Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 14
14 19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓRÓlafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Nú er fagnað á Suðurnesjum og færðar fréttir af því að álver í Helguvík verði brátt að veruleika. Í gleðinni virðast menn hafa misst sjónar á framtíðarhagsmunum og vera tilbúnir að kveðja Reykjanesskag- ann eins og fólk þekkir hann í dag. Álverið mun skapa fjölda starfa, um það þarf ekki að deila. Það þarf atvinnu á Suðurnesjum, það þurfum við heldur ekki að deila um. En … atvinnuuppbygging sem fylgir álveri í Helguvík mun kosta 8-16 jarðhitavirkjanir á skaganum sem tengdar verða saman með tilheyrandi mannvirkj- um. Jarðhitavirkjunum fylgja borstæði, brennisteinsmengun, hitaveiturör, vegir og lón með affallsvatni. Uppbyggingin mun einnig þurfa tvöfalda röð af þrjátíu metra háum stálmöstrum eftir endilöngum Reykjanesskaganum ásamt tengivirkjum. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki alltaf hægt að fá ýtrustu kröfum sínum fullnægt og það hef ég aldrei látið mig dreyma um. En er þetta nauðsynleg- ur fórnarkostnaður? Geta virkjunarsinnar ekki sýnt framandi sjónarmiðum smá virð- ingu og hugsað sér að landið geti verið ein- hvers virði þó það sé ekki fullt af rörum og staurum? Ég hef fyrst og fremst komið að þessu máli með því að reyna að fá Landsnet til að skoða hugmyndir um sæstreng eða jarð- streng út í Helguvík. Ég hef líka rætt um að fá raflínur færðar til svo svæði innan Sveitarfélagsins Voga sem er fyrir ofan Reykjanesbraut verði ekki óhæft til nýt- ingar. Kröfum um allt slíkt hefur verið mætt með fyrirlitningu á skoðunum sem bera minnsta einkenni náttúruverndar og virðingarleysi fyrir annars konar nýting- aráformum en þeim sem fela í sér línur og línuvegi. Ég á erfitt með að sætta mig við að Suður nesjamenn vilji búa í umhverfi þar sem fyrirætlanir eru um stóraukna brenni- steinsmengun, aukna tíðni jarðskjálfta og stórar og öflugar raflínur með tilheyrandi segulsviði. Ég á erfitt með að trúa því að Íslendingar vilji í raun og veru sjá eitt sam- fellt orkuvinnslusvæði eftir öllum Reykja- nesskaganum. Þetta er ekki bara einkamál náttúruverndarsinna, sveitarstjórnamanna á Suðurnesjum, erlendra ferðamanna eða landeigenda. Þetta er spurning um heilsu- far og lífsgæði og spurning um hvort við erum öll tilbúin að kveðja Reykjanesskag- ann eins og við þekkjum hann í dag. Og þessi grein er ekki bara létt hugvekja – hún er ákall um hjálp. Hverju er nauðsynlegt að fórna? Náttúru- vernd Inga Sigrún Atladóttir forseti bæjarstjórnar í sveitarfélaginu Vogum bokafelagid.is SPILABÓKINSPILABÓKIN SPILABÓKIN 3. PRENTU N KOMIN Í VERSLA NIR! Umboð og afleiðingar Mikið hefur verið deilt um hvert umboð fjórir þingmenn atvinnu- veganefndar höfðu þegar þeir rituðu greinargerð um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar- flokksins, sat í hópnum. Hann sagði í gær að tekist hefði að ná samkomulagi um 80 til 90% af deiluefnum og því væri óskiljanlegt ef ekki ætti að standa við sam- komulagið. Í því ljósi er athyglisvert að lesa greinargerð hópsins, sem Sigurður Ingi sat í. Þar segir í niðurlagi að fyrir lægi að meðlimir hans færu með takmarkað samningsumboð „enda ljóst að skoðanir manna væru skiptar þegar að sjávarútvegsmálum kæmi“. Ekki bindandi Lokasetning greinargerðarinnar er býsna skýr: „Í ljósi þessa skal það áréttað að efni greinargerðarinnar endurspeglar ekki nauðsynlega skoðanir stjórnmálaflokkanna eða flokkssystkina meðlima trúnaðarmannahópsins.“ Þessi orð Sigurðar Inga og félaga gefa ekki til kynna að greinargerðin hafi átt að vera bindandi. Icesave lokið Fréttamenn þurfa ætíð að hafa það í huga að trúa ekki blint á fréttatilkynn- ingar. Þær eru nefnilega skrifaðar af hagsmunaaðilum. Það sást berlega í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu varðandi Icesave, sem barst fjölmiðlum í gær: „Ítarlega var farið yfir tilurð tilskipunarinnar og sýnt fram á að innstæðutryggingakerfið rís ekki undir stórfelldu bankaáfalli …“ Þar höfum við það. Icesave er lokið, búið er að sýna fram á hið rétta. kolbeinn@frettabladid.is S kýrsla Seðlabankans um kosti Íslands í gjaldmiðils- og gengis- málum er mikilvægt innlegg í umræðuna og til þess fallin að skýra línur og eyða ranghugmyndum. Þar er til að mynda nokkuð kerfisbundið slökkt á ýmsum villuljósum um möguleika á einhliða eða tvíhliða upptöku hinna ýmsu gjaldmiðla ríkja, sem Ísland á hlutfallslega lítil viðskipti við og hafa engan áhuga á að vera í myntbandalagi með Íslandi. Þetta ætti að stuðla að því að beina umræðunni frá patentlausnum og að aðalatriðum málsins. Seðlabankinn dregur það skýrt fram sem raunar hefur lengi legið fyrir; að í núverandi stöðu eru kost- ir Íslands tveir. Annar er sá að búa áfram við krónuna en styrkja hag- stjórnina. Hinn er að taka upp evru eftir inngöngu í Evrópusambandið. Í skýrslunni segir: „Það virðist því skynsamlegt að halda um hríð áfram á þeirri braut sem fetuð hefur verið að undanförnu að þróa og skýra þessa tvo kosti, annars vegar með því að vinna af krafti að endur bættum ramma um krónuna og hins vegar í gegnum aðildarumsókn Íslands að ESB.“ Seðlabankinn bendir á það augljósa, að hvorugur kosturinn er galla- laus. Galla krónunnar þekkjum við vel. Hún hefur magnað sveiflur í þjóðarbúskapnum fremur en að draga úr þeim. Með gengisfellingum hafa fjármunir verið fluttir frá almenningi til útflutningsfyrirtækja. Sjálfstæð mynt hefur ýtt undir verðbólgu og verðtrygging fjárskuld- bindinga orðið ill og óvinsæl nauðsyn. Krónan gefur aftur á móti kost á sjálfstæðri peningamálastefnu. Með upptöku evrunnar yrði því sjálfstæði fórnað. Mat Seðlabankans er hins vegar að með evru myndu milliríkjaviðskipti Íslands örvast og þjóðartekjur hækka, vextir lækka, samkeppni og verðvitund neytenda vaxa og auðveldara yrði fyrir fyrirtæki að sækja á stærri markaði. Seðlabankinn bendir á leiðir til að auka aga í hagstjórninni til þess að búandi yrði við krónuna áfram. Hann dregur aftur á móti líka fram að fyrri tilraunir til að reka hér árangursríka, sjálfstæða peninga- málastefnu hafa klúðrazt. Með evrunni fengist sá agi í hagstjórnina sem leiðir af hinu alþjóðlega samstarfi um gjaldmiðilinn. Upptaka evru yrði ekki möguleg fyrr en eftir nokkur ár og á þeim tíma kemur vænt- anlega í ljós hvort Evrópusambandið nær að stoppa í götin í regluverki evrunnar og herða agann í sameiginlegri fjármálastjórn sambandsins. Það blasir við að skynsamlegasta leiðin í stöðunni er að leitast við að styrkja umgjörð krónunnar til næstu ára, en stefna að upptöku evrunnar til lengri tíma litið. Eins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, bendir á í Fréttablaðinu í gær, eru aðgerðirnar sem þarf til að styrkja umgjörð krónunnar í grófum dráttum þær sömu og „geta til lengri tíma tryggt að við höfum einhverja valkosti, vilji menn hafa þá í framtíðinni“. Auðvitað viljum við eiga valkosti í framtíðinni. Seðlabankinn slær því föstu að evran sé eini raunhæfi kosturinn sem við eigum, utan krónunnar. Takist ekki að losa gjaldeyrishöftin á meðan við búum við krónuna þarf að fara í „plan B“ eins og Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri kallar það, að afnema höftin í samstarfi við Evrópusambandið og þá væntanlega sem lið í upptöku evru. Eftir útkomu skýrslu Seðlabankans verður sú stefna margra stjórn- málamanna að útiloka sem allra fyrst eina kostinn sem við eigum annan en krónuna með því að slíta aðildarviðræðum við ESB enn óskiljanlegri en ella. Skýrari línur í gjaldmiðlaumræðunni: Villuljósin slökkt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.