Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 39

Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 39
Kynningarblað Mataræði, hreyfing, áskoranir, bindindi, streita, dekur og spa. HEILSA LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012 MEISTARAMÁNUÐUR Einn fjölmargra þátttakenda í ár er grafíski hönnuðurinn Hjalti Axel Yngvason sem tekur nú þátt þriðja árið í röð. Hann segir erfitt að skorast undan áskoruninni enda taki margir vinir hans og fjölskyldumeð- limir þátt. „Í ár er áfengið hvílt í október eins og venjulega en nú hef ég einnig hætt að drekka kaffi, te og aðra koffíndrykki. Svo reyni ég að borða hollan mat, svo kallað steinaldarfæði, þar sem sneitt er til dæmis fram hjá unnum kjötvörum og ekki neytt hveitis og sykurs svo dæmi séu tekin. Ég set mér einnig alltaf það markmið að ganga á fjögur fjöll í þessum mán- uði og er nú þegar búinn að ganga á eitt fjall og tek annað um helgina.“ Hjalti segist taka á sömu þáttunum ár eftir ár en hann próf i þó a l ltaf eit t hvað ný tt í hverjum Meist- a ra má nuði. „Ka f f i- bindindið er nýtt í ár og síðan prófaði ég crossfit núna í október.“ Mánuðurinn hefur farið vel af stað í ár hjá Hjalta en hann segir átakið ganga betur með hverju árinu sem líður. „Maður er farinn að hugsa um þetta einum til tveimur mán- uðum fyrr. Síðan hafa málin þróast þannig að ég er farinn að tileinka mér margt sem ég tek mér fyrir hendur í Meistaramán uðinum í daglegu lífi. Áður en ég tók þátt í fyrsta sinn stundaði ég til dæmis enga skipulagða líkamsrækt en nú er hún hluti af daglegri rútínu minni. Þannig er Meistaramán- uðurinn ágætis tími fyrir fólk til að hugsa almennt um heilsuna og taka skref í átt að betra líferni.“ Tekist á við nýjar áskoranir Meistaramánuðurinn er góður tími til að hugsa um heilsuna. Margir þátttakendur prófa nýja hluti á þessu tímabili sem seinna verða hlutar af daglegri rútínu þeirra. Flestir hætta að drekka, taka mataræðið í gegn og hreyfa sig meira. „Kaffibindindið er nýtt í ár og síðan prófaði ég crossfit,“ segir Hjalti Axel Yngvason, graf- ískur hönnuður. MYND/VILHELM Október er Meistaramánuður. Þá skorar fólk sjálft sig á hólm og setur sér ákveðin markmið og reglur sem það fylgir eftir í heilan mánuð. Upphafs- menn Meistaramánaðar eru Þorsteinn Kári Jónsson og Magnús Berg Magnússon sem voru báðir í háskólanámi í Kaupmanna- höfn þegar þeir skipulögðu fyrsta Meistara- mánuðinn árið 2008. Þá voru þátt takendur einungis tveir, þeir sjálfir. Þorsteinn segir kveikjuna hafa verið þá að þeir voru ungir menn sem skemmtu sér vel um helgar en vildu gjarnan ná fastari tökum á náminu. „Við byrjuðum tveir og síðan ákváðum við að skora á félaga okkar þannig að hópurinn taldi um 20 manns ári síðar. Eftir það byrj- uðum við með litla bloggsíðu og þá jókst fjöldinn mikið og ári síðar var hópurinn um 200 manns. Í fyrra var svo öllum gefinn kostur á þátttöku og mörg þúsund manns tóku þátt en þá vorum við fluttir til Íslands.“ Meginmarkmið átaksins er að sögn Þor- steins að fá fólk til að líta í eigin barm og átta sig á því hvernig það getur sjálft orðið besta út gáfan af sjálfum sér. „Við hvetjum þátt- takendur til að taka á ákveðnum þáttum, til dæmis heilsu, hreyfingu og andans málum en aðallega snýst þetta um hvernig fólk getur orðið sín eigin fyrirmynd.“ Að sögn Þorsteins er algengt að þátt- takendur hætti að drekka og reykja tóbak þennan mánuðinn, geri róttækar breytingar á matar ræði sínu og hreyfi sig meira. „Þannig byrjuðum við líka á sínum tíma. Mánuðurinn snýst líka um að vakna fyrr á morgnana og koma einhverju í verk áður en rútína dagsins hefst. En fyrst og fremst hvetjum við fólk til að skoða hvað það vill sjálft koma í verk. Það getur verið mjög fjölbreytt, til dæmis að lesa meira, margir listamenn birta verk sín dag- lega í október, sumir nota tannþráð á hverjum degi og aðrir heimsækja eða hringja í foreldra eða afa og ömmu oftar. Það eru þessir litlu hlutir sem gleymast oft í amstri hversdags- ins.“ Þorsteinn segir vinsældir síðustu ára að vissu leyti hafa komið þeim á óvart, en þó ekki alveg. „Okkur finnst alltaf jafn áhugavert hvað mikið af fólki vil taka þátt. En þegar við hugsum út í þetta kemur þetta okkur í raun ekki svo mikið á óvart því okkur fannst við þurfa þetta sjálfir á sínum tíma. Að því leyt- inu komu vinsældirnar okkur ekki á óvart og það er gaman að sjá hversu margir taka þátt.“ Skora sjálfan sig á hólm Meistaramánuður hefur fest sig í sessi hérlendis en þúsundir taka þátt í honum. Þátttakendur setja sér sjálfir eigin markmið og reglur. Margir fara vel út fyrir þægindarammann. Upphafsmenn og stjórnendur Meistaramánaðarins. Frá vinstri, Jökull Sólberg Auðuns- son, Þorsteinn Kári Jónsson og Magnús Berg Magnússon. MYND/ANTON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.