Fréttablaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 4
13. október 2012 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 12.10.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
219,5088
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,49 123,07
196,73 197,69
158,80 159,68
21,287 21,411
21,496 21,622
18,331 18,439
1,5603 1,5695
188,66 189,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
18°
13°
9°
13°
15°
8°
8°
26°
12°
26°
12°
27°
7°
13°
20°
8°
Á MORGUN
5-10 m/s.
MÁNUDAGUR
Stíf A-átt syðra annars
víða 5-13 m/s.
6
6
6
5
3
7
7
8
9
9 14
8
7
7
8
7
8
6
7
10
17
9
5
7 7
5
6
4
6
5
4
4
VÍÐA DÁLÍTIL
VÆTA Hvasst og
frekar leiðinlegt
veður um sunnan
og vestanvert
landið í dag en úr-
komulítið og hæg-
ari norðaustantil.
Lægir og dregur úr
vætu til morguns
og prýðis gott
veður um mesta
allt land.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Félög og einstakling-
ar hlutu styrki upp á rúmlega
1,1 milljarð króna frá Orkuveitu
Reykjavíkur á árunum 2002 til
2010. Þetta kemur fram í skýrslu
úttektarnefndar um Orkuveitu
Reykjavíkur, sem var kynnt á
miðvikudaginn.
Árið 2002 voru veittar tæplega
55,2 milljónir króna í styrki, en
hæstu styrkina hlutu Aflvaki
hf. og starfsmannafélag Orku-
veitunnar, 15,5 milljónir og 7,7
milljónir. Þá fékk Orkustofnun
fjórar milljónir og Reykjavíkur-
borg fékk einnig fjórar milljónir
vegna ljósahátíðar í borginni.
Árið 2003 var 57,1 milljón veitt
í styrki en Aflvaki og starfs-
mannafélag OR voru áfram
stærstu styrkþegarnir. Þá fékk
Háskóli Íslands 7,3 milljónir í
styrk vegna meistaranáms.
Árið 2004 jukust styrkirnir
í tæpar 77 milljónir en þá fékk
starfsmannafélagið ríflegri styrk
en árin á undan, eða 14,5 millj-
ónir. Háskólinn fékk styrk upp
á 11,5 milljónir vegna meistara-
verkefna og Aflvaki fékk 8,5
milljónir. Þá fékk Háskólinn í
Reykjavík þrjár milljónir.
Árið 2005 lækkuðu styrkirnir
aftur í tæpar 63 milljónir, en
þá var hætt að styrkja Aflvaka.
Utan starfsmannafélagsins hlaut
Landgræðslan hæsta styrkinn
það árið, fimm milljónir vegna
uppgræðslu við Hengil.
2006 voru framlög til starfs-
mannafélagsins tekin út úr
styrkjunum, en samt hækk-
uðu styrkirnir upp í rúmar 82
milljónir. Íþrótta- og tómstunda-
ráð fékk hæsta styrkinn, 9,5
milljónir.
Árið 2007 var styrkjunum skipt
í tvennt, annars vegar styrki sem
stjórn OR samþykkti og hins
vegar aðra styrki, sem ekki fóru
í gegnum stjórnina. Frá 2007 til
2010 voru 516 milljónir veittar án
aðkomu stjórnarinnar.
Stjórnin samþykkti styrki upp
á 47,5 milljónir en aðrir styrk-
ir námu 146,3 milljónum króna.
Þeir hækkuðu því úr 82 milljón-
um í tæplega 194 milljónir milli
ára. Raunvísindastofnun Háskóla
Íslands fékk hæsta styrkinn,
rúmar 26 milljónir króna. Næst
mest fékk starfsmannafélagið,
sem á ný kom inn.
Heildarstyrkirnir hækkuðu í
214,2 milljónir árið 2008. Stjórnin
veitti rúmlega 63 milljónir og
almennir styrkir námu 150
milljónum. Raunvísindastofnun HÍ
fékk 36 milljónir króna og Land-
búnaðarháskólinn 21.
Árið 2009 héldu styrkirnir
áfram að hækka og fóru í 242
milljónir króna. Þar af fékk
sveitar félagið Ölfus 50 milljónir
króna vegna uppgræðslusjóðs.
Þá fékk Háskóli Íslands tæpar
29 milljónir og Raunvísinda-
stofnun Háskóla Íslands rúmar 28
milljónir. Stjórnin veitti 53 millj-
ónir og almennir styrkir námu 189
milljónum.
Árið 2010 lækkuðu styrkirnir
í 169,6 milljónir. Þá fékk Háskóli
Íslands 24,5 milljónir og orkuskóli
Reyst fékk 21,7 milljónir. Stjórnin
veitti 16 milljónir en almennir
styrkir voru 153 milljónir.
thorunn@frettabladid.is
Orkuveitan veitti yfir millj-
arð í styrki frá 2002 til 2010
Á árunum 2002 til 2010 námu styrkir frá Orkuveitunni til einstaklinga, stofnana og félaga rúmlega 1,1
milljarði. Hæstu styrkirnir voru veittir árið 2009. Frá 2007 voru 500 milljónir veittar án aðkomu stjórnar.
FÉLAGSMÁL Elín Björg Jónsdóttir
var í gær endurkjörin formaður
BSRB til næstu þriggja ára.
Elín Björg hefur verið
formaður frá árinu 2009 og
hún fékk 212
atkvæði í kjör-
inu sem fór
fram á þingi
BSRB. Jónas
Engilbertsson
hlaut tólf
atkvæði en
auðir seðlar
voru þrír.
Þá var einnig
kosið til fram-
kvæmdanefndar BSRB. Árni
Stefán Jónsson var endurkjörinn
fyrsti varaformaður og Garðar
Hilmarsson annar vara formaður.
Kristín Á. Guðmundsdóttir
verður áfram ritari.
Þá var Snorri Magnússon, for-
maður Landssambands lögreglu-
manna, kjörinn gjaldkeri en
hann kemur einn nýr inn í fram-
kvæmdanefndina. - þeb
Elín Björg Jónsdóttir:
Endurkjörin
formaður BSRB
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
Rottueitur í lifrarpylsunni
Rottu- eða músaeitur var í lifrarpylsu-
bitum sem var dreift í og við reiðhöll
Gusts þegar hundasýning var haldin
þar í síðasta mánuði. Forsvarsmaður
Hundaræktunarfélagsins Rex ætlar að
funda með tæknideild lögreglunnar á
mánudag.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Heildarstyrkir Orkuveitunnar og einstaka styrkir
milljónír króna
500 þúsund fékk Hrafn Gunnlaugsson til að gera kvikmyndina „Ísland í öðru ljósi“
302 þúsund fékk Ólafur Egilsson til að láta Kristján Jóhannsson halda tónleika í Peking
550 þúsund fékk Garðyrkjufélag Íslands vegna fræðslumála
milljónír króna2002 55,2
1,2 milljónir fékk Nýlistasafnið vegna sýningar Matthews Barney
500 þúsund fékk Hrafn Gunnlaugsson vegna kvikmyndarinnar „Ísland í öðru ljósi“
2,2 milljónir fékk Latibær vegna útvarps Latabæjar
milljónír króna2003 57,1
1,5 milljónir fékk Útvarp Saga vegna kostunar
1,1 milljón fékk Jakob F. Ásgeirsson til að skrifa ævisögu
300 þúsund fékk íþróttafélagið ÍA
2004 77
milljónír króna
350 þúsund fékk Eggert Skúlason til að gera DVD-disk um stangveiði
1,3 milljónir fékk Veiðifélag Elliðavatns sem arðgreiðslu vegna afnota af uppeldisstöðvum
2005 62,9
3,4 milljónir til Latabæjar vegna Orkuátaksins 2006
350 þúsund fékk ÍA
5 milljónir fékk Reykjavíkurborg vegna ýmissa verkefna
milljónír króna2006 82,2
1 milljón króna fékk knattspyrnudeild Skallagríms
1,8 milljónir fékk Latibær fyrir Útvarp Latabæjar
1 milljón fékk knattspyrnudeild Fylkis
2 milljónir fékk Plús film vegna heimildarmyndar
900 þúsund fékk sendiráð Íslands í London
2007 193,8 milljónír króna
2,2 milljónir króna fékk Borgarbyggð vegna Bjössarólós
1 milljón króna fékk Valur vegna Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu
2008 214,2 milljónír króna
50 milljónir króna fékk sveitarfélagið Ölfus
2 milljónir fékk Íslenska óperan
1 milljón fékk Golfklúbbur Þorlákshafnar
500 þúsund fékk Listafélag Langholtskirkju
2009 242 milljónír króna
1 milljón króna fékk Grafarholtssókn
500 þúsund fékk Haukur Arnþórsson vegna hönnunar um örugg netföng
20 milljónir fékk utanríkisráðuneytið vegna heimssýningar Expo
250 þúsund fékk Golfklúbbur Bakkakots vegna árgjalds
2010 169,6 milljónír króna
Dæmi um styrki og heildarstyrkir hvers árs
Ekki er rétt sem fram kom í Frétta-
blaðinu á mánudag að fyrrverandi
stjórnarformaður og framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna
Kópavogsbæjar hefðu verið sakfelldir
fyrir ólögleg lán úr sjóðnum til Kópa-
vogsbæjar. Hið rétta er að að þeir
voru dæmdir fyrir að gefa fjármála-
ráðuneytinu rangar upplýsingar um
lánveitinguna.
LEIÐRÉTT
ÖRYGGISMÁL Náðst hefur samkomu-
lag á vettvangi Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar (IMO) um stað-
festingu á samþykkt um öryggi
fiskiskipa, smíði þeirra og búnað.
Torremolinos-bókunin svokallaða er
frá árinu 1977, en þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir á undanförnum árum og
áratugum hefur ekki tekist að hrinda
henni í framkvæmd þar sem forms-
atriðum hefur ekki verið fullnægt.
Til að samþykktin taki gildi þarf
tiltekinn fjöldi aðildarríkja IMO
að fullgilda hana, en fram til þessa
hefur ekki náðst samkomulag um
hver þessi fjöldi aðildarríkja skuli
vera. Eins þarf tiltekinn fjöldi skipa
að falla undir samþykktina og nú
liggur fyrir að hún öðlist gildi alþjóð-
lega þegar 22 ríki með fiskiskipastól
upp á 3.600 skip 24 metra eða lengri
hafa fullgilt hana. Íslendingar stað-
festu samþykktina árið 1986.
„Þetta er tvímælalaust stærsta
skrefið sem stigið hefur verið í átt að
bættu öryggi sjómanna á fiskiskipum
á heimsvísu,“ segir Guðfinnur G.
Johnsen, sem hefur fylgt málinu eftir
fyrir hönd LÍÚ. Talið er að árlega
farist 26 þúsund sjómenn í heimin-
um en aðbúnaður skipa er víða bág-
borinn. - shá
Talið er að árlega farist 26 þúsund sjómenn í heiminum en aðbúnaður skipa er víða bágborinn:
Stórt skref stigið í öryggismálum sjómanna
Á ÍSLANDSMIÐUM Íslendingar hafa náð gríðarlega góðum árangri í öryggis-
málum sjómanna á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR