Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 17
Matreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þátt-inn Eldað með Holta á sjón- varpsstöðinni ÍNN. Þar matreiðir hann skemmtilega og litríka kjúklingarétti úr Holtakjúklingi frá Reykjagarði. Á föstudögum birtast þessar uppskriftir hér á síðunni. Í dag býður Kristján upp á grillaða og marineraða kjúklingasteik. Hægt er að fylgjast með Kristjáni matreiða þennan girnilega rétt í kvöld klukkan 21.30 á ÍNN. Þættirnir eru síðan endur sýndir um helgina en einnig er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN, www.inntv.is. ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Hlöðversson sér um þættina Eldað með Holta á ÍNN. Hann gefur lesendum hér uppskrift að grillaðri kjúk- lingasteik með kaldri sósu. Hægt er að sjá hann elda réttinn á ÍNN. KJÚKLINGASTEIK 800 g Rikku-kjúklinga- steikur frá Holta Jonas bbq-sósa McCormick Mesquie- krydd Sojasósa 2 sætar kartöflur 2 box smámaís 2 búnt vorlaukur 4 rauðlaukar Olía Tréspænir frá Grill- búðinni AÐFERÐ Tréspænirnir eru settir í bleyti í 30 mínútur. Þá eru þeir teknir úr vatninu og settir í ál- eða járnbox með götum. Boxið er síðan sett undir grillristina á meðan á elduninni stendur. Kjúklingasteikurnar eru kryddaðar með krydd- inu og síðan set ég 70 ml bbq-sósu og smá sojasósu yfir steikurnar. Látið liggja í um það bil 30 mínútur. Sætar kartöflur skræld- ar og skornar langsum. Vorlaukur og smámaís grillaður í heilu en fyrst er sett olía yfir. Bragð- bætt með salti og pipar. KÖLD KRYDDSÓSA 1 grísk jógúrt 1 hrein jógúrt 2 rauðir chili-pipar 1 stk kúluhvítlaukur smá fersk steinselja 1 búnt vorlaukur salt og pipar 2 msk. síróp 3 tsk. Alfez spicy lemon tagine paste Allt skorið smátt og blandað saman við jógúrtina. Grillað með ást og um- hyggju og bros í hjarta. BBQ KJÚKLINGASTEIKUR FRÁ RIKKU Með grilluðu grænmeti og kaldri kryddsósu STRANDHANDBOLTI Í NAUTHÓLSVÍK Strandhandboltamótið verður haldið í Nauthólsvík í níunda sinn á morgun. Spilað verður frá morgni til kvölds við hress- andi strandtónlist. Þarna er á ferðinni skemmtilegt mót sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Hagkaup, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Hrannarbúðin Grundarfirði. Skipavík, Stykkishólmi. VESTFIRÐIR: Verslunin Ranglátur, Tálknafirði. Fjölval, Patreksfirði. Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Drangsnesi. Snerpa Ísafirði. NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Smárabær, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Valberg, Ólafsfirði. SR Byggingavörur, Siglufirði. Hagkaup, Akureyri. Heimilistæki, Akureyri. Víkurraf, Húsavík. AUSTURLAND: Tölvulistinn, Egilsstöðum, Kauptún, Vopnafirði. Nettó, Höfn Hornafirði. SUÐURLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Geisli, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuþjónusta Benna, Grindavík. Heimilistæki, Reykjanesbæ. Hagkaup, Njarðvík. ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ. HENTA VEL HVORT SEM ER Í STOFUNA, HERBERGIÐ, Á HÓTELIÐ, SUMARBÚSTAÐINN EÐA HJÓLHÝSIÐ. MEÐ DVD SPILARA TILBOÐ 49.990 Finlux 22FLX850DVUD 22“ HD LCD SJÓNVARP með DVD spilara, 1366x768p upplausn, stafrænum DVB-T mót takara og er 12/220v. Fjöldi tengimöguleika m.a. Scart, HDMI, USB marg miðlunartengi, Digital Coax, Heyrnartólstengi og CI rauf fyrir afruglarakort. 12/230v

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.