur spennandi verk-
efni og vinna þau vel, í góðra vina hópi.
Þess á milli að njóta góðu hlutanna í líf-
inu, hóflega og í góðra vina hópi. Þá ætti
manni að líða vel. En þú þurftir kannski
ekki að lesa þennan pistil til að vita það.
Lauflétt um lífshamingjuna