Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|FERÐIR Skipholti 29b • S. 551 0770 15%AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM GERÐU SAMKOMULAG VIÐ BARNIÐ UM NETNOTKUN Á HEIMILINU www.saft.is FIMM ÚTVARPS- STÖÐVAR Í BEINNI FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, s 512 5432 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is s. 512-5427 TILBOÐ Í LEIFSSTÖÐ „Við lentum í fyrsta ævintýrinu strax í Leifsstöð þegar við vorum á leið- inni út.” Hjá átta nemendum úr Tón-listarskóla Kópavogs, Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Árnesinga varð tveggja ára draumur að veruleika í ágúst síðastliðnum en þá héldu þeir í ferð til Ítalíu. Búið var að safna fyrir ferðinni á ýmsan hátt, meðal annars með því að halda tónleika. „Ég lofaði stelpunum að fara í þessa ferð til míns heimalands, Ítalíu, til að spila á tón- leikum og fara á tónlistarnámskeið,“ segir Pamela De Sensi, tónlistarkennari sem fór með stelpunum í ferðina sem reyndist vera hin mesta ævintýraferð. „Við lentum í fyrsta ævintýrinu strax í Leifsstöð þegar við vorum á leiðinni út. Þá spiluðu stelpurnar óvænt nokkur lög fyrir gesti og gangandi. Fólk hafði gaman af þessu og við vöktum mikla athygli. Meðal þeirra sem sáu okkur þarna var maður frá Zürich sem bauð okkur í kjölfarið að taka þátt í tónlistarhátíð fyrir ungt fólk þar í borg næsta sumar. Vonandi getum við þegið boðið því það verður eflaust gaman og mikil reynsla fyrir stelpurnar.“ Hópurinn hélt svo til Mílanó þar sem gist var í tvo daga. Þar, sem og annars staðar þar sem hópurinn var, voru haldnir óvæntir útitónleikar á götum úti. „Þaðan var haldið til Feneyja þar sem við spiluðum á Markúsartorginu og vöktum mikla athygli. Fólk sem beið í biðröð eftir að komast inn í kirkjuna fór að safnast í kringum okkur og hlusta. Þetta var algjör draumur fyrir stelpurnar. Það sama má segja um tónleikana sem við héldum í Róm. Þá spiluðum við fyrir utan Coloss- eum og fólk sneri sér að okkur og hlust- aði og beið með að fara inn í bygginguna frægu. Þá varð einni stelpu að orði: „Við erum frægari en Colosseum.“ Ævintýrinu var ekki lokið því þeir tónleikar voru teknir upp fyrir tilviljun af suður-amerískri sjónvarpsstöð sem var þar til að gera heimildarþátt um Coloss- eum. „Þeir höfðu svo samband við okkur og fengu leyfi til að birta okkur í þætt- inum þannig að íslenskir flautuleikarar verða í suður-amerísku sjónvarpi í októ- ber,“ segir Pamela og hlær. Hópurinn endaði ferðina svo í San Gemini þar sem stúlkurnar voru á nám- skeiði. „Þar var spilað í fimm klukku- stundir á dag í tíu daga. Þetta var mikil vinna en jafnframt mjög skemmtilegt.“ ■ lilja.bjork@365.is ÆVINTÝRI Á ÍTALÍU TÓNLEIKAFERÐ Hópur flautustelpna úr þremur tónlistarskólum hélt í ævin- týraferð til Ítalíu í ágúst síðastliðnum ásamt kennara sínum, Pamelu De Sensi. ÚTITÓNLEIKAR Stelpurnar héldu óvænta útitónleika á öllum þeim stöðum sem þær komu á fyrir gesti og gangandi og vöktu mikla lukku. FRÆGAR Stelpunum fannst þær vera frægari en Colosseum þegar fólk fylgdist með þeim spila fyrir utan bygginguna þekktu. TÓNLISTARKENNARI Pamela de Sensi fór með hópi stúlkna, sem hún kennir að spila á flautur, til Ítalíu sem er hennar föðurland. MYND/ANTON BRINK Fönkþátturinn Fimmtudagskvöld kl. 22 -inniheldur m.a. hinn öfluga DDS1 asídófílus sem er bæði gall- og sýruþolin. -er sannkölluð himnasending fyrir meltinguna, bætir og byggir meltingarflóruna og hefur reynst vel þeim sem þjást m.a. af meltingarkrampa, uppþembu, kandíta, lausri og tregri meltingu. www.gengurvel.is UPPLIFÐUMUNINN!® ® Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Sykur Soja Rotvarn- arefni P R E N T U N .IS Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466 Meðal námsefnis: Mannleg samskipti. Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. Mismunandi trúarbrögð. Saga landsins, menning og listir. Frumbyggjar og saga staðarins. Þjóðlegir siðir og hefðir. Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason. Fararstjórn erlendis Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursso fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í. , Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. Nýtt námskeið hefst 26. september

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.