Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 34
Húsbóndinn á Reykjavíkurhótelunum er Ólafur
Torfason. Hann lenti óvænt í hringiðu hótel-
reksturs fyrir tuttugu árum og líkar það vel.
Nú þegar hótelin standa á tvítugu segir hann
framtíðina nokkuð bjarta og margt spennandi
í farvatninu, enda hótelrekstur sveipaður töfra-
ljóma.
Dagsverkin byrja klukkan sex og flesta daga vikunnar er ég mættur til vinnu upp úr sjö. Í seinni tíð hef
ég tekið annan helgardaganna með ró og svo næ ég mér
alltaf í kríu í hádeginu heima. Þetta gerir hátt í sextíu tíma
vinnuviku og konan er alsæl með það; hún fær þá ekki leið
á mér á meðan,“ segir Ólafur Torfason og skellir upp úr.
Ólafur segir hótelrekstur skemmtilegan en í honum lenti
hann alveg óvænt. Áður starfaði hann í matvörugeiranum
þegar hann rak fyrirtækið Kaupgarð.
„Ég var kominn með annan fótinn upp í háskóla til að
mennta mig meira þegar örlögin leiddu mig annað. Í há-
skólanum ætlaði ég að læra mannfræði og hagfræði og sá
fyrir mér mikla þörf á hagfræðingum úti í heimi, þangað
sem ég stefndi eftir námið,“ útskýrir Ólafur.
„Hótelreksturinn kom hins vegar þannig til að upp úr
1990, leysti Kaupgarður til sín fjárvana byggingarfélag sem
sat uppi með hálfkláraða húsatorfu í Egilsborgum, mitt á
milli Rauðarárstígs og Þverholts. Torfan átti upphaflega
að vera blanda af íbúðum og atvinnuhúsnæði en nú þurfti
að finna húsunum nýtt hlutverk. Upp skaut hugmyndinni
um hótel enda skiptist húsnæðið ágætlega í herbergi og í
framhaldinu tryggði ég mér nafnið Hótel Reykjavík,“ segir
Ólafur, inntur eftir tilurð Reykjavíkurhótelanna.
Kappsamur frumherji
Hótel Reykjavík opnaði í sumarbyrjun 1992 með þrjátíu
herbergjum. Ári síðar bættust við 31 herbergi og önnur átján
árið 1997.
„Í fyrstu reyndu margir að telja mér hughvarf og hvar-
vetna mætti ég neikvæðni og úrtölum. Það gerði ævintýrið
enn meira spennandi því mér þykir fátt skemmtilegra en
að sanna fyrir öðrum að þeir hafi rangt fyrir sér. Forrystu-
menn íslenskra ferðamála á þessum tíma lýstu því yfir að
hótelbransinn væri hinn erfiðasti og u.þ.b. 100 herbergjum
ofaukið á markaðnum. Síðan hefur þeim fjölgað jafnt og
þétt og þörfin aukist að sama skapi. Enda hef ég alltaf sagt
að fyrst þurfum við að hafa herbergin klár áður en við fáum
gestina,“ segir Ólafur og brosir.
Hann segir framgang hótelkeðjunnar sýna að réttar
ákvarðanir voru teknar á hverjum tíma.
„Vitaskuld er gott að vera varkár en með hliðsjón af
fortíðinni og þegar framtíðin er skoðuð er ljóst að við tókum
réttu skrefin. Ferðaþjónusta hefur vaxið hratt á Íslandi og
mun halda áfram að vaxa um ókomin ár. Við þurfum því
að vanda okkur í öllum ákvörðunum sem tengjast ferða-
mönnum, lengja ferðamannatímann, þróa nýja ferða-
mannastaði og bæta aðgengi til að geta tekið sem best á móti
gestum okkar. Þar að auki þarf að fara varlega í breytingar
á skattaumhverfi greinarinnar.”
Á torgi mannslífs og menningar
Að sögn Ólafs er jafn og stöðugur uppgangur í rekstri
Reykjavíkurhótelanna. Nýting herbergja batnar ár frá ári,
sem og afkoman eftir töluvert bakslag í kjölfar hrunsins
haustið 2008.
„Ferðatilhögun hótelgesta hefur sömuleiðis breyst á
þessum tuttugu árum. Þeir koma nú með mun styttri fyrir-
vara og dvelja lengur í senn,“ segir Ólafur.
“Níu af hverjum tíu gestum Reykjavíkurhótela eru erlendir
eða yfir 90% gesta. Allt eru það góðir og velkomnir gestir
eins og íslenskirgestir sem gera sér glaðan dag hjá okkur eða
gista á ferðalagi vinnu sinnar vegna. Íslendingar eru í eðli
sínu veraldarvanir heimsborgarar sem kunna að njóta þess
besta í mat og drykk“.
Hann segir hótel sveipuð töfraljóma því þar sé hægt að
lyfta sér upp, njóta dekurs, þjónustu og ævintýra um leið og
fólk nái að kúpla sig út úr umgjörð og amstri hvunndagsins.
„Á hótelum mætist fólk frá öllum heimshornum og ólíkum
menningarheimum. Því skapast framandi og skemmtilegur
ys og þys. Umhverfið er lifandi og síbreytilegt og sem dæmi
getur samanlagður gestafjöldi í gistingu og á ráðstefnum á
Grand Hótel Reykjavík slagað upp í meðalstórt byggðarlag
úti á landi, með öllum sínum fjölbreytileika í mannlífi og
menningu.“
Gæfuríkur tími
Ólafur segir lykilinn að velgengni Reykjavíkurhótelanna
felast m.a. í að gesturinn sé ánægður að dvöl lokinni og þar
skiptir góður nætursvefn í góðum rúmi höfuðmáli, einnig
veglegur morgunverður og gleðilegt viðmót í móttöku.
Til að fylgjast sem best með gæðum og þjónustu gistir
Ólafur reglulega á hótelum sínum um land allt.
„Sem ferðalangur geri ég reyndar litlar kröfur þegar
kemur að hótelherbergjum en hef leyft mér að fara á allra
glæsilegustu hótelin í Kína. Það er mikil upplifun og gaman
að fylgjast með þróuninni. Annars kann ég allsstaðar vel
við mig, líka í litlum skonsum þar sem ég get sofnað í góðu
rúmi.“
Metnaður okkar felst meðal annars í því að gestirnir séu
sáttir. Við höfum blessunarlega verið laus við hótelgesti sem
rústa herbergjum en sumir hafa fyrir sið að leggjast í 41
gráðu heitt bað og sturta sig svo frammi á gólfi. Þá halda
þeir að öryggisniðurfall undir vaski sé aðalniðurfallið fyrir
sturtuna og vatn rennur um allt og á milli hæða. Við út-
bjuggum því herbergin í turninum með sturtu og baðkari
svo gestir okkar frá Asíu gætu nú sturtað sig slysalaust ef
þeir fjölguðu ferðum sínum verulega, eins og komið hefur
á daginn. Þetta er hins vegar ekki með vilja gert; þeir eru
vanir mikilli baðmenningu og við höfum reynt að aðlaga
okkur því.“
Reykjavíkurhótel í útlöndum
En hvernig sér Ólafur framtíð Reykjavíkurhótelanna fyrir
sér?
„Við munum ótrauð halda áfram að vaxa og dafna. Ég átti
mér lengi draum um að opna hótel í útlöndum en sem betur
fer rættist hann ekki á þeim tíma. Ég læt hann þó verða að
veruleika einn daginn enda kornungur maður sem á nóg
eftir. Hótel á Spáni, í Kaupmannahöfn og víðar, með Íslands-
deild, íslenskri hönnun, íslenskum mat, söluskrifstofu og
fleiru í þeim dúr. Reykjavíkurhótelin standa nú á tvítugu, í
blóma lífsins og við erum rétt að byrja.“
Reykjavíkurhótel
í blóma lífsins
Feðgar á ferð; Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Fosshótela, Ólafur Freyr Ólafsson, hótelstjóri Best Western Hótel Reykjavík, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Reykjavíkurhótelanna og
Þórhallur Ólafsson, hótelstjóri Hótel Reykjavík Centrum.