Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 8
19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR8 VEISTU SVARIÐ? 1. Hvaða lið, sem spiluðu í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar, munu spila í efstu deild á næsta ári? 2. Hvaða land fer nú með for- mennsku í ráðherraráði ESB? 3. Hvaða norski rithöfundur áritaði nokkur eintök bóka sinna í Máli og menningu um helgina? SVÖR: 1. Þór Akureyri og Víkingur Ólafsvík 2. Kýpur 3. Jo Nesbø Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 NEYTENDAMÁL Íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að endur- skoða lög um stimpilgjöld með það fyrir augum að afnema slík gjöld á útgáfu skuldabréfa einstak- linga þegar skipt er um kröfuhafa. Starfshópur sem hefur verið skip- aður á að skila af sér frumvarps- drögum um málið í október. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um samþykkt á ríkisaðstoð við nýju bankana þrjá, Landsbanka, Íslandsbanka og Arion banka, þegar þeir voru fjármagnaðir. Í ákvörðun ESA segir einnig að starfshópurinn eigi einnig að kanna hvernig álagn- ingu stimpilgjalda megi breyta til að einfalda ferlið og ýta undir sam- keppni á meðal fjármálafyrirtækja. Lög um stimpilgjöld voru sett 1978. Samkvæmt þeim greiða allir sem kaupa sér fasteign 0,4 prósent af fasteignamati hennar í stimpil- gjald til ríkissjóðs. Þeir sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign eru undan þegnir gjaldinu. Af vana- legum veðskuldabréfum eru greidd 1,5 prósent af fjárhæð bréfsins. Ef skuldari ætlar að færa skuldir sínar yfir til annars fjármálafyrirtækis, sem býður mögulega betri kjör, þá þarf hann að greiða stimpilgjöld af nýju fjármögnuninni. Þau gera það oft að verkum að flutningur- inn verður óhagkvæmur og gjöldin Engin stimpilgjöld við skipti á banka Nefnd vinnur að frumvarpsdrögum sem eiga að draga úr kostnaði við flutning viðskipta á milli lánardrottna. Önnur nefnd á að endurskoða neytendavernd á íslenskum fjármálamarkaði. Hún skilar skýrslu í síðasta lagi 15. janúar 2013. Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Volkswagen Passat Comfortline Plus er nú fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti ásamt bakkmyndavél. www.volkswagen.is Ratvís og víðsýnn Volkswagen Passat EcoFuel Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat Passat Comfortline Plus sjálfskiptur kostar aðeins 4.390.000 kr. Nú á enn betra verði 15 stk. í pakka Verð áður 2.849 kr. 1.994 KR. TILBOÐSVERÐ VNR. 1000304 ELDHÚSRÚLLUR HVÍTUR PAPPÍR, TVEGGJA LAGA, 200 HÁLFSKIPT BLÖÐ, 24 M Á RÚLLU Stórhöfða 42, Reykjavík Austursíðu 2, Akureyri 587 7788 papco.is Góð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir SEPTEMBERTILBOÐ Stimpilgjöld eru mikil tekjulind fyrir ríkissjóð. Samkvæmt nýbirtu fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 2013 er áætlað að þau skili 4,1 milljarði króna í hann á næsta ári. Á árunum 2009 til 2012 er áætlað að þau hafi skilað 11,7 milljörðum króna í ríkissjóð. Samtals munu Íslendingar því samtals hafa greitt 15,8 milljarða króna í stimpilgjöld frá byrjun árs 2009 og út næsta ár, gangi tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins eftir. Gjöldin skila milljörðum í ríkissjóð NEYTENDUR Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að níu af tólf amer- ískum matvælategundum sem kann- aðar voru í helstu matvöruverslun- um höfuðborgarsvæðisins innihalda erfðabreytt efni án þess að þess sé getið á vörumerkingum. Frá þessu er greint á vef Neytendasamtak- anna. Frá og með síðustu áramótum hefur verið skylt að merkja matvæli og fóður sem innihalda erfðabreytt efni. Könnunin var gerð á vegum Neyt- endasamtakanna, Matvæla- og veit- ingafélags Íslands og Náttúrulækn- ingafélags Íslands. Sýnin voru send Ný rannsókn á matvörum í verslunum á höfuðborgarsvæðinu: Erfðabreytt efni í matvörum Vörutegundir sem innihalda erfðabreytt efni virka því sem samkeppnishindrun. Í júní síðastliðnum tilkynnti ESA um þá ákvörðun sína að sam- þykkja þá ríkisaðstoð sem veitt var við endur skipulagningu á nýju við- skiptabönkunum þremur. Þar kom fram að stjórnvöld og bankarn- ir sjálfir þyrftu að grípa til full- nægjandi ráðstafana til að draga úr röskun á samkeppni vegna tilurðar þeirra. Jafnframt segir að íslensk stjórnvöld hafi skuldbundið sig til að endurskoða lög um stimpilgjald með tilliti til þess að draga úr kostnaði við flutning viðskipta á milli lánar- drottna. Í öðru lagi eigi stjórnvöld að skipa nefnd sem á að endurskoða neytendavernd á íslenskum fjár- málamarkaði og leggja fram tillög- ur um hvernig staða einstaklinga og heimila gagnvart fjármálafyrir- tækjum getur verið styrkt. Nefndin á sérstaklega að fjalla um að auð- velda viðskiptavinum fjármála- fyrirtækja að skipta um viðskipta- banka. thordur@frettabladid.is til greiningar í rannsóknarstofu Genetic-ID í Þýskalandi en fyrir- tækið er sagt vera heimsþekkt fyrir greiningar á erfðabreyttum efnum. Á vef Neytendasamtakanna segir að bandarísk stjórnvöld krefjist ekki merkinga á erfðabreyttum matvæl- um og því þurfi innflytjendur að láta greina allar matvörur þaðan til þess að ganga úr skugga um hvort þær innihaldi erfðabreytt efni. Samtök bandarískra matvæla- vinnslufyrirtækja áætla að allt að 80 prósent unninna matvæla inni- haldi erfðabreytt efni - ibs Shop Rite Corn Flakes Pop Corners Doritos Cool Ranch Tortilla Chips Maíshveiti EAS Advent Mass Muscle Gainer Zone Perfect EAS Advanced Edge EAS Lean 15 NEYTENDUR Yggdrasill hefur inn- kallað þriggja korna lífrænan barnagraut þar sem í honum mældist aukið magn OTA (myco- toxin), sem er myglusveppaeitur. Grauturinn er framleiddur undir vörumerkinu Holle. Varan er þó innkölluð hér á landi til að gæta fyllsta öryggis. Þetta á við um graut sem er merktur dagsetn- ingunni 25.04.2013. Grauturinn fór í dreifingu í Nettó, Samkaup, Melabúðina, Fjarðarkaup, Hag- kaup, Víði, Lyfju og Vöruval í Vest- mannaeyjum. - sv Yggdrasill innkallar barnamat: Sveppaeitur í barnagraut

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.