Fréttablaðið - 22.09.2012, Page 35
Í jarta Reykjavíkur stendur Best Western Hótel Reykjavík sem er nútímalegt og aðlaðandi þriggja
stjörnu hótel. Hótelið er elst af Reykjavíkurhótelunum
og fagnar 20 ára afmæli í haust. Hótelið býður upp á
79 herbergi, allt frá einstaklingsherbergjum upp í svítur,
með öllum helstu þægindum. Þjónustan er vinaleg og
góð í rólegu andrúmslofti. Öll herbergin hafa bað og/
eða sturtu, minibar, síma, gervihnattasjónvarp, þráðlaust
internet, útvarp og hárþurrku. Bæði fjölskylduherbergin
og svíturnar eru á tveimur hæðum. Rúmgóð setustofa er
á neðri hæðinni og svefnherbergin eru á efri hæðinni. Öll
herbergin á Best Western Hótel Reykjavík eru reyklaus.
Á hótelinu er bílageymsla sem stendur gestum til boða á
meðan dvöl stendur.
Á hótelinu er að finna veitingastaðinn La Luna sem sér-
hæfir sig í ítölskum mat, til dæmis pizzum, pastaréttum
og salötum. Á hverjum morgni er ljúffengt morgun-
verðarhlaðborð og á kvöldin er hótelbarinn opinn þar
sem hægt er að njóta kaldra og heitra drykkja í notalegu
umhverfi.
Best Western Hótel Reykjavík er eins og nafnið gefur til
kynna hluti af erlendri keðju. Best Western International
er bandarísk hótelkeðja sem stofnuð var árið 1946. Keðjan
samanstendur af rúmlega 4.000 hótelum í yfir 90 löndum.
Best Western International hefur verið starfrækt í Banda-
ríkjunum í 64 ár og í 34 ár í Evrópu.
Staðsetning hótelsins er sérstaklega hentug; stutt er
í marga áhugaverðustu staði borgarinnar og í gamla
miðbæinn. Hótelið er skammt frá Reykjavíkurflugvelli
og B.S.Í. og auk þess er Hlemmur rétt hjá með strætóferðir
í allar áttir.
Ólafur Torfason er stjórnarformaður Reykja-
víkurhótela og Fosshótela.
Reykjavíkurhótelin eru hvert með sitt sérkenni og sjarma.
Hótelin eru þrjú; Best Western Hótel Reykjavík, Grand
Hótel Reykjavík og Hótel Reykjavík Centrum. Hótelin
þrjú eru sniðin að ólíkum þörfum hótelgesta. Hvort
sem gestur leitar eftir góðu 3* ferðamannahóteli, fyrsta
flokks miðbæjarhóteli eða 4* ráðstefnuhóteli þá bjóða
Reykjavíkurhótelin upp á hótel við hæfi.
1992 - Hótel Reykjavík opnar við Rauðarárstíg 37 með
30 herbergjum.
1993 - 31 ný herbergi bætast við Hótel Reykjavík.
1995 - Grand Hótel Reykjavík opnar við Sigtún 38
eftir að Ólafur og félagar kaupa Holiday Inn.
1997 - 18 ný herbergi bætast við Hótel Reykjavík.
1997 - Ráðstefnuaðstaða er stórefld með opnun
Gullteigs á Grand Hótel Reykjavík.
2005 - Ólafur opnar Hótel Reykjavík Centrum við
Aðalstræti.
2007 - Turninn tekinn í notkun á Grand Hótel Reykja-
vík og hótelherbergjum fjölgar úr 108 í 312.
2009 - Ólafur varð meirihlutaeigandi í Fosshótelum,
sem nú hafa runnið saman með Reykjavíkur-
hótelum í nýtt hótelfélag sem fengið hefur nafnið
Íslandshótel.
Hótelin eru í meirihlutaeign Ólafs Torfasonar og fjöl-
skyldu en minni hluthafar eru eigendur Ferðaskrifstofu
Guðmundar Jónarssonar og fleiri. Hótelin eru öll starf-
rækt í eigin húsnæði utan hótelsins í Aðalstræti þar sem
húsnæðið er leigt af Reitum.
Saga Reykjavíkurhótelanna
BEST WESTERN Hótel Reykjavík
Ég er kallaður
Kallinn
Hótel Reykjavík
Best Western Hótel Reykjavík
Rauðarárstíg 37,
105 Reykjavík
Sími: 514 7000
www.hotelreykjavik.is
info@hotelreykjavik.is
Kristinn Guðmundsson, yfirþjónn á Grand
Hótel Reykjavík er öllum hnútum kunnugur í
hótel- og veitingabransanum eftir áratugastarf.
Hann segir starfið fjölbreytt og lifandi en alls
ekki auðvelt. Það þurfi ákveðna skapgerð til að
sinna því vel.
„Ég byrjaði ellefu ára sem lyftustrákur á Borginni. Þá
var meira að segja sveif á lyftunni en ekki takki,“ segir
Kristinn en hann man tímana tvenna í hótel- og veitinga-
bransanum. „Ég er fæddur árið 1949 svo þetta eru orðinn
ansi mörg ár. Ég er hættur næturdrollinu í dag og ríf nú
bara kjaft í dagvinnu,“ segir hann og hlær. „Ég er kallaður
„kallinn“ hérna!“
Kristinn vann sig upp úr pikkalóstarfinu og flutti sig
yfir á Gullfoss. Hann fór svo í læri á Naustið árið 1965 og
útskrifaðist árið 1969 sem framreiðslumaður. Hann hefur
komið víða við síðan, meðal annars í Leikhúskjallaranum,
á Hótel Holti og Þórscafé. Þá vann hann skrifstofuvinnu
hjá Félagi framreiðslumanna í mörg ár en kunni ekki við
sig bak við skrifborð.
„Ég fann mig ekki í níu til fimm skrifstofuvinnu og fór
í Perluna þegar hún opnaði. Árið 1997 kom ég hingað á
Grand Hótel Reykjavík og er hér enn,“ segir hann. Þegar
hann er spurður hvort hann hafi aldrei orðið leiður á starf-
inu segir hann það oft hafa komið fyrir.
„Ég væri ekki að segja satt ef ég hefði aldrei fengið leiða.
En starfið er mjög lifandi og fjölbreytt. Maður kynnist
mörgu fólki og sér margt. Ég hef alltaf kunnað vel við
fjölbreytileikann. Ég hef gaman af því ennþá þó ég hafi
oft hugsað sem svo að nú færi ég að hætta. Svo er ég allt
í einu orðinn 63 ára og finnst ég hreint ekki tilbúinn til
þess að hætta strax, ekki fyrst ég hef heilsuna ennþá. Ég
vinn frá 7 til 15 á daginn og hef ennþá brennandi metnað
fyrir starfinu. Þó ég finni svo sem fyrir því að gangarnir
hafa lengst og tröppurnar hækkað.”
Kristinn segir starfið þó ekki endilega auðvelt og alls ekki
allra. Það þurfi ákveðna skapgerð til að sinna því vel. Hæfi-
legt kæruleysi sé kostur en þó þurfi að fylgja ákveðnum
reglum. Hann hefur aldrei látið tiktúrur gesta angra sig.
„Það þarf bara að nálgast hlutina með réttu hugarfari,“
segir hann. „Maður verður að vera góður mannþekkjari,
það er ekki hægt að nota sömu taktíkina á alla. Ég var
til dæmis alltaf með rautt nef í vasanum þegar ég vann í
Perlunni í gamla daga og setti það upp þegar einhver kom
inn sem þurfti á upplyftingu að halda,“ segir Kristinn og
hlær. „Ég hætti því svo þegar hinir þjónarnir voru orðnir
afbrýðisamir yfir athyglinni sem ég fékk. Það þarf að líka
að passa móralinn í vinnunni.“
Kristinn er gjarnan kallaður til í opinberar veislur og
þegar kóngafólk sækir landið heim. Hann segist ekki nota
sérstaka tækni á kóngafólkið fremur en aðra gesti.
„Það eru auðvitað fleiri reglur um hvað má gera og hvað
ekki og maður heldur sig meira til hlés. En kóngafólk er
bara venjulegt fólk,“ segir hann en er þögull sem gröfin
þegar hann er beðinn um einhverjar krassandi sögur.
„Ég hef auðvitað lent í ýmsu og starfið er ekki alltaf dans
á rósum. Ánægjulegar upplifanir eru þó auðvitað fleiri, en
þessu heldur maður öllu fyrir sig.“
Í tilefni af 20 ára afmæli Reykjavíkurhótelanna
bjóðum við eftirfarandi tilboð.
Tilboðin er hægt að bóka frá 1. -31. október en gilda fyrir veturinn 2012-2013.
afmælistilboð á 20 þúsund20ára
Grand kvöldverður á Brasserie Grand
Veglegur 3ja rétta kvöldverður
með sérvöldum vínum.
Huggulegheit á Hótel Reykjavík Centrum
Gisting með morgunmat fyrir tvo í miðborginni,
vínflaska og ávaxtakarfa við komu.
Afmælisdekur á Grand Hótel Reykjavík
Gisting fyrir tvo með morgunmat, drykkir
á Miðgarðsbar og aðgangur að Reykjavík spa.
Gisting í tvær nætur á
Best Western Hótel Reykjavík
Gisting með morgunmat í tvær nætur
fyrir tvo í miðborginni.
Dömu- og herradekur á Reykjavík Spa
Ómótstæðilegt dekur fyrir hana og hann
í glæsilegu Reykjavík Spa.
Sex til sýnis á Fjalakettinum
Sex réttir af sérréttarseðli veitingastaðarins ásamt vínflösku.