Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 38

Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 38
13. október 2012 LAUGARDAGUR38 vaxta munaviðskipta fyrir hrun fjár- málakerfisins, talið nema um 420 milljörðum íslenskra króna. Þetta fé hefur oft verið nefnt hengja afla- ndskróna (overhang) sem geti farið snögglega úr kerfinu, með alvarlegum áhrifum fyrir hagkerfið. Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn telur þetta fé nema um 23 prósentum af árlegri landsfram- leiðslu Íslands, eða sem nemur 372 milljörðum króna, sé mið tekið af árlegri landsframleiðslu í fyrra. Áætlun Seðlabankans hefur ekki síst miðað að því að minnka þessa fjárhæð, og telur bankinn að sú vinna hafi þegar skilað árangri, þó erfitt sé að meta með nákvæmum hætti hversu mikill árangur hafi náðst. Höftin ekki að fara Nú fjórum árum eftir að gjaldeyris- höftum var komið á er alls óvíst hve- nær mögulegt verði að afnema höftin, og er áfram einblínt á að áherslan verði á að meta aðstæður sem fyrir hendi eru á hverjum tíma, með tilliti til þess hvort afnám hafta sé mögu- legt. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla- bankastjóri lagði áherslu á það atriði á fundi um fjármálastöðugleika 5. októ- ber, ríkisfjármálin yrðu að vera komin á réttan kjöl fyrir afnám hafta. Það væri einna mikilvægasta for sendan, þar sem höftin hefðu í reynd þau áhrif nú að fjármagnskostnaður ríkisins væri minni en hann væri annars, og það væri viðbúið að lántökukostnaður ríkisins og íslenskra fyrirtækja myndi hækka við afnám hafta, í það minnsta tímabundið. Þess vegna skipti miklu máli að vera með sjálfbæran ríkis- rekstur. Þrýstingurinn eykst Innan haftanna, í fábreyttu fjár- festingaumhverfi, er hætta á því að eignaverð verði bjagað. Á þetta hefur Seðlabankinn bent í ritum sínum, m.a. Peningamálum. Sérstaklega eru það lífeyrissjóðirnir sem geta lent í vand- ræðum með að ávaxta fé sjóðsfélaga, þar sem fáir kostir koma til greina, þar sem nýfjárfesting erlendis er ekki möguleg. Sem dæmi um erfiðleikana, þá hafa sjóðirnir verið með á bilinu 150 til 180 milljarða á innlánsreikningum und- anfarin tvö ár, sem ávaxtast lítið sem ekkert. Eftir því sem lengri tími líður innan hafta þá eykst þrýstingurinn á afnám þeirra frá innlendum fjárfestum. Í þessu umhverfi getur eignaverð bjag- ast og þannig getur teiknast upp fölsk mynd af stöðu efnahagsmála. Pólitískar deilur Eftir hrun hafa pólitísk átök um gjald- miðlamálin og peningastefnu harðnað nokkuð. Undirliggjandi eru þar ekki síst átök um hvort Íslandi eigi að verða hluti af Evrópusambandinu og taka upp evru. Hvað sem líður stefnu mörkun í peningamálum til framtíðar og hug- myndum um upptöku alþjóðlegrar myntar, þá er krónan gjaldmiðill Íslend- inga og verður áfram. Í það minnsta næstu árin, sem einkennast munu af áframhaldandi tiltekt eftir hrunið sem leiddi til haftabúskapar. S tundum er rætt um hrun fjármálakerfisins, dagana 7. til 9. október 2008, og hrun krónunnar sem tvo aðskilda atburði. Það er umdeilan- legt að svo hafi verið, ekki síst í ljósi þess með hvaða augum alþjóðamarkaðir voru farnir að horfa til Íslands um ári áður en allt hrundi. „Íslendingar gerðu sér ekki grein fyrir því að landið var í reynd orðið að vog- unarsjóði,“ segir í grein hins virta blaðamanns Michaels Lewis, með fyrir- sögninni Wall Street on The Tundra (Wall Street í freðmýrinni), sem birt- ist í Vanity Fair og fjallaði um hrun íslenska fjármálakerfisins. Rautt ljós Í augum fjárfesta á alþjóðamörkuðum var Ísland orðið að einni samfelldri áhættu. Skipti þá engu hvort rætt var um Glitni, Kaupþing eða Lands bankann í því samhengi. Oftast var horft til landsins í heild og ójafnvægisins sem blasti við, fremur en einstakra þátta. Þar sem bankakerfið var orðið tæplega tífalt stærra en árleg landsframleiðsla og tæplega áttatíu prósent skuldbind- inga bankanna voru í annarri mynt en krónunni, þá var heildarmyndin fremur hættumerki en sértæk atriði. Þetta birtist sem rautt ljós á alþjóða- mörkuðum, einkum síðustu mánuðina fyrir hrun fjármálakerfisins. Öll sund voru lokuð. Neyðarástand skapaðist í kjölfarið. „Enn eitt ruglið“ Krónan var í frjálsu falli þegar mest gekk á og ekkert gat stöðvað fallið, að því er virtist. Seðlabankinn sendi frá sér tilkynningu 7. október, þegar neyðarlögin höfðu verið samþykkt á Alþingi, þar sem sagði að gengi krón- unnar hefði verið fest miðað við vísi- töluna 175. „Seðlabanki Íslands hefur að fengnu samþykki forsætisráðherra ákveðið að eiga viðskipti á millibanka- markaði í dag á gengi sem tekur mið af gengisvísitölu 175, sem samsvarar um 131 krónu gagnvart evru,“ sagði í tilkynningu vegna þessa. Þetta gekk ekki. Innan sólarhrings varð það ljóst. Krónan hélt áfram að falla, enda alls- herjarvantraust á mörkuðum gagnvart Íslandi. Í skýrslu Rannsóknar nefndar Al- þingis er haft eftir Þórarni G. Péturs- syni, núverandi aðalhagfræðingi Seðla- bankans, að yfirlýsingin um fastgengið hefði verið „enn eitt ruglið“. Eftir á að hyggja tóku þessar tilraunir Seðla- bankans mið af efnahagslegu neyðar- ástandi sem hafði skapast, raunar ekki aðeins á Íslandi heldur alþjóðlega sömuleiðis. Í bók Hanks Paulson, On The Brink (Á brúninni), fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, lýsir hann atburðum sem áttu sér stað í Bandaríkjunum á sama tíma, í byrjun október 2008, þannig að einhverjum klukkustundum hafi munað að atvinnu- leysi í Bandaríkjunum hefði orðið um 30 prósent á innan við viku, allt fjár- málakerfi landsins stöðvast og almenn óreiða skapast á götum borga. Inngrip seðlabanka á síðustu stundu bjargaði því að hjólin héldu áfram að snúast, þrátt fyrir erfiðleika. Í höft Hrun krónunnar var að þessu leyti ekki aðskilið frá hruni fjármála kerfisins, heldur frekar samofið einstæðum atburðum á fjármálamörkuðum hér á landi og erlendis, enda réðst gengi hennar af frjálsum fjármagnsflutn- ingum. Í nóvember var gripið til þess að setja á gjaldeyrishöft og voru þau hluti af efnahagsáætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Höftin áttu að koma í veg fyrir veru- lega erfiðleika í tengslum við greiðslu- jöfnuð Íslendinga og höfðu það að markmiði að stuðla að stöðugu gengi án þess að treyst væri um of á vaxtatækið. Haftabúskapur hefur frá þessum tíma verið hluti af daglegu lífi Íslendinga. Tíu mánuðum eftir að höftin voru sett á, í ágúst 2009, kynnti Seðlabankinn áform um afnám hafta. Í áætluninni eru talin upp nokkur meginatriði sem þurfa vera fyrir hendi svo afnám hafta sé mögulegt. Hin mikilvægustu eru, sam- kvæmt gögnum Seðlabanka Íslands, þjóðhagslegur stöðugleiki og þar með talið trúverðugar aðgerðir til að tryggja sjálfbær ríkisfjármál, minnkandi verðbólga, traust fjár- málakerfi og nægi legur gjaldeyris- forði. Annað vandamál er að meta hversu mikill fjármagnsflótti er lík- legur til þess að fara úr íslenska fjár- málakerfinu við afnám hafta, með til- heyrandi veikingar áhrifum á gengi krónunnar. Samkvæmt síðustu opin- berum gögnum Seðlabanka Íslands, sem birt voru í fjármálastöðugleika- riti bankans 5. október sl., er kvikt fjármagn aflandskróna í eigu útlend- inga, sem er ekki síst tilkomið vegna Haftabú- skapur hefur frá þessum tíma verið hluti af daglegu lífi Íslendinga. Haftabúskapur í kjölfar hruns Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar í efnahagsmálum Íslands á síðustu fjórum árum, þá er þjóðin enn í höftum. Gengi krónunnar hrundi með falli íslenska fjármálakerfisins, og eftir máttlausar tilraunir við að ná stjórn á málunum voru gjaldeyrishöft sett á. SEÐLABANKASTJÓRI Spurningar um framtíðarskipan í gjaldmiðlamálum þjóðarinnar hafa verið í brennidepli undanfarin misseri. Seðlabanki Íslands kynnti ríflega 600 síðna skýrslu um valkosti í þessum efnum til framtíðar litið, 17. september sl. Þar voru kostir og gallar ýmissa leiða, sem mögulegar eru, metnir. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sést hér skömmu áður en kynning á skýrslunni fór fram, í húsakynnum Seðla- bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í slenska krónan hefur óneitanlega leikið stórt hlutverk í sviptingum undanfarinna ára. Fall krónunnar gerði fjárhagslegt tjón við hrun fjár- málakerfisins árið 2008 mun meira en ella og var helsta skýringin á því að kaupmáttur sveiflaðist meira hérlendis en annars staðar. Hin mikla kaup- máttarrýrnun átti svo sinn þátt í því að magna upp skuldavanda heimila. Krónan leiddi okkur jafn- framt í gjaldeyrishöft, eitt landa í okkar heims- hluta. Þannig hefur krónan sýnt skuggahliðar sínar skýrt og greinilega undanfarin ár. Því verður hins vegar ekki heldur á móti mælt að gengisfall krónunnar hafði einnig þau jákvæðu áhrif að beina kaupum landsmanna á vörum og þjónustu í auknum mæli í áttina að innlendri framleiðslu í stað innfluttrar. Það hefur skipt miklu og skýrir að einhverju leyti hvers vegna samdráttur landsframleiðslu varð þó ekki meiri en raun ber vitni. Það á líka sinn þátt í því að atvinnuleysi minnkar nú tiltölulega hratt og hag- vöxtur er meiri en bjartsýnustu menn þorðu að vona fyrir fjórum árum. Þessi saga dregur ágætlega fram suma af kost- unum og göllunum við að hafa sjálfstæðan gjald- miðil í örhagkerfi eins og því íslenska. Sögulega hefur lífið með krónunni almennt verið þyrnum stráð. Krónan hefur verið óstöðug- asti gjaldmiðill í okkar heimshluta, hvort heldur horft er til gengis eða verðlags. Gagnslaus utan- lands og þær atvinnugreinar innanlands sem hafa getað komist hjá því að nota hana hafa almennt gert það. Þannig nota helstu útflutningsatvinnu- vegir Íslendinga krónu mjög lítið. Framtíð þessa gjaldmiðils er mjög óljós. Seðla- bankinn dró ágætlega fram þá kosti sem við eigum í gjaldmiðlamálum í nýútkominni skýrslu, sem ekki verður reynt að rekja hér í smáatriðum. Valkostirnir eru þó tiltölulega einfaldir. Annað hvort höldum við krónunni – vonandi með betri árangri en undanfarna áratugi – eða við tökum upp evru. Kostir og gallar við evruupptöku eru að hluta þekktir en óvissan á evrusvæðinu flækir óneitan- lega málið. Að því leyti erum við þó í ákjósanlegri stöðu. Við þurfum ekki að ákveða hvort við tökum upp evru fyrr en eftir nokkur ár, eigum þess raunar ekki kost fyrr. Þá mun væntanlega hafa skýrst hvernig evrusamstarfinu verður háttað í framtíðinni og hve vel tekst að vinna úr núver- andi vanda. Þá verður hægt að taka ákvörðun um það hvort við viljum taka upp annan gjaldmiðil á réttum og þekktum forsendum. Þangað til sitjum við uppi með krónuna hvort sem okkur líkar betur eða verr. Krónískt vandamál FJÖGUR ÁR FRÁ EFNAHAGSHRUNI – FJÓRÐA GREIN Gylfi Magnússon, dósent og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra skrifar 1.478 MILLJARÐAR voru inni á inn- lánsreikningum í íslenska fjár- málakerfinu í lok ágúst á þessu ári, samkvæmt tölum Seðlabankans. 147 MILLJARÐAR voru inni á innláns- reikningum lífeyris- sjóðanna í ágúst, en sambærileg tala var sjö milljarðar árið 2007, þegar þenslan var sem mest. STÝRI- VEXTIR voru hækkaðir í 17,5 prósent á svipuðum tíma og gjaldeyris- höftin voru sett. STÝRI- VEXTIRNIR standa nú í 5,75 prósentum og líkur standa til þess, sam- kvæmt yfirlýsingu Peningastefnu- nefndar Seðlabanka Íslands, að þeir hækki á næstunni. Magnús Halldórsson magnush@365.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.